Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Blaðsíða 68

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Blaðsíða 68
Þorsteinn Þorsteinsson Alltjent megum við vita: að bjartsýnisafglaparnir eru vorkunnar verðir, og þó afglapar séu fá þeir sjálfir að súpa seyðið af óvizku sinni; blindan stoðar þá aðeins um sinn, árátta sjálfsblekkingarinnar býr þeim eyðilegan næturstað. Því að ótíðindin skella á þeim að lokum, ótíðindin sem endanleg niðurstaða: slys og ósigur, svívirðan, auðmýkingin og hneykslið mikla. Sigfús yrkir víða um blekkinguna og hvernig hún leikur menn. Þemanu eru gerð eftirminnileg skil í Höndum og orðum. En þó lýsingin hér hafi almenna merkingu er engin leið að lesa þessi erindi (um ,bjartsýnis- afglapana', ,blinduna‘ og ,ótíðindin‘) án þess að sjá í þeim vísun til upp- gjörsins við Sovétríkin og til hinna „auðtrúa“ sósíalista sem Halldór Lax- ness nefndi svo í Skáldatíma, bók sem kom út 1963. Þar segir meðal ann- ars: Stærsta axarskaft okkar vinstrisósíalista fólst í trúgirni. Það er í flestum tilfell- um meiri glæpur að vera auðtrúa en vera lygari. Við höfðum hrifist af byltíng- unni og bundum vonir okkar við sósíalisma. Sannur tómás trúir hinsvegar ekki að lausnarinn hafi risið upp þó hann þreifi á naglaförunum og síðusárinu. Við trúðum ekki þó við tækjum á því hvílíkt þjóðfélagsástand var í Rússlandi undir Stalín. Við trúðum ekki af því aðrir lygju að það væri gott, heldur af því að við lugum því að okkur sjálfir. Afneitun staðreynda fylgir oft dýrmætustum vonum manna og hugsjónum.12 Ég vitna ekki til þessara orða vegna þess að þau hafi orðið Sigfúsi kveikja að ljóðinu eða litað mat hans á Sovétríkjunum og á afstöðu sósíalista til þeirra. Til þess bendir ekkert að mínum dómi. Sigfús myndaði sér sjálf- stæða skoðun á þeim málum, og fram kemur í einkabréfi frá 1965 og at- hugasemd í Grænukompu13 um tuttugu árum síðar að hann var gagnrýninn á Skáldatíma og þótti hann „sérhlífin bók“. En kaflinn er fróðlegur og eftilvill er ekki fráleitt að telja Halldór til bjartsýnisaf- glapanna sem kvæðið greinir frá. Ummælin eru þó ekki síðri lýsing á manni sem aldrei gekk af trúnni, Kristni E. Andréssyni, yfirmanni Sigfús- ar og nánasta samstarfsmanni hjá Máli og menningu, sem með nokkrum rétti má kalla að gengið hafi Sigfúsi í föður stað þegar hann var ungling- ur í Reykjavík. Ljóst er af Parísarbréfum Sigfúsar til Kristins og af minn- ingarorðum hans að Kristni látnum að hann mat hann afar mikils.14 En það er trúa mín, og raunar vissa, að samstarf þeirra hjá Máli og menn- ingu hafi off verið Sigfúsi erfitt og að í bjartsýnisljóðunum komi fram 66 TMM 2004 • 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.