Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Blaðsíða 50

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Blaðsíða 50
Eiríkur Örn Norðdahl Tristan Tzara, vandvirkan Allen Ginsberg eða Jack Kerouac. Að minnsta kosti ekki þesslags vandvirkni sem heldur aftur af „heimtufrekju orð- anna“. Wise men say, only fools rush in... Orðin berast til mín úr útvarpinu frammi á gangi. Elvis Presley syngur, og ég veit þetta er rétt. Það eru bara flón sem drífa sig. Flón sem stoppa ekki til að hugsa. Flón sem kjósa föðurmorð og heimtufrekju orð- anna fram yfir skorinorða hugsun, færri og færri orð. But I can’t help... ... falling in love with you... Skyndilega er bankað. Ég lít upp og sé að læknirinn snýr baki í mig. Það er bankað aftur, en ég sé engan banka. „Psst, ég er hérna...“ Ég lít við, Skáldið er hálft komið inn um gluggann sem snýr að götunni. „Mér fannst óverjandi að láta þig dúsa hérna, komdu, ég þekki sæta stelpu sem þú þarft endilega að hitta...“ Það bjástrar við að troða sér innum alltof lítinn gluggann. Ég geng framhjá sjúkrarúminu og horfi á Ljóðið í síðasta skipti. Það er fölt og sveitt og blátt í framan og allt í einu finnst mér dauðinn eðlileg- asti hlutur í heimi. Hringrás lífsins, eins og hjá Disney. Það kemur nýr Konungur Ljónanna á eftir þessum. í S-Ameríku gildir sú þumalputt- aregla að ef maður drepur forsætisráðherrann, þá verður maður sjálfur forsætisráðherra. Mér fmnst þetta allt svo eðlilegt. Deyr fé, frændur, feður, og jafnvel orðstír og ljóð. Skáldið réttir mér höndina. Við horfum út á bílastæðið. Það eru fjórar hæðir niður á malbikið. „Geronimo?“ spyr Skáldið. „Geronimo,“ svara ég og sýp hveljur. Um leið og ljóst er orðið að Ljóðið hefur endanlega gefið upp öndina, er sýnilega dautt, hérnamegin og þarnamegin, stökkvum við yrkjandi út um gluggann. Eins og beljur að vori. í fjarska heyrist sungið: Raindrops keep falling on my head... 48 TMM 2004 -3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.