Breiðfirðingur - 01.04.1957, Page 78
76
BREIÐFIRÐINGUR
þetta: Það á að skrásetja allar seltóftir í landinu. Gera
nákvæma teikningu af þeim og ljósmynda þær. Að sjálf-
sögðu verður að friðlýsa allt slíkt. Þetta verður að vinnast
af fullri þekkingu, undir yfirumsjón þjóðminjavarðar. Það
skal viðurkennt, að lýsingu selja hér að framan er í ýmsu
ábótavant. En gæti hún vakið menn til frekari athafna í
sömu átt, er tilganginum náð. Og í öllum greinum er betra
lítið ljós en mikið myrkur.
KALT VOR
Enn er frost og enn er klaki.
inn í jörðu er gróa fer.
Lasið fé og lömb í hraki.
En lóan segir „dýrðin“ er.
Syngur þú um sœlli tíðir,
sumardýrð og fagurt vor.
Litli fugl, er lundinn prýðir,
Ijáðu mér nú sama þor.
Ræðu þína rengja fáir.
Rétt á sá, er hærra fer.
Voldug þjóð, ef vizku þráir,
verða rökin öll hjá þér.
Svífðu vítt um sólargeima,
sjáðu dýrð og njóttu vel.
Lífsins tóna láttu streyma,
leiðir þínar Guði fel.
Kristín Sigfúsdóttir
frá Syðri-Völlum.