Jökull


Jökull - 01.01.2001, Page 123

Jökull - 01.01.2001, Page 123
Rolla óbreyttrar jöklameyjar fraus á kósangasdunkunum, því fararstjóri vor neitaði að breyta fyrirhuguðum matseðli. Þegar kósangasið hafði verið þítt með ósandi prímusi, þutum við fjór- um tímum síðar út í hríðina til tjaldanna með fiskpott, kartöfluskál og brædda feiti, sem ég lenti að vísu með inni í skafli á leiðinni. Ég heillaðist af þessu rólega, djarfa og um leið gætna, jöklafólki sem ekki ók áfram í blindni á sprungnum jöklum eða upp á mjóan hrygginn á Svía- hnjúk heldur beið bara og tók svo til hendi nótt sem dag þegar gaf. Og maður skynjaði betur en nokkru sinni umgengni við íslensk veður og höfuðskepnur. Upp á Hvannadalshnjúk komumst við reyndar bundin á streng úr Hermannaskarði í bjartri miðnætursól, hvar við höfðum landið allt fyrir fótum okkar í ógleyman- legri birtu. Nú vorum við orðin heimtufrek og ætluð- um í Kverkfjöll strax og gryfjumenn hefðu lokið sér af niðri í Grímsvötnum, þar sem ákoman var á þeim tíma mæld með því að taka allt að 7 m djúpa gryfju með handafli. Hver kastaði köglunum upp á næsta stall. En kl. 2 um nóttina var komið stinningsveður með ísingu. Fararstjórinn Magnús Jóhannsson og bílstjórinn Guð- mundur Jónasson lágu undir feldi og komu með nið- urstöðuna í ljóði: „Hvort sem frost er hart og heiðríkt og bjart/eða hríð og þoka fer um jökulinn/ við syngj- um vor ljóð eða yrkjum óð/ til að örva, hressa og kæta mannskapinn“. Ljóðið hafði tilætluð áhrif og ífarandi bið í skála í hríð leið við yrkingar, söng og viðvarandi Olsen-Olsen spil kring um borðið allan sólarhringinn milli þess að menn brugðu sér í efri kojur og dormuðu eða lásu sjoppublöð og fleiri fúkkalyktandi bókmennt- ir skálans. Einu sinni á dag settist reykingafólk á koju og skipti með sér einni sígarettu þar til þær þraut. Þeg- ar loks var hægt að leggja af stað niður bilaði drif í öðrum snjóbílnum og því sátum við 11 talsins eftir í skálanum á Grímsfjalli. Skilaboð bárust með fyrra lið- inu til ritstjóra míns Bjarna Benediktssonar, sem varð að orði: „Hvað vill fólk líka vera að flækjast á jökla?“ Góð spurning. Blaðamaðurinn fór af skiljanlegum ástæðum helst á jökul í vorferð með félaginu þegar einhverjar hrær- ingar höfðu verið þar uppi, fyrir utan aukaferðir á jökla inn á milli, Langjökul, Mýrdalsjökul og Vatna- jökul. Skeiðarárhlaup hafði orðið haustið 1965, það þriðja frá því JÖRFI tók að senda árlega rannsókna- leiðangra. Ekki hafði verið hægt að kanna verks- ummerkin í Grímsvötnum nema úr flugvél fyrr en í vorferðinni. Hálfum mánuði eftir að leiðangurinn kom niður 1966 héldum við fimm einbíla á Kraka Gunn- ars Guðmundssonar á jökul. Það var ekki venjan en þarna var einvala karlalið með reynslu af jöklaferð- um, auk Gunnars, Ómar Hafliðason og Carl Eiríksson verkfræðingur, sem reiknað hafði áfram marga jökla- leiðangra í dimmviðri á þeim tíma sem menn höfðu ekki annað en áttavita og hæðarmæli auk kílómetra- hjóls aftan í, sem nútímabúnu tæknifólki þætti óburð- ugt. En þá eru menn með eitthvað í kollinum þeim mun mikilvægari auk jakanna til að bjarga úr vanda. Carl vokaði gjarnan úti á nóttunni í þessari ferð við að reikna stöðu okkar út eftir stjörnunum. Af kven- kyni vorum við Soffía Theodórsdóttir með í ferð. Jök- ullinn reyndist æði sprunginn eins og vorleiðangurinn hafði raunar varað okkur við. En menn könnuðu fyrst sprungur bundnir í bílinn og kunnu að fara þvert á þær bæði á leiðinni í Grímsvötnin, sem höfðu að venju sunkað um 80 metra og í Kverkfjöllin. Við gátum ek- ið inn eftir íshellunni, þar sem Naggur hafði stungið upp kolli með umturnuðum ísjökum og snjóhengjum. Og innst hafði myndast svokölluð Stóragjá, sem ekki virðist hafa sýnt sig síðan, en ég á dýrðlegar myndir af. Þar hafði íshellan lent á nöggum í botninum og sat ofan á þeim en á milli þeirra haldið áfram að síga niður og myndast 40 m háir veggir frá botni. Snjólagaskift- ing áranna svo greinileg í hellunni að leit út eins og skorin lagterta með rjóma, en neðst sandur við botn- inn. Við skildum Kraka eftir nokkuð frá og bundum okkur saman á eitt reipi. Fetuðum okkur svo niður í gjána. Ég var svo heppin að Kalli var á undan mér á bandinu, svo ég gat mundað myndavélina og feng- ið stærðarviðmiðun. Ekki vissi ég þá að slíkt mynda- tækifæri gæfist ekki aftur. Í glampandi sólskini gaf okkur norður yfir jökul- inn í Kverkfjöllin með sínum litríka jarðhitaleir, hvar Kraki sat fastur á skottinu á 1-2 m breiðri sprungu, sem hann hafði sem betur fer komið þvert á þótt ekki sæist hún og lánaðist að þjappa festu beggja megin. Nokkur umbrot höfðu verið í jöklinum fyrirfarandi. Auk Grímsvatnahlaupsins um haustið hafði Brúarjök- ull hlaupið 1963 og kolsprungið langt suður á jök- ul og Síðujökull á vestanverðum jöklinum veturinn JÖKULL No. 50 123
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.