Breiðfirðingur - 01.04.1957, Page 26
24
BREIÐFIRÐINGUR
á aukinni raforku að halda, að við verðum að hafa okkur
alla við að virkja það vatnsafl, sem fært er, enn um skeið,
það er og eigi ólíklegt, að samstarf vatnsaflstöðva við kjarn-
orkustöðvar geti orðið hagstætt slíkt og nú er samstarf vatns-
aflstöðva við gufuaflstöðvar og dísilstöðvar.
Fyrir okkur Islendingum liggur það verkefni að sjá okkur
sjálfum fyrir aukinni raforku næstu áratugina með virkjun
vatnsafls, en árleg aukning raforkuþarfarinnar í almennings-
veitum er um 3000 kw að minnsta kosti og er þá ekki með
talinn hugsanlegur stóriðnaður á borð við áburðarverksmiðj-
una eða þaðan af stærri. Mætti orða þetta á þá leið, að hvert
mannsbarn, er fæðist nú á íslandi, þyrfti að fá eitt kílówatt
rafmagns í vöggugjöf, er það léti sem sinn skerf í almenn-
ingsveitukerfi landsins.
Vinnum og iðjum
Vinnum og iðjum vel til landsins þarfa
Vökum og biðjum, nóg er til að starfa.
Vér hyllum þig af hug og sál
og helgum þér vort bernsku mál!
Þú fagra, góða friðarland!
Vort frjálsa ættarland.
Þóra M. Stefánsdóttir.