Fréttablaðið - 19.03.2016, Side 98
Öll fjölskyldan ætti að finna eitthvað
við sitt hæfi á skíðasvæði Dalvík-
ur. „Við verðum með ævin týraland
og þrautabrautir fyrir börnin og
bretta- og skíðagarð fyrir þá sem
eru lengra komnir. Neðstu brekk-
urnar eru góðar fyrir byrjendur
og börn en ofar eru fínar brekkur
fyrir lengra komna. Hér er því eitt-
hvað fyrir alla,“ segir svæðisstjór-
inn Kári Ellertsson. Meðal viðburða
yfir páskana er kvöldopnun á skír-
dag og troðaraferðir upp á Böggvis-
staðafjall. Sömuleiðis heldri manna
mót og páskaeggjamót fyrir krakk-
ana á páskadag svo eitthvað sé nefnt.
Aðspurður segir Kári veturinn
hafa verið með besta móti. „Hér
hefur verið mikill snjór og margar
skíðaleiðir í boði. Troðnu brekkurn-
ar hafa sennilega aldrei verið fleiri
en nú og svo hafa gönguskíðahring-
irnir okkar verið mjög vinsælir.“
Svæðið hefur verið opið í yfir 80
daga á tímabilinu. Aðspurður segir
Kári það með betra móti en í meðal-
ári er opið í um 100 daga frá byrjun
desember og út apríl.
Kári segir svæðið búa við mikla
veðursæld. „Það stendur svo lágt
og þar af leiðandi er oft miklu betra
veður hjá okkur en á skíðasvæðun-
um í kring. Á það sérstaklega við ef
það blæs að sunnan eða suðvestan.
Þá getum við stundum haft opið á
meðan það er lokað í Hlíðarfjalli og
á Siglufirði.“
Í skíðaskálanum, sem ber nafnið
Brekkusel, er veitingasala auk þess
sem skálinn er leigður út til skóla-
hópa, félagsmiðstöðva og vinnu-
staðahópa. „Það hefur verið nóg að
gera í því í vetur en um páskana er
það þó meira fjölskyldufólk sem á
leið hérna um,“ segir Kári og tekur
fram að verð á skíðaleigunni og
lyftukortum sé með hagstæðara
móti.
Hægt er að nálgast allar nánari upp-
lýsingar um páskadagskrána á ski-
dalvik.is3
Skemmtileg páskadagskrá
fyrir alla fjölskylduna
Skíðafélag Dalvíkur verður með fjölbreytta dagskrá í Böggvisstaðafjalli um
páskana. Færið hefur verið með besta móti og tilvalið að skella sér Norður á skíði.
Bjartur er lukkudýr Skíðafélags
Dalvíkur og lætur stundum sjá sig í
brekkunum.
Margar skíðaleiðir eru í boði og hafa troðnu leiðirnar aldrei verið fleiri en í ár.
Hrísey í Eyjafirði nýtur sífellt
meiri vinsælda meðal innlendra
og erlendra ferðamanna, sérstak-
lega yfir sumartímann. Eyjan er
næststærsta eyja við Íslands-
strendur, á eftir Heimaey, og
liggur nokkrum kílómetrum fyrir
utan Árskógssand, þaðan sem
ferjan Sævar siglir til Hríseyjar
nokkrum sinnum á dag. Sigling-
in til eyjarinnar tekur bara um
fimmtán mínútur og því er heim-
sókn þangað skemmtileg viðbót
við ferðalagið á Norðurlandi að
sögn Lindu Maríu Ásgeirsdóttur
hjá Ferðamálafélagi Hríseyjar.
„Helsta aðdráttarafl Hríseyj-
ar er umgjörðin og sérstaðan. Við
erum á eyju og hefur siglingin
hingað mikið að segja enda ekki
margir staðir á Íslandi sem siglt
er til. Svo er það kyrrðin, fugla-
lífið og síðast en ekki síst náttúr-
an og fegurðin.“
Mikil aukning ferðamanna
Flestir ferðamenn sem heim-
sækja eyjuna koma í dagsferð-
um og hingað til hafa Íslending-
ar verið í meirihluta. Það er þó
að breytast að sögn Lindu Maríu.
„Nú erum við að fá ferðamenn
allt árið sem ekki þekktist fyrir
4-5 árum. Segja má að aukning-
in sé meiri meðal erlendra ferða-
manna og einnig hefur aukist að
hópar komi til eyjarinnar og eru
það þá bæði skipulagðar göngu-
ferðir og einnig af skemmtiferða-
skipum.“
Þótt eyjan sé ekki stór er
margt að skoða að sögn Lindu
Maríu. „Enginn ætti að sleppa
því að skoða hús Hákarla-Jör-
undar sem er safn hér í eyjunni.
Það er í elsta húsi Hríseyjar sem
var byggt af hákarlaveiðimann-
inum Jörundi Jónssyni. Svo má
nefna safnið Holt sem sýnir ís-
lenskt alþýðuheimili en þar mæt-
ast gamli og nýi tíminn á fallegu
heimili Öldu heitinnar Halldórs-
dóttur. Hér er einnig stórglæsi-
leg sundlaug með útsýni yfir
Eyjafjörðinn, fín matvöruversl-
un og veitingahús. Víða um eyj-
una má finna fínar gönguleiðir
með upplýsingaskiltum um nátt-
úru, gróður og margt fleira. Svo
er hér fjölbreytt fuglalíf og ekki
síður gott mannlíf.“
Hápunktur sumarsins
Fjölskylduhátíðin í Hrísey hefur
verið haldin óslitið frá árinu 1997
og er hápunktur sumarsins. „Hún
er haldin aðra helgina í júlí og þá
koma brottfluttir íbúar, sumar-
húsaeigendur og fleiri gestir
saman og skemmta sér yfir helg-
ina. Fjölmargir fastir viðburð-
ir eru á hátíðinni en einnig er
reynt að brydda upp á einhverju
nýju árlega. Fastir liðir eru t.d.
óvissuferðir á föstudagskvöldinu,
fjöruferð með Skralla trúð, trakt-
orsferðir og kvöldvaka.“
Hríseyjarferjan Sævar fer á
tveggja tíma fresti allt árið frá
Árskógssandi, sem er um 35 km
frá Akureyri. Ferðamálafélag
Hríseyjar heldur úti heimasíð-
unni hrisey.is þar sem finna má
allar nauðsynlegar upplýsingar
um Hrísey.
Leynda perlan í Eyjafirðinum
Heimsókn til Hríseyjar svíkur engan en þangað siglir ferjan Sævar nokkrum sinnum á dag. Í Hrísey má finna náttúrufegurð, fjölbreytt
fuglalíf, skemmtileg söfn og ekki síst einstaka kyrrð. Fjölskylduhátíðin í Hrísey er haldin í júlí og er hápunktur sumarsins í eyjunni.
Traktorinn er eitt helsta einkenni Hríseyjar enda lítið um
hefðbundna bíla þar.
Falleg náttúra, fjölbreytt fuglalíf og skemmtilegt mannlíf einkenna Hrísey.Fjöruferð með Skralla trúði svíkur engan en hún er fastur
liður á Hríseyjarhátíðinni. MYNDir/FErÐAMÁLAFÉLAG HrÍSEYJAr
SUNDLAUGIN
Á AKUREYRI
Va t n a v e r ö l d f j ö l s k y l d u n n a r
Opið á skírdag, föstudaginn langa,
laugardag og páskadag 9.00-19.30.
Annar í páskum opið 9.00-18.30.
www.visitakureyri.is
Street map
Þórunnarstræti
Ka
up
va
ng
ss
tr
æ
ti
SUNDLAUGIN
Á AKUREYRI
KoMDu NorÐur Kynningarblað
19. mars 201610