Fréttablaðið - 19.03.2016, Síða 67
VIÐ MAT Á HÆFI UMSÆKJENDA LÍTUR VALNEFNDIN
MEÐAL ANNARS TIL EFTIRFARANDI ATRIÐA:
• Fjárhagslegt sjálfstæði, reynsla og þekking eða nám
sem nýtist í starfi.
• Traust og gott orðspor.
• Þekking á starfsemi fjármálafyrirtækja.
• Reynsla af stjórnun, rekstri og stefnumótun.
• Sérþekking á sviði áhættustefnu s.s. markaðs- og lánsáhættu.
• Sérþekking á sviði innra eftirlits og reikningsskila.
• Sérþekking á sviði lögfræði.
UMSÆKJENDUR ÞURFA JAFNFRAMT AÐ
UPPFYLLA EFTIRFARANDI SKILYRÐI:
• Vera lögráða og hafa ekki á síðustu fimm árum
verið úrskurðaðir gjaldþrota.
• Hafa ekki í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm
á síðustu tíu árum fyrir refsiverðan verknað.
• Uppfylla kröfur um óhæði, þ.e. þeim er ekki heimilt að vera
starfsmenn eða stjórnarmenn hjá þeim sem fara með yfirráð
yfir öðrum viðskiptabönkum eða sparisjóðum, eru ekki
starfsmenn eða stjórnarmenn hjá öðrum viðskiptabönkum
og sparisjóðum eða dótturfélögum þeirra, eru ekki makar
stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra nokkurra framan-
greindra aðila eða skyldir þeim í beinan legg eða fyrsta legg
til hliðar. Það sama gildir ef viðkomandi sinnir reglubundið
hagsmunagæslu eða ráðgjafastörfum fyrir framangreinda
aðila eða hefur meirihluta tekna sinna af viðskiptum við þá.
Stjórnarmenn og starfsmenn fjármálafyrirtækis mega ekki
eiga sæti í stjórnum annars eftirlitsskylds aðila eða aðila sem
eru í nánum tengslum við hann.
Bankasýslan fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum samkvæmt lögum nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins.
Fer stofnunin með 100,0% eignarhlut í Íslandsbanka hf., 98,2% eignarhlut í Landsbankanum hf., 49,5% eignarhlut í
Sparisjóði Austurlands hf. og 13,0% eignarhlut í Arion banka hf.
Stjórn Bankasýslu ríkisins skipar sérstaka valnefnd, sbr. 7. gr. laga nr. 88/2009, sem tilnefnir aðila fyrir hönd ríkisins í stjórnir
fjármálafyrirtækja. Bankasýsla ríkisins óskar formlega eftir tilnefningum valnefndar um stjórnarmenn fyrir stjórnarkjör í
hlutaðeigandi fjármálafyrirtækjum.
Samkvæmt ákvæði 7. gr. laga nr. 88/2009 styðst valnefnd við starfsreglur við mat á hæfni, menntun og reynslu einstaklinga sem til
greina koma til setu í stjórnum fjármálafyrirtækja fyrir hönd ríkisins. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á heimasíðu Bankasýslu ríkisins.
Við val á einstaklingum sem tilnefndir eru í stjórnir fjármálafyrirtækja tekur valnefndin mið af yfirsýn, þekkingu og reynslu
viðkomandi í tengslum við fyrirtækjarekstur og starfsháttum fjármálafyrirtækja. Valnefndin skal leitast við að tryggja að í
bankaráðum og stjórnum fyrirtækja sitji sem næst jafnmargar konur og karlar.
Ennfremur er vakin athygli á 29 gr. a. laga nr. 161/2002 um
fjármála fyrirtæki sem varðar mögulega hagsmunaárekstra
í tengslum við lánveitingar.
Stjórnarmenn fjármálafyrirtækja þurfa að gangast undir og
standast hæfis mat Fjármálaeftirlitsins.
Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum
til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum.
Bankasýsla ríkisins er sérstök
ríkisstofnun með sjálfstæða
stjórn sem heyrir undir
fjármála- og efnahagsráðherra
og fer með eignarhluti ríkisins í
fjármálafyrirtækjum í samræmi
við lög, góða stjórnsýslu- og
viðskiptahætti og eigendastefnu
ríkisins á hverjum tíma.
Áhugasamir einstaklingar sem telja
sig uppfylla framangreind skilyrði eru
hvattir til að senda ferilskrár ásamt
upplýsingum um ofangreind atriði til
valnefndar Bankasýslu ríkisins á netfangið
valnefnd@bankasysla.is. Óskað er eftir
að ferilskrár og umbeðnar upplýsingar
berist eigi síðar en 30. mars nk. Þeir
einstaklingar, sem sent hafa ferilsskrár sínar
eða boðið sig fram til stjórnarsetu með
öðrum hætti fyrir 1. júní 2015, eru beðnir
um að endurnýja áhuga sinn með pósti til
valnefndar ef þeir gefa áfram kost á sér til
setu í stjórnum fjármálafyrirtækja.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson,
forstjóri Bankasýslu ríkisins, sími 550-1700.
Viltu vaxa með okkur?
Söludeild Skaginn 3X
Sölumaður í söludeild fyrirtækjanna í Reykjavík og á Akranesi.
• Starfsmaður skal hafa marktæka reynslu
og brennandi áhuga á sölustarfi.
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
• Önnur tungumálakunnátta mikill kostur.
• Hafa þekkingu á vinnslu- og framleiðslutækni.
Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Árnason
framkvæmdastjóri í síma 897 1403.
Umsóknir skulu berast í netfang
halldor@skaginn3x.com fyrir 4. apríl.
Systurfyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi og 3X Technology ehf. á Ísafirði framleiða
og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir matvælaiðnað á alþjóðamarkaði og er viðskiptavini þeirra að finna
víðsvegar um heiminn. Tæknistig fyrirtækjanna er hátt en þar vinna samtals um 150 manns í þremur
starfsstöðvum sem eru um 10.000m2 að stærð. Félögin hafa vaxið umtalsvert síðustu misseri en
frumkvöðla- og nýsköpunarandinn hefur viðhaldist allt frá fyrsta degi. Áhersla er enn sem fyrr lögð á að
bjóða gæðavörur og ryðja braut nýrrar tækni sem færir viðskiptavinum og umhverfinu verulegan ávinning.
Vegna aukinna umsvifa fyrirtækjanna leitum við að nýjum starfskröftum.
Þorgeir & Ellert hf.
Vélvirkjar, stálsmiðir, suðumenn og
aðstoðarmenn við framleiðslu í járniðnaði
á Akranesi.
Nánari upplýsingar veitir Valgeir Valgeirsson
yfirverkstjóri í síma 896 0180.
Umsóknir skulu berast í netfang
verkstjorar@skaginn3x.com fyrir 4. apríl.
Skaginn hf.
Vélvirkjar, stálsmiðir, rennismiðir, suðumenn
og aðstoðarmenn við framleiðslu á vörum
úr ryðfríu stáli á Akranesi.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn R. Ingason
yfirverkstjóri í síma 896 0182.
Umsóknir skulu berast í netfang
svenni@skaginn3x.com fyrir 4. apríl.
skaginn3x.is