Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 17

Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 17
BREIÐFIRÐINGUR 15 fór að læra snikkaraiðn (húsasmíði) í Kristíaníu (nú Osló). Árið 1900 varð stórt verkfall í Osló, en þá fór ég til Tónsberg, (kaupstaður í Oslófirðinum), og var þar í þrjú ár. En þegar kreppan kom þangað og verkfall varð mest meðal byggingamanna, en við fréttum að það væri nóg af vinnu hér í Ameríku, þá fór ég hingað. Og nú hef ég verið hér í 50 ár og mér og mínu skylduliði hefur liðið vel hérna. Náttúrlega hefur verið hér eins og annars staðar upp og niður með vinnu og lífsafkomu. En fyrir Guðs góða náð höfum við ávallt haft húsaskjól og nóg að borða og að klæðast í, og það þótt fjölskyldan væri stór, börnin 10, en í allt 12. Árið 1935 leið ég hinn stærsta skaða, er ég missti hina ágætu konu mína. Átta af börnunum voru þá fullvaxin og gátu unnið fyrir sér, en tvö voru enn á skólaaldri. Nú eru þau öll gift og hafa sín eigin heimili, og ég hef þá ánægju að ferðast milli þeirra og líta á barnabörnin 23 og barnbarnabörnin 7. Hér má sjá, að ég hef mikið að þakka góðum Guði fyrir hans miklu náð og blessun í öll þessi ár. Það borgar sig að treysta Drottni, hann lætur það engum verða til skammar. Eg er fæddur á Valshamri á Skógarströnd 13. júní 1871. Þegar ég var 15 ára, flutti ég með foreldrum mínum að Narfeyri í sama hreppi. 17 ára fór ég sem vinnumaður til Guðmundar, sem þá var í Gvendarey við Skógarströnd, hvar ég dvaldi 3 ár. Fór þaðan til séra Jósefs Hjörleifs- sonar á Breiðabólstað, og var þar 1 ár, réðst síðan á ofan- greint skip til fiskiveiða. Stephan Johnson. (Stefán Jónsson, sem þetta ævisögubrot er eftir, er frá Narfeyri á Skógarströnd, bróðir Guðmundar Jónssonar pósts og alþýðuforingja í Stykkishólmi. Stíl hans hef ég ekki viljað breyta. — Ritstj.)

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.