Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 46

Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 46
Skrímslið í Stykkishólmi (Frásaga) Einar hefur maður heitið. Hann bjó í Ási við Stykkis- hólm. Ás er lítið býli, þó má hafa þar kú og nokkrar kindur. Einari var sýnt um búskap, að hann taldi. Á hverju hausti gerði hann yfirlit í huganum yfir búskapinn á liðnu ári. Fann hann þá margt, sem úrhendis hafði farið. Alla slíka ágalla kvaðst hann mundi betrum bæta í framtíðinni. Um ráðgerðir hans var þetta kveðið: Einar nefna ýtar mann, í Ási býr hinn hrausti. Hann ætlar að hafa það allt saman öðru vísi að hausti. Þegar þeir ægilegu viðburðir gerðust, sem hér verður nokkuð sagt frá, átti Einar hrút einn mórauðan. Hrúturinn var heimalningur og gekk í túninu. Gersemi var hann að vænleik og nú veturgamall. Einari þótti vænt um hrútinn. Verzlanir í Stykkishólmi höfðu þann viðskiptahátt við bændur á verzlunarsvæðinu að kaupa af þeim fé á fæti og reka í Stykkishólm til slátrunar. Fénu var slátrað á bersvæði, nefnt blóðvöllur, því að ekki voru sláturhús fyrir hendi á staðnum. Vinnan var kalsöm í vondum veðrum. Brennivínsveitingar voru þá helzti hitagjafinn, ef menn væru sér ekki einhlítir um hita.

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.