Skírnir - 01.09.2012, Page 177
SKÍRNIR BÓKMENNTIR OG BÓKMENNTASAGA ... 437
rómverskri bókmenntasögu, „antikviteter“ og goðafræði var okkur
lítið kennt,“ skrifaði Bessastaðastúdentinn Páll Melsteð og bætti
við: „Þegar við fórum úr skóla, og hétum stúdentar, vissum við í
raun réttri mjög lítið, nema í latínu“ (Páll Melsteð 1912: 31). Vegna
þessa munu Islendingar stundum hafa staðið illa að vígi við inn-
tökupróf í Hafnarháskóla og gerðu dönsk skólayfirvöld oft athuga-
semd við það og brýndu íslenska skólamenn þá jafnvel til dáða með
því að vísa til innlendrar bókmennta- og lærdómshefðar.
í bænaskrá íslenskra kandídata og stúdenta í Kaupmannahöfn
sem nýstofnað Alþingi í Reykjavík sendi konungi haustið 1845 var
einnig lagt til að latínuskólinn yrði „bættur svo og aukinn, að hann
geti staðið jafnfætis hinum beztu skólum í Danmörku“. Meðal ann-
ars var hvatt til að alúð yrði lögð við „að kenna íslenzka túngu og
íslenzka og norræna bókvísi" („Bænaskrá um kennslu lögun í Is-
lands lærða skóla“ 1845: 628).
Reglugerðir um bókmenntakennslu
í Reykjavíkur lœrða skóla
Þegar latínuskólinn var endurvakinn í Reykjavík haustið 1846
kynnti nýskipaður rektor hans, Sveinbjörn Egilsson, róttækar
breytingar og endurbætur á námi og kennsluháttum (Sveinbjörn
Egilsson 1968: 75-82).1 Með bráðabirgðareglugerð frá 30. maí 1846
og síðan með endanlegri reglugerð frá 30. júlí 1850 var honum
breytt í „lærðan skóla“. Jafnframt var ákveðið að stúdentspróf frá
honum kæmi í stað inntökuprófs í Hafnarháskóla og tók það
ákvæði gildi árið 1853. Héðan í frá var skólanum aftur á móti
óheimilt að brautskrá prestsefni. Slfkt kom í hlut prestaskólans sem
hóf starfsemi sína í Reykjavík haustið 1847. Við þetta var hægt að
fjölga námsgreinum og breyta námsefni svo að það stæði undir
markmiði skólans, sem kynnt var í reglugerðinni frá 1850, að veita
nemendum „tilsögn, er leiða megi til sannrar og röksamlegrar frum-
mentunar, og jafnframt með fróðleiksauka og eflíngu sálargáfnanna
búa þá á þann hátt, sem bezt má verða, undir enn fremri menntunar-
1 ítarlegasta heimildin um skólann er Saga Reykjavíkurskóla 1-4 1975-84.