Fréttablaðið - 19.03.2016, Page 28

Fréttablaðið - 19.03.2016, Page 28
Margt fólk hefur lagt vinkonunum lið í söfnunum. Hér eru þær með meðlimum Besta flokksins í Ráðhúsi Reykjavíkur. Forsetafrú Íslendinga, Dorrit Moussaieff leggur vinkonunum lið og er haukur í horni. Elísabet og þær skella upp úr. Þær segja tengslanet sitt hafa hjálpað til í söfnunum. „Við erum allar ólíkar og með mismunandi tengslanet og áherslur. Þess vegna vinnum við líka vel saman. Það verður til ein- hver ofurkraftur þegar við vinnum saman.“ Í gegnum starfið hafa þær kynnst ýmsum hliðum heilbrigðiskerfisins. „Þetta land myndi ekki fúnkera í heilbrigðismálum og alls konar undirmálshlutum, ef það væri ekki fyrir konur og menn með hugsjón í þessum málum. Það er svo magnað að kynnast því hvað lítill hópur fólks er að gera mikilvæga hluti fyrir alls konar sem maður hafði ekki hugmynd um,“ segir Gróa og þær nefna Hringskonur sem dæmi. Grunnstoðirnar ekki í lagi Þær segja vel hægt að reka hér nánast fullkomið heilbrigðiskerfi ef grunnstoðir þess væru í lagi. Stjórnvöld þurfi einfaldlega að sameinast um það með þjóðinni að koma þessum hlutum í lag. „Við áttum okkur þann draum áður en við fórum af stað með eineltisátakið okkar að hrista hreinlega þjóðina aðeins saman um sterkt heilbrigðiskerfi. Okkur lang- aði svo að vera með þjóðarvitundarvakningu þar sem skilaboðin væru: hættum að rífast og förum að byggja upp,“ segir Elísabet. „Ef við hugsum það rökrétt þá erum við bara eins og lítil gata á Manhattan, 300 þúsund manna þjóð. Við getum alveg græjað þetta ef viljinn er fyrir hendi. Viljinn er hjá öllum að búa í landi þar sem er hugsað vel um gamla fólkið okkar og þá sem eru veikir. Börnin í landinu. En einhvern Þær segja að á meðan hjartað sé með, þá haldi þær áfram að safna til góðgerða. Páll Óskar Hjálmtýsson aðstoðar í símasöfnun. Á blaðamannafundi átaksins, hvert og eitt átak er kyrfilega kynnt. veginn náum við að gera þetta svo flókið en þetta er svo einfalt,“ segir Guðný og heldur áfram: „Það hefur aldrei verið settur eins mikill peningur í heilbrigðis- kerfið eins og árið 2015, en samt er þetta svona.“ „Það er vegna þess að kerfið hefur verið í svo miklu svelti lengi og margt sem hefur setið á hakanum. Þetta verður að vera í lagi – því ef þjóðin sameinast ekki um að setja heilbrigðismál í fyrsta sæti þá á hún ekki neitt. Heilbrigður maður á þúsund óskir en veikur maður eina,“ segir Elísabet. Reiknað með framlögum Árið 2013 söfnuðu þær fyrir sérstakri bráðageð- deild á Landspítalann og fundu þá sterkt fyrir þessu. „Við ætluðum að gera þessa deild huggulega en þá þurftum við að byrja á að kaupa svona hluti eins og sprinklerkerfi. Það voru alls konar hlutir sem sjást ekki en þurfa að vera í lagi. Það fór fullt af peningum í þannig hluti,“ segir Guðný. „Guðný átti einmitt fræga setningu þar þegar hún sagði að þeir myndu ekki einu sinni fá að opna pitsustað þarna. Það er bara þannig ástand á Landspítalanum í dag að það yrði ekki opnaður pitsustaður þar.“ Stundum hefur verið talað um að það ætti að vera hlutverk ríkisins að endurnýja tæki á spítalanum en oftar en ekki er það fyrir tilstilli safnana sem slík tæki eru keypt. „Ef grunnstoðir í heilbrigðiskerfinu væru í lagi og væru sterkar þá er ekkert mál að safna fyrir einu og einu tæki. Það er bara svo mikið í rúst undir þessu öllu,“ segir Elísabet. Það er bara þannig ástand á Landspítal- anum í dag að það yrði ekki opnaður pitsustaður þar. Guðný Pálsdóttir ↢ 2008 Krabba meins félag Íslands Ríflega 50 milljónir kr. söfnuðust 2009 Styrktar félag  krabba meins sjúkra barna  Ríflega 54 milljónir króna söfnuðust auk ýmissa gjafa og annarra framlaga 2010 ↝ Ljósið Yfir 40 milljónir króna söfnuðust 2011 Neistinn Ríflega 40 milljónir króna söfnuðust 2012 Dagur og Nótt Yfir 100 milljónir króna söfnuðust 2013 Bráðageðdeild á Land spít alanum 2015 Samskiptasetur fyrir fórnar lömb eineltis Vinkonurnar hafa safnað miklum fjárhæðum til styrktar mörgum góðum málefnum ↣ „Auðvitað er það pirrandi. Það er líka frústrerandi fyrir okkur og aðra sem standa fyrir söfnunum til að styrkja heilbrigðiskerfið að það er nánast reiknað með svona framlögum. Við viljum ekki að það sé gert ráð fyrir að við söfnum 50-100 milljónum á ári. Það á ekki að vera þannig í svona ríku samfélagi.“ Þjóðin vill heilbrigðismálin í lag „Við erum samt ekki að tala heilbrigðiskerfið niður, því það er þrátt fyrir allt frábært og fullt af góðum hlutum sem virka vel. Starfsfólkið er einstakt,“ segir Gróa. „En við teljum samt mikilvægt einmitt að sameinast um þetta verkefni að koma öllu í lag, það er svo lítið mál, við þurfum bara að henda okkur í það. Þjóðin öll vill að þessi mál séu í lagi.“ Árið 2013 ákváðu þær að hafa átakið á tveggja ára fresti og sjá fyrir sér að hafa einnig sjóð sem væri hægt að veita úr minni fjárhæðir til fleiri málefna. „Núna býður Orkan upp á orkulykil með nafni Á allra vörum á. Þar fer ein króna af hverjum bensínlítra til okkar og svo fáum við 2.500 krónur þegar hver lykill hefur keypt 250 lítra. Þetta fer í sérstakan jólasjóð hjá okkur sem við ætlum að deila út um næstu jól til verðugs málefnis – og við hvetjum alla til að ná sér í Á allra vörum Orkulykil.“ „Þegar við svo við lítum til baka, er gaman að sjá breytinguna sem hefur orðið þegar góðum málum er komið á framfæri og fleiri og fleiri nota áhrif og kraft markaðssetningar í þeim efnum. Það spretta nánast upp á hverjum degi ýmis góðgerðarverkefni og það er gott að sjá að við höfum haft áhrif þar líka.“ 1 9 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r28 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.