Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Page 33
EKKI SKRIFSTOFUMAÐUR I LISTINNI gróandi, eitthvert jafnvægi í loftinu þó að fjármálin séu enn í ólestri. Þar er eins og víðar í samfélaginu verið að plástra vandamálin til bráðabirgða og það kemur alltaf illa út fyrir stofnanir, hvort sem við erum að tala um leikhús, menntastofnanir eða heilbrigðisstofnanir. Og þá komum við að pólitíkinni. Við verðum auðvitað að gera upp við okkur hvernig þjóðfélagi við viljum búa í. Viljum við búa í velferðarþjóð- félagi við ríka menningu, gott heilbrigðiskerfi og menntakerfi, og ef svo er þá þarf að taka á því af myndarskap. Því það er alger sjálfsblekking og ranghugsun að ætla þessum þáttum að skila hagnaði, þótt krafa um góð- an rekstur sé sjálfsögð. Það er frjálshyggjubull sem vonandi er á undan- haldi. Hagnaðurinn er reyndar gífurlegur, ekki aðeins í framtíðarkrónum heldur í andlegum verðmætum, sem við ætlum seint að læra að meta.“ Er kannski ofmikið að vera með tvö stór leikhús í borg afþessari stærð? „Ég held ekki. Meðan við útskrifum fólk í þessum listgreinum þá verð- um við að búa því gott starfsumhverfi. Borgarleikhúsið hefur gert furðu- mikið fyrir lítið fé í vetur og mér finnst það hafa sannað að það standi undir merkjum. Það þarf að taka heildstætt á íjárhagsvanda þess en mið- að við þá spennitreyju sem leikhúsið er í fjárhagslega finnst mér það berj- ast um á hæl og hnakka og bugast ekki. Hugmyndin að Nýja sviðinu var mjög góð, þetta er skemmtilegt rými sem gott er að vinna í, enda hafa verið settar þar upp skrýtnar og skemmtilegar sýningar. Það er líka sniðugt að leyfa sama leikstjóranum að spreyta sig nokkrum sinnum í röð, fyrst Benedikt Erlingssyni og svo mér. Þetta er auðvitað frábært tækifæri fyrir mig, svona nýbyrjaðan að leikstýra, að fá að safna mikilli reynslu á stuttum tíma. Það verður seint sagt að Þjóðleikhúsið berjist í bökkum fjárhagslega, en mál manna er að rafhlöðurnar þar séu orðnar kraftlitlar, dálítil málm- þreyta í gangi. Stefán Baldursson hóf stjórnartíð sína af miklum krafti og dugnaði, þrátt fyrir sársaukafúllar uppsagnir. Þar varð mikil uppsveifla og margar fínar sýningar komust á svið. Flaggskipið sigldi seglum þönd- um og skipsstjórinn var hress. Þarna er líka einvala lið. En nú finnst mörgum seglin vera farin að týna tölunni. Það er einhver austantjalds- stemning í leikhúsinu, yfirbyggingin er þunglamaleg. Sömu sögu má reyndar heyra úr Ríkisútvarpinu. Það heyrast æ fleiri raddir sem vilja brjóta upp þetta menntaða einveldi. Mér heyrast þungar öldur brotna á stuðlaberginu þessi misserin.“ Hvað meðfrjálsu leikhópana, hvaða hlutverk hafa þeir og hvernig standa þeir sig? „Þeir eru eins misjafnir og þeir eru margir. Leikarahópurinn í landinu stækkar óðum og ekki komast allir að hjá stóru leikhúsunum, bæði vegna TMM 2004 • 1 31
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.