Skírnir - 01.09.2012, Page 59
SKÍRNIR
BROTHÆTT LÝÐRÆÐI
319
Kristinsson, Ólafur Þ. Harðarson og einn sem óskaði nafnleyndar.
Staðan hafði verið auglýst með hefðbundnum hætti í Lögbirtingar-
blaðinu (nr. 26, 1987) og skipuð dómnefnd sem í sátu Svanur Kristj-
ánsson dósent í stjórnmálafræði (formaður), Sigurður Líndal laga-
prófessor og Gunnar Gunnarsson lektor í stjórnmálafræði. Auk
þess starfaði með dómnefndinni sérstakur fulltrúi rektors Háskól-
ans, Jónatan Þórmundsson prófessor í lögfræði og varaformaður
háskólaráðs. Nefndin skilaði ítarlegu áliti þar sem fjallað var um
hæfi allra umsækjenda til að gegna stöðunni. Einróma niðurstaða
var að tveir umsækjendur, Gunnar H. Kristinsson og Ólafur Þ.
Harðarson, voru metnir hæfir. Aðrir þrír umsækjendur fengu ekki
hæfnisdóm. Hannes H. Gissurarson var talinn hæfur til kennslu og
rannsókna á einu tilgreindu sérsviði, samanburðarstjórnmálum, en
heildarniðurstaðan var skýr og ótvíræð: „Hins vegar verður það
ekki ráðið af námsferli umsækjanda né heldur hefur hann sýnt fram
á það með ritverkum sínum að hann hafi þá þekkingu á helstu kenn-
ingum og rannsóknaraðferðum í stjórnmálafræði að hann teljist
hæfur til kennslu í undirstöðugreinum hennar.“15 Á deildarfundi í
félagsvísindadeild hlaut Ólafur Þ. Harðarson 15 atkvæði, Gunnar H.
Kristinsson hlaut eitt atkvæði og einn seðill var auður.
Er menntamálaráðherra greindi opinberlega frá skipan Hann-
esar í lektorsstöðuna útskýrði hann ítarlega hvers vegna ákveðið var
að ganga fram hjá dómnefndarálitinu og telja Hannes hæfari en þá
sem hlotið höfðu hæfnisdóm í starfið. I fréttatilkynningu sem birt-
ist í Morgunblaðinu, 1. júlí 1988, skýrði ráðuneytið m.a. hina laga-
legu hlið málsins:
Tekið skal fram að dómnefnd þessi var ekki skipuð samkvæmt ákvæðum há-
skólalaga með aðild menntamálaráðuneytisins, heldur starfaði hún ein-
göngu á vegum Háskóla íslands. Er hún var sett á laggirnar var ekki
lögskylt að skipa dómnefndir vegna lektorsembætta, þótt svo sé nú eftir
breytingu á reglugerð Háskóla Islands. (Menntamálaráðuneytið 1988)
15 Svanur Kristjánsson, Sigurður Líndal, JónatanÞórmundsson og Gunnar Gunn-
arsson 1988. Dómnefndarálitið var birt í heild í Morgunblaðinu 16. júlí 1988.
Þess ber að geta að engin námskeið í stjórnmálafræði eru hluti af námsferli Hann-
esar H. Gissurarsonar.