Jökull


Jökull - 01.01.2001, Side 109

Jökull - 01.01.2001, Side 109
Djúpborun í Bárðarbungu 1972. Minningabrot Páll Theodórsson Raunvísindastofnun Háskólans, Dunhaga 3, 107 Reykjavík Aðfararorð. – Ég á ljúfar minningar frá boruninni í Bárðarbungu sumarið 1972 og tel líklegt að svo sé um flesta þá sem tóku þátt í því mikla verkefni. Í tilefni afmælis Jöklarannsóknafélagsins var þess óskað að ég segði dálítið frá þessu verki. Ég féllst að sjálfsögðu strax á þessa ósk, en þó runnu á mig tvær grímur þegar ég tók að blaða í dagbókum frá jöklinum. Ég var augljóslega að mestu búinn að gleyma baslinu og það er ekki í anda jöklamanna að segja mikið af erfiðleikum. Þeir eru aðeins bensíntæpir þegar síðasti dropinn er búinn. En of seint var að snúa við og lesandinn verður að sætta sig við að upprifjunin mótast meira af smásmygli vísindamannsins en frásagnarstíl jöklafélaga minna. Aðdragandi Upphaf þessarar sögu má rekja til frumlegrar hug- myndar frá Þorkeli Þorkelssyni, þáverandi veður- stofustjóra, þegar hann 1940 benti á að tvívetni, sam- sæta af vetni sem hafði verið uppgötvuð nokkrum ár- um fyrr, gæti ef til vill gefið vísbendingu um feril heita grunnvatnsins. Hálfum öðrum áratug síðar heimsótti Þorbjörn Sigurgeirsson rannsóknarstofu við háskól- ann í Chicago í Bandaríkjunum þar sem þungamiðja tvívetnisrannsókna var og í framhaldi af því fékk hann nokkrum árum síðar mæld þar allmörg íslensk vatns- sýni sem staðfestu hugboð Þorkels. Á þessum árum vann Þorbjörn sleitulaust að því að leggja grunn að rannsóknum í eðlis- og jarðeðlis- fræði á Íslandi. Mikilvægur áfangi náðist þegar Eðl- isfræðistofnun Háskólans tók til starfa í upphafi árs 1958 og tvívetnismælingar voru á verkefnalista henn- ar. Í fyrstu var stofnunin lítils megnug, en Þorbjörn var bjartsýnn, áræðinn og þrautseigur. Árið 1962 tókst að fá allstóran styrk frá Alþjóðakjarnorkustofnuninni (IAEA) í Vín og frá Kjarnorkunefnd Bandaríkjanna til að kaupa tæki til mælinga á tvívetni og þrívetni, en þrívetni er geislavirk samsæta af vetni sem á sjötta og sjöunda áratugnum myndaðist í miklu magni við til- raunir stórveldanna með vetnissprengjur. Hin unga og fátæklega búna rannsóknarstofa, sem var í einu her- bergi í kjallara Háskólans með einum starfsmanni ut- an Þorbjörns, breyttist nú á skömmum tíma í stofnun sem var allvel búin tækjum til meginverkefna sinna, hafði fjóra fasta starfsmenn og var í allgóðu rými í byggingu Þjóðminjasafnsins og í gömlu Loftskeyta- stöðinni. Árið 1966 fluttist svo öll þessi starfsemi í nýtt og rúmgott húsnæði í glæsilegri byggingu Raun- vísindastofnunar Háskólans. Þetta jók okkur áræði. Þegar komið var fram á síðari hluta 7. áratugs- ins var kominn góður skriður á tvívetnisrannsóknirn- ar, sem Bragi Árnason stýrði, og þrívetnisrannsókn- irnar, sem ég sá um. Tvívetnið gat gefið upplýsingar um rennslisferil grunnvatns í iðrum jarðar og þrívetn- ismælingarnar hversu lengi vatnið hafði verið neð- anjarðar frá því það féll sem úrkoma og hvort það hefði blandast yngra yfirborðsvatni. Árið 1966 kynnt- um við Bragi niðurstöður rannsókna okkar á ráðstefnu sem var haldin á vegum IAEA í Vín. Þar þóttumst við sjá að við stæðum jafnfætis mun stærri rannsóknar- stofum í verkefnum okkar. Nokkrum árum síðar, þegar Bragi hafði náð að kortleggja í grófum dráttum tvívetnisremmu vatns í uppsprettum, lækjum og ám á Íslandi, beindist at- hygli hans að jöklum, sem eru afar mikilvægur hlekk- ur í vatnsbúskap landsins. Rannsóknir á borkjörnum frá Grænlandi, sem unnið var að um þessar mundir við háskólann í Kaupmannahöfn undir stjórn Willy Dansgaard, ýttu undir áhuga okkar á jöklarannsókn- JÖKULL No. 50 109
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.