Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Blaðsíða 30

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Blaðsíða 30
Ingibjörg Haraldsdóttir troðfylltist þetta bókasafn og áheyrendur urðu mörgum sinnum tuttugu áður en yfir lauk. Meðal áheyrenda þar var maður sem átti sérstakt erindi við mig, hafði heyrt að íslendingur ætti að lesa upp og gaf sig fram við mig að upplestr- inum loknum. Hann sagðist heita Omar (einsog Omar Khayam, bætti hann við brosandi) og dró upp úr tösku tvö eintök af Egils sögu Skalla- grímssonar í spænskri þýðingu. Annað átti ég að fá en hitt bað hann mig að árita handa Önnu Maríu dóttur sinni, sem væri tíu ára bókaormur. Omar hefur aldrei komið til íslands en sagðist vera heillaður af landinu og því sem hann hefði lesið um það, meðal annars þessari bók eftir Snorra Sturluson sem argentínski rithöfundurinn Jorge Luis Borges hefði valið til útgáfu í bókaflokki sínum Biblioteca personal. í honum eru þær bækur sem Borges hafði mestar mætur á. Því miður gafst mér ekki mikill tími til að spjalla við þennan ágæta mann, en þarna fékk ég enn og aftur staðfest að þeir leynast víða, íslandsvinirnir.“ Danska skáldið Pia Tafdrup segir frá því í Weekendavisen (nr.30 2004) að á einum stað hafifólk beðið skáldanna í háttá annan klukkutíma í hita- brækju undir beru lofti þegar þau töfðust á leiðinni og messu hafi verið seinkað íþessu kaþólska landi til aðfólkið gæti hlýttá Ijóðin. Áttu einhverja skýringu á þessum vinsældum? „Það er óskaplega erfitt ástand í Kólumbíu og hefur verið í að minnsta kosti fjörutíu ár. Við upplifðum það sjálf, gestirnir á ljóðahátíðinni, að þarna getur maður búist við hverju sem er hvenær sem er. Þegar ég fór til Bogotá vorum við fimm í hóp. Eftir upplesturinn fórum við á hótelið okkar, og þar sem við sátum í mestu makindum og spjölluðum saman þá kveður við þessi voðalega sprenging sem okkur fannst vera í næsta húsi eða þar um bil. Hún reyndist nú vera aðeins lengra í burtu, í næstu götu, og í ljós kom að terroristinn hafði ætlað að sprengja upp lögreglustöð sem þarna var rétt hjá. En þegar hann kom gangandi með sprengjuna sína þá sá hann að mikill viðbúnaður var þar fyrir utan og allt fullt af vopnuðum lögregluþjónum og hermönnum sem hann hafði ekki átt von á. Hann virðist hafa orðið hræddur og snúið við en þá springur sprengjan og þeytir honum út um hverfið í smábútum. Það urðu miklar skemmdir og þrír særðust, var sagt í fréttum. Við urðum ekki vör við fleiri sprengingar, en skotbardaga heyrðum við um miðjar nætur í grennd við hótelið í Medellín og stöðugur órói var í loftinu. Það er einfaldlega stríð í landinu, borgarastríð sem hefur staðið öll þessi ár, og ekki virðist nokkur maður hafa nokkra trú á að það verði saminn friður í bráð. Þetta vonleysi í fólkinu er verst af öllu. Viðbrögðin virðast helst vera þau að gera lítið úr hlutunum. Þegar fréttir komu um 28 TMM 2004 • 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.