Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 81

Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 81
BREIÐFIRÐINGUR 79 greitt úr sjóði félagsins, eins og reikningar bera með sér. Er auðvitað vafi, hve langt slík félög sem þetta getur gengið á þessu sviði, en hitt jafn víst, að sælla er að gefa en þiggja- Deildir Breiðfirðingafélagsins hafa starfað svipað og að undanförnu, þótt málfundadeild og handavinnudeild hafi lítið látið á sér bæra. Rétt er samt að geta þess, að starf málfundadeildar hefur mjög verið á dagskrá hjá félagsstjórninni, og er nú ákveðið, að boða til málfundar hið fyrsta og væntanlega verður þátttaka svo mikil, að tekin verður upp kennsla eða leiðbeiningar í framsögn og fundarhöldum fyrir þá, sem óska. Bridge-deild og tafldeild hafa starfað með miklu fjöri og munu umsjónarmenn þeirra gera nánari grein fyrir framkvæmdum þeirra .síðar á fundinum. Eini skugginn, sem hefur verið á störfum félagsins þetta ár, er það, hve lítið kórinn hefur getað unnið og yfirleitt hve sönglistum hefur lítið verið sinnt. Þó er skylt að þakka hinum ágæta heiðursfélaga Gunnari Sigurgeirssyni, píanó- leikara fyrir forystu og stjórn við söng og hljóðfæraleik á hátíðastundum félagsins, en því hefur hann sinnt af frá- bærri alúð og smekkvísi, þrátt fyrir annir sínar við kennslu- störf og kirkjukór, sem hann hefur tekið að sér að æfa og stjórna. Er óskandi að kórnum takist ásamt söngstjóra sínum að veita félagsmönnum og fleirum sem flestar unaðs- stundir sem hingað til. Og verður hin nýja stjórn að taka þetta mál til sérstakrar athugunar strax á fyrstu fundum sínum. Breiðfirðingur, tímarit félagsins, hefur komið út með svipuðum hætti og áður. Ritstjóri er Arelíus Níelsson, en Jón Júl. Sigurðsson hefur annazt framkvæmdastjórnina fyrir ritið af fádæma dugnaði og skörungsskap. Tókst að fá 2.

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.