Fréttablaðið - 19.03.2016, Side 102
Hér á Akureyri erum við einstaklega metnaðarfull þegar kemur að pylsum
og skyndibita almennt og athugaðu að hér tölum við um pylsu en ekki pulsu.
Í fyrsta lagi er pylsa með öllu ekki pylsa með öllu nema á henni sé kokteilsósa.
Hallgrímur Sigurðsson
„Það er nú þetta sem setur lit á til
veruna, að vera pínulítið skrítinn í
mat,“ segir Hallgrímur Sigurðsson,
matreiðslumeistari, veitingamaður
og Akureyringur, spurður út í mat
ardynti sveitunga sinna en Akur
eyringar eiga sér ríkulega matar
menningu sem getur komið gest
um á óvart. Hallgrímur er öllum
norðlenskum matarhnútum kunn
ugur, eigandi fjölda veitingastaða
í bænum og hefur einnig gert yfir
sextíu sjónvarpsþætti um íslenska
matarmenningu fyrir N4.
Kokteilsósudraumur
„Hér á Akureyri erum við einstak
lega metnaðarfull þegar kemur
að pylsum og skyndibita almennt
og athugaðu að hér tölum við um
pylsu en ekki pulsu. Í fyrsta lagi
er pylsa með öllu ekki pylsa með
öllu nema á henni sé kokteilsósa.
Ef hana vantar er þetta bara orðið
að pulsu,“ segir Hallgrímur sposk
ur og gefur ekkert fyrir þann sið að
sprauta sinnepinu ofan á pylsuna.
„Það að setja allt undir pylsuna er
einfaldlega snyrtilegra og hent
ugra á allan máta. Það er ekki gott
að borða pylsu með skegg ef sósa
er ofan á. Djúpsteikta pylsan, með
osti, kryddi og frönskum í brauðinu
er sérstaklega góð akur eyrsk út
færsla á pylsu. Hún er algjör spari
matur hjá mér,“ segir Hallgrímur
en þar með eru ekki allar útfærslur
á pylsu upptaldar. „Í pylsuvagnin
um í Hafnarstræti fást núna pylsur
með bökuðum baunum, fermingar
frönskum, steiktu beikoni og ýmsu
fleira spennandi meðlæti.“
Béarnaise-höfuðborg Íslands
Akureyringar eru sem sagt hrifnir
af kokteilsósu, en þeir elska béarn
aisesósu að sögn Hallgríms. Hann
kallar Akureyri béarnaisehöfuð
borg Íslands. „Það er ekki til sá
réttur hér í bænum sem ekki er
búið að troða henni á. Þetta jaðr
ar við ofnotkun. Béarnaiseham
borgarar, béarnaisepitsur, béarn
aisekartöflusalat! Ég hef reynd
ar ekki séð hana enn þá á pylsu í
brauði, en maður veit aldrei.“
Borgari með frönskum á milli
„Þar erum við aftur komin að þæg
indunum. Af hverju að hafa mat í
tveimur ílátum ef það er hægt að
koma honum fyrir í einu?“
Laufabrauð með kúmeni
Laufabrauð er upprunnið á Norður
landi þó það eigi vinsældum að
fagna víðar um landið á jólum. Ak
ureyringum tekst þó að setja eigið
tvist á það, kúmen.
„Laufabrauð með kúmeni er
sérstakt og til dæmis í minni fjöl
skyldu er laufabrauð ekki laufa
brauð nema í því sé kúmen,“ segir
Hallgrímur. „Kúmen vex villt í
Svarfaðardal og ég held jafnvel að
rekja megi alla kúmennotkun Ís
lendinga beinustu leið í Svarfaðar
dalinn.“
Ein með öllu nema … kokteilsósu?
Akureyringar eiga sér ríkulega matarmenningu sem getur komið leikmönnum á óvart, þegar þeir finna franskar kartöflur milli laga í
hamborgaranum og kokteilsósu á pulsu með öllu! Við fengum Hallgrím Sigurðsson matreiðslumeistara til að svara fyrir þessa dynti.
Hallgrímur Sigurðsson matreiðslumeistari segir Akureyringa leggja mikinn metnað í skyndibita. mynd/Auðunn nÍElSSon
Lamb Inn veitingastaður og gistihús
margt um að vera í Eyjafirði
Margt skemmtilegt má taka sér fyrir hendur í Eyjafirði um páskana sem og aðra daga ársins. Fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki bjóða upp á
áhugaverða þjónustu á svæðinu. Þar má finna allt frá veitingastöðum og gistihúsum til skemmtilegra safna og seiðkvenna.
Sólarmusterið
Seiðkonan Sigríður Ásný Sólar
ljós verður með opið í Sólarmust
erinu um páskana og því um að
gera að hringja og panta. Sigríð
ur veitir fólki innsýn í hvernig
það getur tengst náttúrunni og
náttúruöndunum. Hún tengir
fólk við jarðar hjólið sem byggt
var árið 2013 af JesseBlue, boð
bera friðar, en hann smíðaði
fimm jarðarhjól hér á landi.
Pálmasunnudag 20. mars mun
Sigríður fagna vorjafndægri og
blessa vatnið.
Nánari upplýsingar má finna
á Facebook undir Sólarmusterið.
Smámunasafnið
Smámunasafn Sverris Hermanns
sonar í Sólgarði er bráðskemmti
legt safn. Þetta er ekki safn ein
hverra ákveðinna hluta heldur allra
mögulegra hluta. Hversdagsleg
ir hlutir eru þar mitt á meðal afar
óhefðbundinna hluta.
Smámunasafnið verður opið alla
páskana, frá skírdegi fram á annan
í páskum, milli klukkan 13 og 17.
Boðið verður upp á leiðsögn um
safnið, páskaeggjaleit, ljúffengar
sveitavöfflur og kaffi.
Nánari upplýsingar á Facebook
undir Smámunasafn Sverris Her
mannssonar.
Silva, veitingastaður og gisting
Á bænum SyðraLaugalandi er rek
inn grænmetisveitingastaðurinn
Silva en þar er einnig boðið upp á
gistingu í tveimur fullbúnum bú
stöðum og gistihúsi.
Veitingastaðurinn er opinn annan
hvern föstudag frá klukkan 18 til 21.
Opnunardagar í vetur eru 18. mars,
1., 15. og 29. apríl, 13. og 27. maí. Frá
og með 1. júní er opið fyrir morg
unverð frá 8 til 10 og kvöldmat frá
17 til 21.
Silva er í aðeins 14 km fjarlægð
frá miðbæ Akureyrar en nánari upp
lýsingar má finna á silva.is, undir
Silva hráfæði á Facebook eða í síma
851 1360.
Brúnalaug gistihús og garðyrkjustöð
Lamb Inn er fallegt gistihús og
skemmtilegur veitingastaður í
aðeins átta mínútna akstursfjar
lægð frá Akureyri. Veitingastað
urinn verður opinn í páskavik
unni daglega frá miðvikudeginum
til laugar dags frá kl. 18 til 21. Á
boðstólum verða hinar víðfrægu
kótilettur í raspi með tilheyrandi,
súpa, brauð og salat og ofnsteikt
bleikja ásamt eftirréttum. Boðið
verður upp á gistitilboð sem eng
inn getur hafnað.
Nánar á lambinn.is og í síma
4631500.
Brúnalaug er við þjóðveg 823 í
Eyjafjarðarsveit. Þar er stund
uð ylrækt í sex gróðurhúsum, um
1.100 m2 að stærð. Ræktaðar eru
paprikur allan ársins hring og frá
vori til hausts einnig agúrkur og
steinselja.
Þar er einnig rekið lítið gistihús
sem getur hýst sjö gesti. Í því eru
Kaffi Kú – upplifun,
kaffihús og beint frá bónda
Kaffi Kú er skemmtilega öðruvísi
kaffihús á bænum Garði, tíu kíló
metra sunnan Akureyrar. Kaffi
húsið er á fjósloftinu í stærsta og
tæknivæddasta fjósi landsins og
þaðan má fylgjast með kúnum í
fjósinu.
Um páskana verður frítt í fjós
ið og hægt að hitta kálfana. Einnig
er hægt að kaupa nautakjöt beint
frá býli og því tilvalið að kaupa
páskasteikina og grillhamborgara
á Kaffi Kú frá Nautakjöt.is
Opið verður dagana 18. mars til
og með 28. mars frá kl 12 til 18.
tvö tveggja manna herbergi, eitt
eins manns herbergi, svefnsófi
í stofu, tvö salerni, þar af annað
með sturtu. Vel útbúið eldhús er
þarna. Úti er verönd með heitum
potti og grilli. Lögð er áhersla á
heimilislegt, notalegt og barnvænt
umhverfi. Gestum gistihússins er
velkomið að skoða gróðurhúsin.
Komdu norður Kynningarblað
19. mars 201614