Jökull


Jökull - 01.01.2001, Page 137

Jökull - 01.01.2001, Page 137
Jarðfræðafélag Íslands Skýrsla stjórnar á aðalfundi 6. júní 2000 STJÓRNARSTARF Stjórn Jarðfræðafélagsins hélt 10 stjórnarfundi á starfsárinu, og gaf út 4 fréttabréf. Að auki var sendur út mikill fjöldi annarra tilkynninga á tölvunetinu og í pósti til að dreifa upplýsingum um fundi, ráðstefnur og annað sem félagið vann að. Tvær ráðstefnur voru haldnar og gefið út hefti með ágripum erinda og vegg- spjalda. Formaður félagsins, Helgi Torfason, sótti í janú- ar 2000 Vetrarráðstefnu norrænna jarðfræðinga sem var haldin í Þrándheimi. Við það tækifæri var jarð- vísindamönnum á hinum Norðurlöndunum boðið til 25. Vetrarráðstefnunnar á Íslandi í janúar 2002. Formaður sótti einnig Náttúruverndarþing í Reykjavík dagana 28-29. janúar 2000. FRÆÐSLUFUNDIR Alls voru 6 fræðslufundir á starfstímabilinu. Voru þeir vel sóttir og efni fjölbreytt. 1999 1. Herbert Henkel, 7. september. Meteorite impact craters. Flutt á ensku. 2. Andrew Russel, 19. nóvember. Controls on the sedi- mentology of November 1996 jökulhlaup deposits, Skeiðarársandur and Skeiðarárjökull, Iceland. Flutt á ensku. 3. Magnús T. Guðmundsson, 24. nóvember. Gjálp, þremur árum eftir gos. 4. Freysteinn Sigmundsson, 1. desember, – jólafund- ur. Norræna eldfjallastöðin 25 ára. 2000 5. Ingvar Atli Sigurðsson, 14. mars 2000. Suður- skautslandið – síðustu óbyggðirnar? 6. Hreggviður Norðdahl, 28. mars. Síðjökultími við Faxaflóa. 7. Freysteinn Sigmundsson, 6. júní. – Aðalfund- ur. Kynning á samráðsnefnd jarðfræðistofnana. Fræðslufundir voru haldnir í Lögbergi, Odda, fundarsal Orkustofnunar og jólafundurinn var haldinn á Norrænu eldfjallastöðinni. FERÐ Sú nýjung var gerð að í stað erindis í október var far- in dagsferð til að skoða jarðfræði Hengilsins. Haust- ferðin var farin laugardaginn 9. október 1999 og tókst mjög vel. Farið var til Hveragerðis og hveragarðurinn þar skoðaður undir leiðsögn Björns Pálssonar. Þá var farið á Ölkelduháls og gengið undir leiðsögn þeirra Gests Gíslasonar og Grétars Ívarssonar til Nesjavalla og skoðaðir hverir og ölkeldur á leiðinni. Á Nesja- völlum var virkjunin skoðuð og þáðar góðar veitingar í boði Orkuveitu Reykjavíkur. RÁÐSTEFNUR Tvær ráðstefnur voru haldnar á starfsárinu: Umbrot í Mýrdals- og Eyjafjallajökli Þann 17. febrúar var haldin hálfsdags þemaráðstefna „Umbrot í Mýrdals- og Eyjafjallajökli“. Var hún vel sótt og tókst í alla staði vel. Um 110 manns sóttu ráð- stefnuna. Haldin voru 9 erindi og sýnd 7 veggspjöld. Vakti ráðstefnan talsverða athygli, enda órói í Suður- jöklum. Vorráðstefna 2000 – var haldin 13. apríl og sóttu hana um 85 manns. Þar var að venju fjölbreytt efni og mjög skemmtilegt. Flutt voru 18 erindi og 13 veggspjöld sýnd. Báðar ráðstefnurnar voru haldnar á Hótel Loftleið- um og var aðstaða og aðbúnaður góður. Þeim lauk með léttum veitingum og frjálslegum umræðum. JÖKULL Jökull er enn dálítið á eftir tímanum, en óðum stytt- ist í að ritið komist á rétt ár. Á síðasta ári kom út 47. árgangur, sem er rit ársins 1997, og efni er komið í JÖKULL No. 50 137
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.