Skírnir - 01.09.2012, Page 60
320
SVANUR KRISTJÁNSSON
SKÍRNIR
Einnig var tilgreint að doktorspróf Hannesar væri „frá einum virt-
asta háskóla veraldar, Oxford-háskóla á Englandi, þar sem ritgerð
hans fékk lofsamlega dóma“. Upplýst var að ráðuneytið hefði leitað
eftir áliti tveggja prófessora sem kennt höfðu Hannesi í Bretlandi á
hæfni hans og þeir báðir talið hann hæfan til starfsins. Ennfremur
sagði í fréttatilkynningunni:
Stjórnmálafræði er tiltölulega ung fræðigrein og um eðli hennar og hlut-
verk hefur ekki skapast sú samstaða fræðimanna, hvorki hér né erlendis,
sem einkennir flestar aðrar greinar vísinda og fræða. Það kemur glögglega
fram í áliti dómnefndar og öðrum gögnum málsins að skoðanir núverandi
kennara í stjórnmálafræði og Hannesar H. Gissurarsonar á eðli og hlut-
verki þessarar fræðigreinar eru um margt ólíkar. Það er að dómi ráðherra
æskilegt að ólíkar skoðanir á fræðigreininni eigi sér málsvara á vettvangi
Háskóla íslands. (Menntamálaráðuneytið 1988)
Háskólaráð brást skjótt við gjörðum og orðum menntamálaráð-
herra og samþykkti einróma bókun 8. júlí. Þar sagði meðal ann-
ars:
Háskólaráð mótmælir þeirri tilraun ráðherra til að hafa áhrif á kennslu í
Háskóla íslands með þeim hætti að veita stöðuna á grundvelli sérskoðana
eins umsækjanda á eðli og hlutverki stjórnmálafræði. Kennslufrelsi Há-
skólans hafa ráðherrar virt frá stofnun hans þar til núverandi ráðherra gefur
út hina sögulegu greinargerð 30. júní s.l. Það er einsdæmi að ráðherra gefi
út þá yfirlýsingu að kennarastöðu við Háskóla Islands skuli veita á grund-
velli sérskoðana.16
Vafalítið var menntamálaráðherra í fullum lagalegum rétti að skipa
að vild hvaða umsækjenda sem var í lektorsstöðu við Háskóla Is-
lands. Ákvæði laga voru skýr:
Dómnefnd skal láta uppi rökstutt álit um það, hvort af vísindagildi rita um-
sækjanda og rannsókna, svo og námsferli hans og störfum, megi ráða, að
hann sé hæfur til að gegna embættinu. Álitsgerð nefndar skal höfð til
hliðsjónar, er embættið er veitt, og má engum manni veita prófessorsemb-
ætti eða dósentsstarf við háskólann, nema meiri hluti nefndarinnar hafi látið
í Ijós það álit, að hann sé hæfur til þess. Enn fremur skal leita álits hlutaðeig-
16 „Ályktun háskólaráðs ..." 1988. Sbr. einnigMagnús Guðmundsson 2011: 545.