Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 27

Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 27
Oss dreyma lát Oss dreyma lát, um daga jafnt sem nœtur, a5 dragi harmaský frá gœfusól, að huggist sá, er hamingjuna grœtur, að hœlislausum veitist öruggt skjól, að þeim, sem líður berist raunabœtur, að beri ávöxt frœ, sem vonin ól, að ferskur varmi frosnar þýði rœtur, að fyllist skrúða, þar sem áður kól. Oss dreyma lát, að byggð úr rústum rísi, að riki friður, þar sem stríð er háð, að sundurlynda sátt og eining hýsi, að sakborningar rétti geti náð, að kúguðum og föngum frelsi lýsi, að fruntamexuiin bceti gerzt sitt ráð, að sannleikurinn blekktum vegu vísi, að veröld hrjáða fegri líf og dáð. En enginn draumur verður veruleiki, ef vilji, þor og framtak er ei með, því hrifning dvín, þótt hugsjón elda kveiki, ef hönd er ekki fyrir störfum séð, þeim sterka jafnt skal valdaður hinn veiki, því vinningslyktum ráðið getur peð, en þó að stundum skot að marki skeiki þá skerpum sjón og herðum betur geð. M. Jónsson frá Skógi.

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.