Breiðfirðingur - 01.04.1957, Page 39
Helga Jónsdóttir frá Sveinsstöðum
Hún Helga frá Sveins-
stöðum, eins og hún var
jafnan kölluð, er dáin. Já,
mikil kona er fallin frá.
Einn af hinum sterku stólp-
um hinnar gömlu, íslenzku
sveitamenningar.
Helga var fædd í Sauða-
gerði við Reykjavík, 14.
okt. 1867, en dó 25. ágúst
(1957) s.l. og vantaði því
tæpa 2 mánuði til að fylla
90 aldursárin.
Ung missti hún föður
sinn, en ólst upp hjá frænd-
fólki sínu í Þingvallasveit.
Mun hún hafa farið snemma að vinna fyrir sér og lært að
treysta á eigin krafta, með hjálp og handleiðslu guðlegrar
forsjónar, en slík trú einkenndi líf hennar til æviloka. —
24 ára giftist Helga, Guðbirni 0. Bjarnasyni 15. ágúst
1891, höfðu þau þá byrjað búskap á Kolbeinsstöðum í Snæ-
fellsnessýslu. Þar bjuggu þau í 6 ár. Fluttu svo að Sveins-
stöðum í Neshrepp ytri á Snæfellsnesi. Þangað flutti Helga
með manni sínum ókunnug öllum, en full af vonum um
framtíðina og óbilandi kjark, enda stóð hún ótrauð við hlið
manns síns í hvívetna. Þarna bjó hún í rúm 40 ár en 14