Fréttablaðið - 19.03.2016, Síða 31

Fréttablaðið - 19.03.2016, Síða 31
Sjáðu fermingarbörn bregðast við þessari gjöf frá 1986 á arionbanki.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 6 -0 6 1 9 Framtíðarreikningur – í fullu gildi í framtíðinni Með því að leggja fermingarpeningana inn á Framtíðarreikning auðveldar þú þér að láta framtíðardraumana rætast. Fermingargjafir eldast misvel og með því að spara tryggir þú að gjöfin þín nýtist í framtíðinni. Framtíðarreikningur Arion banka ber alltaf hæstu vexti verðtryggðra sparnaðarreikninga okkar og er bundinn til 18 ára aldurs. Ef 30.000 kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning leggjum við 5.000 kr. á móti. er allt frekar leiðinlegt. Flatir akrar og skógar sem er raðað eftir kerfum. Það er svo mikils virði að viðhalda ósnertu umhverfi eins og á Íslandi,“ útskýrir hann. „En þegar fólk er alið upp í samfé- lagi eins og Hafnarfirði þá kann það ekki að meta hraunið og það er alveg eðlilegt. Fólk verður samdauna því sem það er vant. En allar borgir og allir bæir alls staðar í heiminum, þú veist, ef hraun væri í miðri Barselóna væri það auðvitað ómetanlegt. Ef hluti New York yrði að hluta samofinn hrauni yrði það geðveikt. Við búum við svo mikla töfradraumaforgjöf og við sjáum það ekki einu sinni. Fólk sér ekki fegurðina í bakgarðinum hjá sér. Það vill bara valta yfir hraunið en finnst kannski Alparnir miklu fallegri því það sér Alpana bara á myndum eða fer þangað í frí. Það hefur ekki fjar- lægðina til að sjá þetta eins og gestir sjá þetta. Þannig að ég skil það rosalega vel, en mig langar svo ofboðslega til að sýna fólki hvað það er með í hönd- unum hérna á íslandi, svo við glutrum því ekki niður. Það er svo mikilvægt að við klúðrum því ekki.“ Hættum að kíta Agli finnst gott að vera á Íslandi, en ætlar ekki að flytja heim í bráð. „Ég hef samt 1000 prósent trú á framtíð Íslands. Það eru svo mörg tækifæri á þessu landi. Ég held að fólk þurfi bara að sýna hugrekki og brjótast út úr þessum hefðbundnu kerfum. Það fer ofboðsleg orka í rifrildi um hluti sem skipta ekki höfuðmáli. Við höfum svo margt mikilvægt að gera að við höfum ekki tíma til að kýta,” segir Egill og brosir. Erum við neikvæð og þrasgjörn? „Nei, mér finnst Íslendingar ekkert endilega neitt rosalega neikvæðir. Það væri bara ofboðslega gaman ef allir gætu séð stóru myndina. Hvar Ísland stendur í alþjóðasamhengi, hvað er sérstakt við Ísland, tækifærin sem við höfum í höndunum til að gera eitt- hvað stórbrotið hérna. Ég skil mjög vel að fólk sem býr hérna sjái ekki stóru myndina. Eins og að verða samdauna hrauninu. Ég sé ekki mína stóru mynd, ég sé mig ekki eins og aðrir sjá mig og Íslendingar sjá Ísland ekki utan frá heldur.“ Náttúran njóti vafans Hann segir reyndar fara í taugarnar á sér hvernig sumir tali um ferðamenn- ina. „Ég er auðvitað alveg sammála því að náttúran eigi að fá að njóta vafans. Hún er ein okkar stærstu auðlinda. Auðvitað mega þessir staðir ekki eyðileggjast, en mér finnst hvimleitt hvernig er stundum talað um ferða- fólk, sem ég vil kalla gesti. Flest er þetta vel menntað, upplýst fólk sem hefur unnið hörðum höndum, safnað sér peningum til að heimsækja þetta land og sjá það. Mér finnst stundum talað um þessa gesti með óvirðingu. Það er ábyggilega farsælla að sýna þeim meiri virðingu. Það á raunar við um hvort tveggja, landið og gestina. Við eigum ekki Ísland. Ísland tilheyrir heiminum á vissan hátt og við erum umsjónar- menn þess. Við getum og eigum að halda í okkar sérkenni, svo áfram haldi að vera áhugavert að koma hingað.“ Verðmætasta svæðið í höfuð- borginni Hann tekur dæmi um miðbæ Reykja- víkur, hið alræmda póstnúmer 101. „101 held ég að sé eitt verðmætasta svæði Í höfuðborginni. Þessi gömlu, fjöllita hús gera borgina okkar svo ótrúlega áhugaverða. Ég myndi ekki vilja skipta þeim út fyrir 25 Hótel Borg- ar-byggingar, eins og forsætisráðherra hefur verið að leggja til. Slíkar bygg- ingar er hægt að finna í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, í þýskum borgum og raunar alls staðar í kringum okkar. Til hvers að apa eftir það sem finnst þar? Ég hef reyndar mjög sérstaka afstöðu í þessum málum, en ég vil ný hús með miklu fjölbreyttara yfirborði. Byggingar 20. aldarinnar eru alltof flatar og það er ómanneskjulegt. Stór hluti heilans er til að greina umhverfi – stór hluti heilans greinir andlit á fólki og stærsti hlutinn greinir hvað er að gerast í augunum – það sama á að gerast þegar þú stendur fyrir framan byggingu. Ef húsið er bara flatt, þá er það ekkert spennandi. Þá verður þú bara flatur og óspennandi líka. Ég vil hvetja arkitekta 21. aldarinnar til að gera áhugaverðari yfirborð á húsum. Það er nefnilega ekki bara eigandi hússins sem á að njóta þess, heldur allir sem horfa á það,” segir Egill. Vírus sem þarf að hörfa „Allir þeir sem ganga fram hjá hús- unum þurfa að njóta þeirra líka. Bygg- ingarreglugerðir snúast um hvað hús eru há og mörg en það vantar nefnd sem verndar hagsmuni þeirra sem ganga um göturnar og eiga rétt á að umgangast byggingar sem gerðar eru af meiri hugsjón en nú er gert. Borg er það leiksvið þar sem leikritið „lif okkar“ fer fram.  og leiksviðið er mikilvægur hluti af áhugaverðu leik- riti. Það þekkja allir. Einfalt yfirborð húsa og bygginga er alltof ráðandi. Það er orðið eins og einhver vírus sem þarf að hörfa. Það þarf meira af byggingum með spennandi yfirborð – að fara fram á metnaðarfullar byggingar. Og því er gott að ráðherra blandi sér í málið, skraut er orð sem arkitektar lærðu að hata. En ef skraut væri óþarfi þá væru allir fuglar jarðarinnar gráir og án lit- brigða. Yfirborð hluta, litur og smá- atriði, hlutföll og línur fela í sér mikið af upplýsingum sem geta verið mikil- vægar fyrir sálarlíf borgarbúa og gesti þeirra. Við eigum að læra að skoða landið utan frá, gera þjóðgarð, vera fordæmi um mannúð og taka á móti fleira flóttafólki í nauð, virða gestina sem heimsækja okkur og styðja upp- byggingu margvíslegra fyrirtækja í landinu,“ heldur Egill áfram. Hann segir pólitík ekki gerast inn á þingi. „Hún byrjar og endar úti í samfélaginu, í umræðunni. Fólk er of feimið til að tjá sig um þessi efni og ætti að gera það oftar.“ Ef hluti NEw York Yrði að hluta samofiNN hrauNi Yrði það gEðvEikt. við búum við svo mikla töfra- draumaforgjöf og við sjáum það Ekki EiNu siNNi. h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 31l A U g A R D A g U R 1 9 . m A R s 2 0 1 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.