Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 105

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 105
Menningarvettvangurinn móðurkviði, jafnvel varla orðinn almennilegt fóstur, og sér foreldra sína gegnum glugga á krá þar sem þau eru að ræða um hvort þetta fóstur eigi að lifa eða deyja. Þegar Stephen ræðir þetta við móður sína seinna kemst hann að því að það sem réði úrslitum þennan löngu liðna dag var að hún sá barnsandlit gegnum rúðuna í kráarglugganum - barn í tíma. Sams konar upplifun lýsir Tómas Guðmunds- son í upphafsljóði Fljótsins helga (1950) þar sem rithöfundurinn hittir sjálfan sig sem barn á bökkum fljótsins - og man eftir því þegar hann sem ungur drengur hitti svip þess manns sem hann átti eftir að verða löngu síðar. Skynjun tveggja heima, kallar Tómas þetta fyrirbæri, en kannski er T.S. Eliot á bak við bæði dæmin með upphafslínum sínum í Kvartettunum íjórum (frá 1944): „Time present and time past / Are both perhaps present in time future, / And time future contained in time past.“ Altént vitnar McEwan í skáldið, atburðum sínum til skýringar. Enn einn sumarsmellurinn var endurútgáfa Máls og menningar á Áformum Frakkans Michels Houellebecq sem íslendingar kalla ástúðlega Mikkel Ulla- bjakk. Þessi einkennilega saga sýnir eindregnar sadískar tilhneigingar eins og áðurnefndar sögur en nær lesanda gersamlega á sitt vald, lætur hann engjast og arga af bræði, fleygja bókinni frá sér með hótunum um að lesa ekki staf meir en grípa hana svo umsvifalaust aftur og halda áfram. Hún sem sagt bítur bæði og stingur, eins og Kafka sagði að bækur ættu að gera, og örin eftir hana eru djúp. Það er afar erfitt að hætta að hugsa um hana að lestri loknum og jafnerfitt að tala um hana við ólesna. Kaffiborðsbók sumarsins var listaverkabókin YZT með málverkum Tolla og texta Ara Trausta Guðmundssonar (MM). Erlendir sem innlendir gestir urðu gersamlega hugfangnir af bókinni og friðlausir þangað til þeir höfðu eignast hana - og helst málverk eftir Tolla líka! Morgunblaðið breytti uppröðun efnis í aðalblaðinu í sumar og færði menn- ingarumfjöllun aftur fyrir minningargreinar. Áður byrjaði maður fremst og fletti fram að menningu og las hana, byrjaði svo aftast, las baksíðu, sjónvarps- dagskrá, bíóauglýsingar og Fólk og var bara talsverða stund að þessu. Nú rennir maður yfir forsíðuna, snýr svo blaðinu við og les baksíðuna og síðurnar fram að minningargreinum og er snöggur að því, eins og maðurinn í 10-11 auglýsing- unni. Lesbókin breyttist líka og þær breytingar hafa verið erfiðari, maður les ansi miklu meira í henni eftir að hún hækkaði í sentimetrum. Kannski hefur efnið aukist sem því nemur - 18% meira eins og stendur á kaffi- og kornflexpökk- unum sem eru hærri í loftinu en þeir venjulegu; líklegra er þó að það hafi batnað frá mínum sjónarhóli, eitthvað hafi gerst í ritstjórn efnis sem gerir að það höfðar meira til manneskju eins og mín. Vonandi á ég marga tvífara að þessu leyti svo að Lesbókin haldi áfram að vera svona ansi skemmtileg. Þegar þetta er skrifað er nýbúið að ráða Súsönnu Svavarsdóttur umsjónar- mann menningarefnis á Fréttablaðinu. Verður spennandi að fylgjast með þróun mála þar. Þeir sem lesa þýsku hafa kannski gaman af að lesa íslandsgreinar Henryks M. TMM 2004 • 3 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.