Jökull - 01.01.2001, Page 130
veg, mjóan og djúpan með hyljum og bunum. Lambær
sem áður gæddu sér sumardaginn langa á kjarngóðum
stanglgróðri alveg upp undir sléttar hjarnfannir, horfa
nú með forundran upp í ókleift jökulstálið. Og leirinn
fýkur og ógnar gróðrinum við hlíðarræturnar.
1. mynd. Við Kaldalónsjökul var einn hæsti foss á
Vestfjörðum. Hann er nú horfinn undir þykkan jök-
ul. Myndin er tekin 28. júní 1994. – Kaldalónsjökull
has now advanced over the site of one of the highest
waterfalls on the northwest peninsula. Ljósm./Photo:
Oddur Sigurðsson.
Þó ég eigi ekki þetta land sem hefur orðið eyð-
ingaröflunum að bráð, þá var það mér kært og ég veit
að ég mun ekki lifa það að sjá þennan kaldranalega ná-
granna Drangajökul skila því aftur. Og þó að þetta séu
engir Eyjabakkar eða Þjórsárver, finn ég fyrir sársauka
þess sem hefur misst það sem ekki er hægt að endur-
heimta vegna þess að þar er við of stóran að deila.“
Leirufjarðarjökull – Ásgeir Sólbergsson sér nú um
mælingar fyrir hönd föður síns. Hann fór þrisvar í ár
til mælinga á framskriðinu og var það sem hér segir;
26.9.’98 – 19.6.’99 56 m
19.6.’99 – 24.7.’99 29 m
24.7.’99 – 18.9.’99 9 m
Gangurinn virðist því vera að hægja á sér. Samtals
hefur jökullinn gengið fram um 1114 m frá haustinu
1994 til 18. september 1999. Mikið hefur verið í jök-
ulánni í sumar. Síðast liðinn vetur var sæmilegur bæði
til sjós og lands fyrir vestan. Snjór var töluverður í
byggð en mikill til fjalla. Það voru töluverðar fannir
eftir í Leirufirði í haust.
Reykjarfjarðarjökull – Í þetta sinn stóð jökullinn í
stað sem er óvenjulegt. Þröstur segir jökulinn meira
sprunginn fram á sporðinn rétt ofan við brattasta hlut-
ann. Vel kann það að vera vegna þess að hið innra hafi
verið gangur jöklinum eins og hinum aðalskriðjöklun-
um út frá Drangajökli. Allur jökullinn Reykjarfjarðar
megin, sem og Kaldalóns og Leirufjarðar megin, var
sprunginn út frá ísaskilum 1994 og 1995 sem sést af
flugmyndum. Það virðist einungis hafa dugað til að
gera jökulsporðinn brattari en ekki náð að fleyta hon-
um fram.
Norðurlandsjöklar
Gljúfurárjökull – Kristján Hjartarson segir að snjór
sé í mesta lagi í gili Gljúfurár og mikill litur hefur ver-
ið á Skíðadalsá í allt sumar. Samfelldur skafl er heilan
kílómetra framan við sporðinn sem er líklega afleið-
ing snjóflóðs en sjálf er jökulröndin er laus. Áin hefur
greinilega runnið ofaná snjónum með aurburði. Að-
eins er sporðurinn sprunginn en þess gætir ekki lengra
inni á jöklinum. Brattinn fremst á jöklinum minnkar ár
frá ári.
Grímslandsjökull – Enn er sporður á kafi í snjó og því
ekki unnt að mæla.
Langjökull
Hagafellsjökull eystri – Í haust hafði grunur legið á
að jökullinn væri að hlaupa fram (Gunnar Páll Eydal
1998). Undir vor kom í ljós að alda hafði risið og var
komin framarlega á jökulinn. Þann 20. apríl lá aldan
130 JÖKULL No. 50