Fréttablaðið - 19.03.2016, Page 20

Fréttablaðið - 19.03.2016, Page 20
fótbolti Íslenska landsliðið leikur tvo æfingaleiki í þessum mánuði. Gegn Dönum þann 24. mars og svo gegn Grikkjum fimm dögum síðar. Þetta verða síðustu leikir liðsins áður en EM-hópurinn verður valinn 9. maí næstkomandi. Landsliðsþjálfararnir Lars Lager- bäck og Heimir Hallgrímsson til- kynntu 24 manna leikmannahóp í gær fyrir þessa leiki. Eiður Smári Guðjohnsen er á meðal þeirra leikmanna sem fá frí að þessu sinni. Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson snýr svo aftur eftir meiðsli. Þjálfararnir segja að 10-15 leikmenn fyrir utan þennan hóp komi til greina í EM-hópinn. „Það eru margir leikmenn að minna á sig þessa dagana með góðum leik og mörkum. Eftir því sem það verður erfiðara að velja hópinn þá erum við greinilega að gera eitthvað rétt í íslenskum fótbolta,“ segir Heimir Hallgrímsson. Andstæðingar Íslands í komandi leikjum eiga það sameiginlegt að hafa náð að vinna EM. Undankeppni EM að þessu sinni var ekki góð hjá þeim og þau mæta nú til leiks með nýja þjálfara. „Við viljum reyna að vinna leikina. Það er markmið í öllum leikjum. Við erum líka að horfa á samvinnu ákveð- inna leikmanna,“ segir Heimir en er óþægilegt að mæta liðum sem erfitt er að spá í hvernig muni spila? „Nei, ekki í þessu tilfelli. Þetta eru ekki mótsleikir og því er það að vissu leyti gott. Þau ætla að koma okkur á óvart og verður gaman að sjá hvernig við tæklum það. “ Stoltur tannlæknir Ísland er að undirbúa sig í fyrsta skipti fyrir þátttöku í lokakeppni stórmóts. Það er risavaxið verkefni. Reynt hefur verið að haga undirbúningi sem best þó svo verið sé að feta í spor sem íslensk knattspyrna þekkir ekki. „Ég er bara stoltur tannlæknir sem fæ að vera með þessum strákum í þessu. Ég held að enginn af okkur geri sér grein fyrir því hversu stórt þetta er. Hversu mikið áreiti þetta verður. Ég er mest hræddur um að við séum að fara fáliðuð og fávís inn í þetta verkefni,“ segir Heimir en liðið verður í það minnsta saman í fimm vikur. „Menn þurfa að vera ansi ferskir til að geta enn gefið af sér á fimmtu viku. Við erum að reyna að vanda okkur eins og við getum. Það er mikið álag á öllum. Við eigum eftir að reka okkur á og örugglega eitthvað sem við gerum vitlaust. Þess vegna er svo mikilvægt að vanda sig eins og hægt er.“ Reynir á nýja hluti Heimir segir að það muni reyna mikið á alla leikmenn. Bæði þá sem spila mikið og eins þá sem kannski spila ekki neitt. „Það er erfitt fyrir atvinnumann sem er forstjóri síns eigin fyrirtækis að fá ekki að taka þátt. Þess vegna er mikilvægt að við ræðum þessa hluti við strákana í þessari ferð. Að menn séu tilbúnir að fara á þeim forsendum að svo geti farið. Þetta er þáttur sem hefur aldrei reynt á hjá okkur því við höfum aldrei verið saman í fimm vikur.“ henry@frettabladid.is Lokaútkall fyrir Evrópumótið Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfarar tilkynntu í gær síðasta landsliðshóp sinn áður en EM-hópurinn verður valinn. Heimir segir að það muni reyna jafnt á þá sem spila og spila ekki á EM. Dreyminn. Hugur Heimis Hallgrímssonar er eðlilega að miklu leyti við EM í Frakklandi næsta sumar. FRéttablaðið/DaníEl www.odalsostar.is Þessi margverðlaunaði ostur hefur verið framleiddur frá árinu 1965 og rekur ættir sínar til danska bæjarins Maribo á Lálandi. Það sem gefur Maribo-ostinum sinn einkennandi appelsínugula lit er annatto-fræið sem mikið er notað í suðurameríska matargerð. Áferðin er þétt en bragðið milt með vott af valhnetubragði. Frábær ostur til að bera fram með fordrykk, í kartöflugratín eða á hádegisverðarhlaðborðið. MARIBO HLÝLEGUR Úrslitakeppni Domino’s-deild karla Stjarnan - njarðvík 62-65 Stjarnan: Al’lonzo Coleman 29/16 fráköst, Justin Shouse 14, Tómas H. Tómasson 8. njarðvík: Haukur Helgi Pálsson 20, Jeremy Atkinson 16/9 fráköst, Maciej Baginski 11. Njarðvík leiðir einvígið, 1-0. Haukar - Þór Þ. 64-67 Haukar: Brandon Mobley 25/8 fráköst, Emil Barja 15, Finnur Atli Magnússon 10/8 fráköst. Þór: Vance Hall 33/10 fráköst, Ragnar Braga- son 10, Halldór G. Hermannsson 8. Þór leiðir einvígið, 1-0. Helgin laugardagur 06.00 Formúla 1: tímataka Sport 12.35 Everton - arsenal Sport 2 14.25 Köln - bayern M. Sport 14.50 Chelsea - West Ham Sport 2 14.50 C. Palace - leicester Sport 4 16.25 Grindavík - Snæfell Sport 3 17.20 Swansea - aston Villa Sport 18.55 Zagreb - R. löwen Sport 2 19.40 Roma - inter Sport 19.40 inter - bologna Sport 2 Sunnudagur 04.30 Formúla 1 - Ástralía Sport 13.20 Southampt. - liverpool Sport 13.20 newcastle - Sunderl. Sport 2 14.55 Villarreal - barcelona Sport 3 15.50 Man City - Man Utd Sport 15.50 tottenham - bourn. Sport 2 16.25 augsburg - Dortmund Sport 5 16.50 Þróttur - FH Sport 4 17.25 Pick Szeged - Kiel Sport 3 19.00 Grindavík - KR Sport 19.25 Real Madrid - Sevilla Sport 2 19.40 aC Milan - lazio Sport 3 Markverðir l Hannes Þór Halldórsson, Bodö/ Glimt l Gunnleifur Gunnleifsson, Breiða- blik l Ögmundur Kristinsson, Hamm- arby l Ingvar Jónsson, Sandefjord Varnarmenn l Birkir Már Sævarsson, Hammarby l Ragnar Sigurðsson, Krasnodar l Kári Árnason, Malmö l Ari Freyr Skúlason, OB l Haukur Heiðar Hauksson, AIK l Hörður Björgvin Magnússon, Cesena l Sverrir Ingi Ingason, Lokeren l Hjörtur Hermannsson, IFK Göteborg Miðjumenn l Aron Einar Gunnarsson, Cardiff City l Emil Hallfreðsson, Udinese l Birkir Bjarnason, Sevilla l Jóhann Berg Guðmundsson, Charlton l Gylfi Þór Sigurðsson, Swansea l Ólafur Ingi Skúlason, Gencler- birligi l Theodór Elmar Bjarnason, AGF l Arnór Ingvi Traustason, Norr- köping Sóknarmenn: l Kolbeinn Sigþórsson, Nantes l Alfreð Finnbogason, Augsburg l Jón Daði Böðvarsson, Kaisers- lautern l Viðar Örn Kjartansson, Malmö Landsliðshópurinn ANÍtA kEppiR á HM Í kVöLD Aníta Hinriksdóttir keppir í kvöld í undanúrslitum í 800 metra hlaupi á HM innanhúss í portland í Bandaríkjunum. Sautján kepp- endur berjast um sex laus sæti í úrslitahlaupinu á morgun. Undan- úrslitahlaupið hefst klukkan 18.15 í kvöld, að íslenskum tíma. kLopp AftUR tiL DoRtMUND Dregið var í 8-liða úrslit í Meistara- deild Evrópu og Evrópudeildinni í gær. Í Meistaradeildinni drógust ríkjandi meistarar Barcelona gegn Atletico Madrid og paris Saint- Germain og Manchester City eigast við. Í Evrópudeildinni mætir Jürgen klopp, stjóri Liverpool, sínum gömlu lærisveinum í Dort- mund. Dráttinn í heild sinni má sjá inni á Vísi. 1 9 . M a r S 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r20 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð sport
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.