Fréttablaðið - 19.03.2016, Síða 18

Fréttablaðið - 19.03.2016, Síða 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Ég ætlaði að hefja þessar hugleiðingar á einhverju fleygu og fáguðu. En ég er með hausverk, kaffið var að klárast, rafgeymirinn á bílnum er dauður og kló- settpappírinn er búinn. Eftirfarandi verður því að duga: Lobbíistar þessa lands hafa nú troðið hausnum á sér svo langt upp í sjálfhverfan óæðri endann á sér að þeir heyra ekki lengur að þeir hljóma eins og organdi smá- barn sem hendir sér í gólfið í nammideildinni í Hagkaup því mamma þess vill bara kaupa einn poka af gúmmí- körlum en ekki heilt þorp. Í fréttum er þetta helst: l Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar vill að stjórn- völd beiti sér í því að halda krónunni veikri svo bransinn hans græði sem mest. l Samtök iðnaðarins vilja ekki að neytendur geti keypt sér bjór í matvöruverslunum. Ástæðan er þó ekki lýð- heilsulegs eðlis heldur ráða arðsemissjónarmið för. Íslenskir bjórframleiðendur óttast að tapa markaðs- hlutdeild gagnvart erlendum framleiðendum því hingað til lands slysast annað slagið auglýsingar frá erlendum áfengisframleiðendum með erlendum fjölmiðlum. l Formaður Framsóknarflokksins nær ekki upp í nef sér yfir að ASÍ skuli eitthvað vera að pæla í hagsmunum neytenda þegar kemur að nýjum búvörusamningum. Hverjum er ekki sama um þessa neytendur? Það er svo margt í veröldinni sem okkur finnst sjálfsagt af vana einum saman. Okkur finnst sjálfsagt að himinn- inn sé blár, að það séu sjö dagar í vikunni, að Sjónvarps- fréttirnar byrji klukkan sjö. En hvað ef himinninn væri rauður? Hvað ef það væru bara fjórir dagar í vikunni? Hvað ef Sjónvarpsfréttirnar byrjuðu klukkan átta? Hvað ef í fréttum væri þetta helst: l Innflutningstollar hafa verið settir á ítalskt pestó eftir að Mörður Þjóðmundsson á Ysta-Túni hóf framleiðslu á íslensku hundasúru-pestói. Hundasúrurnar koma allar úr bæjarhlaðinu en pestóið inniheldur einnig extra virgin þorskalýsi, fíflamjólk, rifinn Skólaost frá Mjólkur- samsölunni og iðnaðarsalt frá Ölgerð Egils Skallagríms- sonar. l Slökkt hefur verið endanlega á internetinu á Íslandi að kröfu Samtaka íslenskra pistlahöfunda. Ómælt lesefni frá útlöndum hefur þótt veikja samkeppnisstöðu þeirra sem sinna ritstörfum hér á landi og grafa undan atvinnumöguleikum þeirra. Jórunn Tómasdóttir, tals- kona átaksins „Íslenskar skoðanir, já takk!“ telur að með aðgerðinni fjölgi í stéttinni sem nemur fingrum beggja handa. Rétt rúm vika er síðan þýðingar á erlendum bók- menntaverkum yfir á íslensku voru með öllu bannaðar til að vernda íslenska bókaritun. l Nemendur 10. bekkjar Álftamýrarskóla fóru í hungur- verkfall í kjölfar frétta þess efnis að kvikmyndainnflutn- ingskvótinn er uppurinn og frumsýningu myndarinnar X-Men: Apocalypse hefur verið frestað til næsta árs. Í staðinn munu kvikmyndahús landsins sýna nýjustu mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur 2 og sjálf- stætt framhald hennar, Hrafninn mígur – í Elliðavatn. l Alþingi samþykkti í gær frumvarp um svo kallaða „berskyldu“ en hún líkist herskyldu annarra landa nema í stað þess að bera vopn verður bermönnum gert að bera farangur erlendra ferðamanna sem sækja Ísland heim upp um fjöll og firnindi og tröppur gistiheimila sem ekki eru með lyftu. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir lögin mikilvægt skref í að viðhalda straumi ferða- manna hingað til lands og hámarka arðsemi greinarinn- ar. Á morgun hyggst Flokkur gráðugra hagsmunaaðila leggja fram breytingartillögur á frumvarpinu sem fela í sér útvíkkun á skyldum þeirra sem hljóta berkvaðningu. Verður bermönnum þá einnig gert að fara með íslenskar rímur fyrir erlenda gesti sé þess óskað, flytja þeim þjóð- lög á langspil, víkja úr rúmum sínum komi upp skortur á hótelplássum, teyma túrista um hættur hálendisins í ólum svo þeir fari sér ekki að voða og hreinsa upp saur þeirra sem kjósa að gera þarfir sínar undir berum himni. Myndum við láta þessa skálduðu hagsmunaaðila vaða yfir okkur á skítugum skónum? Krafa hinna raunveru- legu lobbíista er ekkert réttmætari. Íslenskar skoðanir, já takk! Við höfum aðstoðað fjölda Íslendinga í gegnum árin og viljum gjarnan aðstoða þig. Við höfum okkar fulltrúa á Íslandi og skrifstofu í Orlandó og erum reiðubúin til að aðstoða við kaup eða sölu eignar í Orlandó. Nú er hagkvæmt að kaupa og hagkvæm lán í boði. Okkar aðstoð og ráðgjöf kostar kaupanda ekkert. Endilega hafðu samband ef þú ert að spá og við munum taka vel á móti þér á Íslandi og/eða Orlandó. Ísland – Þórhallur Guðjónsson eign.i.florida@gmail.com S. 896-8232. Florida – Meredith Mahn LIVINFL@aol.com S. 001-321-438-5566. FLÓRÍDA - HÚSEIGNIR TIL SÖLU Hefur þú hugleitt að kaupa þér hús í Orlandó eða öðrum stað í Flórída ? Stóru tíðindin af ársfundi Seðlabankans var yfirlýsing Bjarna Benediktssonar fjármálaráð-herra um afnám hafta síðar á árinu.Yfirlýsingunni fylgdi engin útfærsla, önnur en sú að sérstakar varúðarreglur myndu leysa fjármagnshöftin af hólmi. Þannig ætti að girða fyrir að hér skapaðist sams konar ástand og fyrir 2008, sem endaði eins og allir muna með frjálsu falli krónunn- ar, gjaldeyrishöftum og algeru hruni efnahagslífsins. Það eru góð tíðindi að fjármálaráðherra telji okkur geta aflétt fjármagnshöftunum. Við skulum ekki gleyma að þau setja umtalsverðar skorður á líf venjulegs fólks og fyrirtækja í landinu. Takmarkanir á úttektum á erlendum gjaldeyri vegna utanferða snerta fjölskyldur á leið í sólarfrí. Bann við fjárfestingum í erlendum félögum eða lánveitingum milli landa koma við kaunin á atvinnulífinu, og tilvist gjaldeyrishafta fælir frá erlenda fjárfestingu. Síðast en ekki síst þá loka höftin lífeyrissjóðina inni á Íslandi, og ýta þannig undir bólumyndun bæði á hlutabréfa- og fasteignamarkaði. Lífeyrissjóðsfélagar og hagkerfið í heild hagnast á því að liðkað sé fyrir fjárfestingum sjóðanna, og annarra fjársterkra aðila, í útlöndum. Því má segja að það sé lífsspursmál fyrir heilbrigt hagkerfi til lengri tíma að afnema höftin. En það þarf að fara að öllu með gát. Hér má ekki skapast ástand þar sem peningar leita út í of miklum mæli með tilheyrandi þrýstingi á gjaldmiðilinn. Passa þarf að halda jafnvægi. Krónan hefur þegar styrkst talsvert síðustu mánuði, og ekki er gott að sjá fyrir áhrif áframhaldandi styrkingar á ferðamanna- strauminn. Það er ólíklegt að ferðamönnum fjölgi áfram um fjórðung á hverju ári ef gjaldmiðilinn styrkist til muna. Núverandi ríkisstjórn, í góðu samstarfi við Seðla- bankann, hefur haldið vel á spöðunum í efnahags- málum. Þar hafa utanaðkomandi aðstæður vissulega hjálpað til, svo sem íslenska ferðamannavorið og fisk- veiðarnar. Útkoman í samningum ríkisins við kröfuhafa spilar þó stærstu rulluna. Ísland er nú í hópi þeirra ríkja veraldar, sem búa við minnsta skuldabyrði, sé miðað við hlutfall af landsframleiðslu. Það er af sem áður var. Í þessu samhengi eru dylgjur á Alþingi um að for- sætisráðherra hafi leikið tveim skjöldum í þessum viðræðum í besta falli hjákátlegar, og í versta falli sjúk- dómseinkenni á fárveikri pólitískri umræðu. Fjármálaráðherra lauk ræðu sinni með orðunum „Thank you, and goodbye“, og vísaði í lausn mála gagn- vart erlendu kröfuhöfunum. Verkinu er hins vegar ekki lokið. Nú þarf skynsamlega útfærslu á afnámi gjaldeyrishaftanna. Ef rétt er haldið á spöðunum gætu skilnaðarorðin til Bjarna, ef til kæmi að hann léti af embætti fjármálaráðherra við næstu kosningar, orðið: „Thank you, goodbye and well done.“ Thank you, goodbye Í þessu sam- hengi eru dylgjur á Alþingi um að forsætis- ráðherra hafi leikið tveim skjöldum í þessum við- ræðum í besta falli hjákátleg- ar, og í versta falli sjúk- dómseinkenni á fárveikri pólitískri um- ræðu. 1 9 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð SKOÐUN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.