Fréttablaðið - 19.03.2016, Síða 2
Veður
Suðvestan 5-13 og stöku skúrir eða
jafnvel slydduél, einkum til fjalla,
en þurrt og bjart veður norðan- og
austanlands. Hiti 3 til 8 stig að
deginum, mildast á Norðaustur- og
Austurlandi. Sjá Síðu 60
Unnið að byggingu sjúkrahótels
Benidorm, Albir og
Calpe í apríl og maí.
Flogið með Icelandair
Vikuferðir í
vorsólina
Á mann m.v. 2 fullorðna í herbergi á Albir
Playa með hálfu fæði. Brottför 29. mars.
*Verð án Vildarpunkta 89.900 kr.
Verð frá
og 12.500 Vildarpunktar
79.900 kr.*
ViðSkipti „Þetta eru ekki bara
stjörnurnar heldur allt fylgdarlið
líka, það fylgir þessu öllu mikill
atgangur,“ segir Hjörtur Freyr Vig-
fússon, markaðsstjóri Securitas.
Dótturfyrirtæki Securitas, Servio,
sérhæfir sig í þjónustu við kvik-
mynda- og auglýsingafyrirtæki sem
koma til Íslands.
Þjónustan felst í akstri á sérút-
búnum glæsikerrum, öryggis- og
lífvarsla eins og að vera með vörð
við hótelið sem viðkomandi gistir
á eða hreinlega redda því sem þarf
að redda hverju sinni. „Okkar mottó
er að gestum okkar eigi að líða eins
og drottningum og kóngum,“ segir
Hjörtur og játar því að nóg sé að gera
í bransanum enda hafi eftirspurnin
aukist gífurlega síðustu árin í takt
við vinsældir Íslands sem tökustaðar.
Það eru sjö í föstu starfi hjá Servio
en fjórtán í viðbót eru í verktaka-
vinnu og kallaðir út þegar sinnt er
stórum verkefnum. Eins og þessa
dagana við Mývatni þar sem Holly-
wood-myndin Fast and the Furious
er tekin upp. Flestir starfsmenn eru
fyrrverandi lögreglumenn sem fara
svo í stranga sérþjálfun áður en þeir
taka til starfa hjá Servio.
„Við gefum ekkert uppi um gesti
okkar en ég get sagt að við erum
leiðandi í þessari þjónustu og séum
með mjög mikilvæga kúnna,“ svarar
Hjörtur kíminn þegar hann er
spurður hvort Justin Bieber og Bill
Gates hafi nýtt sér þjónustu fyrir-
tækisins. „Þagmælskan er mikilvæg
í þessu starfi. Það læra starfsmenn
okkar strax, þeir yrða til dæmis ekki
á gesti okkar nema á þá sé mælt. Það
er ekki þetta venjulega kumpánlega
íslenska spjall í boði.“ erla@frettabla-
did.is
Sérhæfa sig í þjónustu
við erlendar stjörnur
Servio sérhæfir sig í hágæða þjónustu sem felst í akstri, lífvörslu og almennum
„reddingum“ fyrir stórstjörnur. Erlendir kvikmynda- og auglýsingagerðarmenn
helstu viðskiptamenn. Markaður sem stækkar ört enda fjölgar stjörnunum hér.
Góður gangur er í byggingu sjúkrahótelsins á lóð Landspítalans við Hringbraut. Iðnaðarmenn voru að störfum þegar ljósmyndari Fréttablaðsins
átti þar leið um í gær. NLS Saga sér um byggingu nýja sjúkrahótelsins sem verður tekið í notkun árið 2017. Fréttablaðið/Vilhelm
Þagmælskan er
mikilvæg í þessu
starfi. Það læra starfsmenn
okkar strax, þeir yrða til
dæmis ekki á gesti okkar
nema á þá sé yrt.
Hjörtur Freyr Vignisson
markaðsstjóri Securitas
Fjölmiðlar Fréttablaðinu í dag
fylgir sérblaðið Komdu norður. Af því
tilefni er aukin dreifing á blaðinu á
Norðurlandi og blaðið gefið á sölu-
stöðum á landbyggðinni. Blöðin munu
fást á Olís Dalvík, Olís Ólafsfirði, Sam-
kaup Ólafsfirði og Samkaup Siglufirði.
– jhh
Komdu norður
fylgir í dag
„Sumir kaupa sér miða á Saga Class þótt það sé hægt að fá ódýrari sæti rétt fyrir
aftan. Það sama gildir um lúxusakstur,“ segir hjörtur sem hér stendur við einn af
bílum Servio. Fréttablaðið/anton
250
þúsund kostar sólarhrings
gæsla en allt eftir aðstæðum
og áhættu.
35
þúsund krónur kostar akstur
á flugvöllinn með glæsikerru.
lögreglumál Óskað er eftir vitnum
að umferðarslysi þar sem ekið var
á barn á reiðhjóli á Sundlaugavegi í
Reykjavík, móts við pylsuvagninn um
kl. 17.22 þann 1. mars síðastliðinn.
Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vin-
samlegast beðnir um að hafa samband
við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu
í síma 444-1000, senda tölvupóst í net-
fangið jonatan.gudnason@lrh.is eða
senda einkaskilaboð á fésbókarsíðu
embættisins. – jhh
Lýst er eftir vitni
ViðSkipti Tryggingafélagið Vörður
mun greiða 350 milljónir króna í
arð vegna starfsemi síðasta árs.
Þetta var ákveðið á aðalfundi
félagsins sem lauk nú fyrir
skömmu. Félagið skilaði methagn-
aði á árinu eða 658 milljónum
króna. Arðgreiðslan samsvarar
10,1 prósents ávöxtun eigin fjár.
Mikil umræða var uppi í
samfélaginu eftir að TM, VÍS
og Sjóvá kynntu að þau hygðust
greiða 9,6 milljarða króna í arð
vegna starfsemi síðasta árs, ríf-
lega tvöfaldan hagnað ársins. VÍS
og Sjóvá ákváðu bæði að lækka
arðgreiðslur ársins vegna umræð-
unnar.
Eigið fé Varðar nemur 3.475
milljónum króna. Iðgjöld jukust
um 8,5%, fjárfestingatekjur um
161% og heildareignir um 10,4% en
þær námu 11.330 milljónum króna
í árslok. – jhh
350 milljónir
greiddar í arð
DómSmál Geirmundur Kristins-
son, fyrrverandi sparisjóðsstjóri í
Keflavík, hefur verið ákærður fyrir
umboðssvik.
Ákæran er í tveimur liðum og
tengist lánafyrirgreiðslum upp á
samtals rúmar 780 milljónir króna.
Af þeim töpuðust um 730 millj-
ónir. Hann er ákærður fyrir að hafa
misnotað aðstöðu sína og stefnt
fé sjóðsins í verulega hættu þegar
hann lánaði einkahlutafélaginu
Duggi 100 milljón króna yfirdrátt-
arlán. Ekkert fékkst upp í kröfuna
vegna yfirdráttarlánsins.
Geirmundur er einnig ákærður
fyrir að hafa valdið félaginu veru-
legri fjártjónshættu þegar hann
sem stjórnarformaður dótturfélags
sjóðsins framseldi stofnfjárbréf í
Sparisjóði Keflavíkur, að verðmæti
rúmlega 683 milljónir króna, í lok
árs 2007 til félagsins Fossvogshyls
ehf. Ekkert endurgjald kom á móti
bréfunum. – ak
700 milljónir
töpuðust
1 9 . m a r S 2 0 1 6 l a u g a r D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð