Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 24

Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 24
22 BREIÐFIRÐINGUR Flóðaldan fyrir minni fjarðarins hefur mælzt meiri þarna en annars staðar hér við land, allt að 6 m. í stórstraumi fen í smástraumi um 2 m. Vegalengdin þvert yfir fjörðinn er 12 km., en af þeirri leið girða eyjarnar fyrir meira en helm- inginn. Hvort stíflum yrði komið fyrir þarna með nægilega miklu gegnumrennsli og með viðráðanlegur kostnaði er órannsakað með öllu, en ef það tækist, er til nokkurs að vinna, því að þarna mætti fá 1,5 milljarð kwst. árlega eða þrisvar sinnum meira en úr Sogi fullvirkjuðu. Utan við Hvammsfjörð eru minni firðir og vogar svo sem Alftafjörður, Vigrafjörður, Nesvogur fyrir innan Stykkis- hólm og Hofstaðavogur og Kolgrafarfjörður fyrir utan Stykkishólm, eru allir hafa nokkur skilyrði til virkjunar. Má þar telja fremstan Kolgrafarfjörðinn, ef hann liggur ekki um of í vari fyrir flóðöldunni, sem kemur að utan inn Breiðafjörðinn. Fjörðurinn snýr nokkuð til norðausturs og verður þar því ágætt skjól fyrir útsjó. Ytri hluti fjarðarins er 5 km. langur, en inn úr botni hans ganga tveir firðir. Er sá vestari samnefndur, en hinn er kallaður Hraunsfjörð- ur. Mynnið á þessum innri hluta Kolgrafarfjarðar er 650 m. á breidd og í því er áll nær 100 m. breiður og 8 m. djúpur. Grunnt er í mynninu að öðru leyti. Flatarmál þessa innra hluta fjarðarins er 20 ferkm. Hraunsfjörður er allur grunnur innan við þriggja metra dýpi. Sjálft mynnið er 330 m. á breidd og flatarmál Hrauns- fjarðar er 6 ferkm. Ef stíflað væru fyrir utan mynni fjarðanna með 3 km langri stíflu, eru staðhættir þannig að fá mætti tveggja lóna virkjun með því að gera millistíflu frá framstíflunni í Ber- serkseyrarodda, sem gengur út á milli fjarðanna. — Sökum stærðarmuna lónanna yrði orkunýting ekki góð, en stífla mætti einnig fyrir hvorn fjörðinn sér og hafa sína stöðina í hvorri stíflu. Mætti þá hugsa sér aðra starfandi á útfalli, en

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.