Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 42

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 42
Eiríkur Örn Norðdahl Ég fæ á tilfinninguna að Ljóðið sé í öndunarvélinni af því ljóðskáldin eru gegnsýkt af vemmilegheitum, ljóðandi út úr sér lífinu eins og lífið lifi í eyðunum, skera burt orð úr setningum þar til setningarnar sjálfar verða að daufum skugga sín sjálfra - ljóðið vart nema kviðlingurinn af sjálfu sér orti góður maður - og mig grunar að líf þessara skálda séu síður en svo sá dans og mikilfengleiki sem líf geta verið, að eyðurnar í skáld- skapnum séu til komnar af eyðilegum lífum skáldanna, eyðilegum hugum þeirra. Ég stend á fætur, borga kaffibollann, pakka saman lappanum og val- hoppa af stað í gegnum bæinn beinustu leið upp á heilsugæslustöð. Með beyg í hjarta. Nei, með ótta í hjarta. Líkt og röðulsetrið brennur ekki á mér. Á heilsugæslustöðinni er mér vísað á gjörgæsludeildina af vinalegum hjúkrunarfræðingi. Ég lít inn í stofuna gegnum rúðu á veggnum. Ljóðið er fölt, einhver hefur breitt yfir það fána lýðveldisins upp að haus og bundið það fast við stuðul og staf. Læknirinn, sem skyndilega stendur við hliðina á mér, segir í hálfum hljóðum: „Ég veit ekki hvort við getum gert nokkuð fleira. Við höfum haldið hvert ljóðakvöldið á fætur öðru, tæmt alla sjóði og keypt hverja skruddu sem hefur verið gefin út síðustu hundrað árin. Við höfum meira að segja reynt að líta undan til að sjá hvort það væri að þykjast. En allt kom fyrir ekki, ljóðið er vart með lífs- marki. Hefur ekki sagt neitt markvert í árafjöld, stamar upp úr sér Tím- anum og vatninu á góðum degi - stundum held ég það sé hreinlega ekki með réttu ráði - auk þess er höfuð þess þyngra en svo að herdeildir sjúkraliða fái lyft. Það ku nefnilega hellt fullt af myrkri.“ Ég dæsi. Kristján hafði kannski rétt fýrir sér? Er þetta formerkjavanda- mál? Maður blæs varla lífi í dauðar glæður, þegar hægt er að snúa sér að næsta bálkesti. Kveikja nýja elda. „Má ég líta inn?“ spyr ég og læknirinn opnar dyrnar fyrir mér. „Já. En hafðu hægt um þig, ljóðið er þreytt, og þrátt fyrir verkjalyfja- súpuna á það óhægt um tjáningu.“ Ég lofa og sver í bak og fyrir (Guð og Föðurlandið!), skýst eins og eldibrandur inn fyrir hurðina og skelli í lás á eftir mér. Læknirinn gapir framan í mig í gegnum rúðuna, furðu lostinn. Ég brosi, hneigi mig, og vind mér svo að sjúkrarúminu. Á hálfrar mínútu fresti heyrist píp í hjartalínuritinu, Ljóðið er með augun aftur, og slöngu í munninum. Ég losa hana varlega upp úr kokinu og hvísla að því ein- hverjar illa ígrundaðar ásakanir. Gerist dónalegur í orðavali, jafnvel svo að mér blöskrar. Svo tala ég hærra. En Ljóðið bærir ekki á sér. Ég ffeygi slöngunni á rúmið og læt mig detta niður í leðurstól við hliðina á sjúkra- 40 TMM 2004 -3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.