Fréttablaðið - 19.03.2016, Side 114

Fréttablaðið - 19.03.2016, Side 114
Tvær skæðustu farsóttir Íslandssögunnar eru að öllum líkindum Plágan mikla sem braust út árið 1402 og Stórabóla sem skall á landsmönnum rúmum þremur öldum síðar, árið 1707. Mannfallið í faröldrunum var skelfilegt og sam- félagslegu afleiðingarnar gríðarlegar. Svo merkilega vill til að í báðum til- vikum hefur koma drepsóttanna verið tengd nafngreindum einstaklingum. Gísli Bjarnason var Íslendingur sem búsettur var í Kaupmannahöfn þegar hann tók bólusótt og lést. Í kjölfarið var kista með eigum hans, þar með talið klæðnaði, send aftur til Íslands og var Stórabóla rakin til þess. Einar Herjólfsson var lánsamari – eða ólánsamari, eftir því hvernig á það er litið – því samkvæmt heimildum barst Plágan mikla til landsins með skipi hans, líklega frá Englandi. Ann- aðhvort hefur Einar sjálfur sloppið við smit eða verið í hópi þeirra sem lifðu sjúkdóminn af, í það minnsta sögðu annálar frá Rómargöngu hans fáeinum árum síðar og drápi hans í Vestur-Landeyjum árið 1412 – ef til vill af völdum einhvers sem kenndi sæfaranum um hörmungarnar? Margt við sögurnar af þeim Gísla og Einari er með ólíkindablæ og því varasamt að taka þær of alvarlega. Skilningur fólks fyrr á öldum á smit- leiðum sjúkdóma var takmarkaður, en á sama hátt þarf ekki að koma á óvart þótt almenningur vildi finna blóraböggul. Eftir stendur að varla er hægt að hugsa sér ömurlegri örlög en að verða holdgervingur hræðilegs sjúkdóms og rata þannig í sögubækur löngu eftir sinn dag. Það varð einmitt hlutskipti Mary Mellon, matselju sem enn í dag er dregin fram í hvert sinn sem fjallað er um sögu taugaveiki. Sótt þeirra fátæku Taugaveiki er háskalegur smitsjúk- dómur sem berst með sýklum í vatni og matvælum. Hún er landlæg víða í þriðja heiminum, einkum í Afríku sunnan Sahara, á Indlandi og í Suðaust- ur-Asíu. Í Evrópu og Norður-Ameríku hefur hún einkum tengst takmarkaðri hreinlætisaðstöðu og miklu þéttbýli, til að mynda í fátækrahverfum stór- borga á tímum iðnbyltingarinnar eða á stríðstímum. Þannig kostaði tauga- veiki gríðarlegan fjölda hermanna lífið eða heilsuna í skotgrafahernaði fyrri heimsstyrjaldar og gat haft veru- leg áhrif á gang hernaðarins. Fáir sjúkdómar hafa drepið jafn marga í gegnum tíðina og taugaveiki. Sumir fræðimenn hallast að því að einhver kunnasta farsótt sögunnar, plágan í Aþenu árið 430 f. Kr. sem dró þriðjung íbúanna til dauða sem og leiðtogann Períkles, hafi verið tauga- veikifaraldur. Í því ljósi er enn nötur- legra að Mary Mallon sitji ein uppi með svartapétur. Mary Mallon fæddist árið 1869 í þorpinu Cookstown, sem í dag er hluti Norður-Írlands. Langt leiddir knattspyrnunirðir tengja þorpið e.t.v. helst við gamla Newcastle og Ful- ham-varnarjaxlinn Aaron Hughes og bókmenntafólk kveikir á því að þar skrifaði Jonathan Swift handritið að sögunni um Ferðir Gúllívers á fyrri hluta átjándu aldar. Fimmtán ára gömul fluttist Mary til Bandaríkjanna og hóf fljótlega að vinna fyrir sér sem kokkur. Hún var snjöll á sínu sviði og starfaði einkum fyrir efnafólk. Á árunum 1900 til 1907 vann Mary fyrir fjölda fólks víðs vegar í New York-ríki. Hún stoppaði stutt á hverjum stað, sem var í sjálfu sér ekkert óvenju- legt á tímum þar sem atvinnuöryggi fólks í þjónustustörfum var lítið. Þegar horft var til baka kom í ljós að á allnokkrum þessara heimila höfðu íbúar veikst vegna einhvers konar matareitrunar. Ómögulegt er að segja til um hvort Mary áttaði sig sjálf á samhenginu. Ráðgátan við Ostruflóa Árið 1906 starfaði Mary um skeið í Ostruflóa, sem var vinsæll sumar- dvalarstaður ríka og fína fólksins í New York. Teddy Roosevelt Banda- ríkjaforseti átti þar heimili, auk annarra fyrirmenna. Vellríkur bankamaður, Charles Henry Warren að nafni, ætlaði að njóta sumarsins í bænum ásamt konu sinni og börn- um, þegar sex fjölskyldumeðlimir veiktust. Læknar greindu ástæðuna taugaveiki. Þar sem taugaveiki var á þessum árum í hugum flestra bundin við ömurleg fátækrahverfi og sjúk- dómur lágstétta, voru tíðindin reið- arslag fyrir eiganda hússins þar sem Warren-fjölskyldan dvaldist. Leigu- salinn óttaðist að enginn fengist til að leigja sumarhúsið aftur nema skýring fengist á sóttinni. Hann leitaði því til „heilsuspæjara“, verkfræðingsins og heilbrigðisfulltrúans Georges Soper. Soper gekk vasklega til verks og rannsakaði húsið hátt og lágt, allt frá vatnslögnum til gróðursins í garðinum. Að lokum bárust böndin að Mary Mallon eða öllu heldur að ferskjuís sem hún hafði framreitt fyrir fjölskylduna. Í kjölfarið var Mary handtekin og neydd í ítarlega læknisskoðun. Niðurstöðurnar komu verulega á óvart. Mary reyndist bera sjúk- dóminn, þrátt fyrir að hafa aldrei kennt sér meins. Hún var með öðrum orðum einkennalaus smit- beri, fyrirbæri sem er í dag velþekkt í læknisfræðinni en var óþekkt fram að þessu. Heilbrigðisyfirvöld létu því setja hana í einangrun í kofaskrifli með engan annan félagsskap en einn hund næstu misserin. Fjölmiðlafár Fjölmiðlar drukku í sig fréttirnar af írska smitberanum, sem fljótlega fékk viðurnefnið Taugaveikis-Mæja (Typhoid Mary). Fátt selur dagblöð eins og ótti við hið óþekkta og hvað var skuggalegra en sakleysislegur inn- flytjandi sem skildi eftir sig slóð far- sótta og tortímingar? Taugaveikis-Mæja brást illa við athyglinni og málatilbúnaðinum. Hún trúði aldrei greiningu læknanna og var sannfærð um að verið væri að skella á hana skuldinni að ósekju. Þá bætti ekki úr skák að hún hafði enga trú á þeirri kenningu að handþvottur skipti máli til að verjast bakteríum. Hún mótmælti harðlega frelsis- sviptingunni og barðist fyrir dóm- stólum. Enginn veit hvernig efnalítill kokkur gat greitt laun lögfræðinga sinna og er því talið fullvíst að blaða- kóngurinn Randolph Hearst hafi borgað reikninginn, enda Taugaveik- is-Mæja prýðileg uppspretta frétta fyrir fjölmiðlaveldi hans. Eftir mikið stapp féllust yfirvöld á að sleppa Taugaveikis-Mæju lausri árið 1910, gegn loforði um að hún sneri baki við eldamennsku. Hún breytti nafni sínu í Mary Brown og gerðist þvottakona. Þvottastarfið var hins vegar gríðarlega erfitt en á sama tíma einhver verst launaða vinna sem í boði var. Freistingin að leita aftur í kokkastarfið var því of mikil til lengdar. Árið 1915 braust út taugaveiki- faraldur á sjúkrahúsi í New York, sem kostaði tvo sjúklinga lífið. Tauga- veikis-Mæja, sem unnið hafði í eld- húsi spítalans, lét sig þegar hverfa en lögreglan hafði uppi á henni. Í þetta sinn var enga miskunn að fá hjá yfir- völdum og næstu tvo áratugina mátti Mary Mallon dúsa í einangrun á lítilli sjúkrahússeyju í samfélagi fólks sem dæmt hafði verið í sóttkví af ýmsum ástæðum. Fræg að endemum Taugaveikis-Mæja lést árið 1938 og var þá löngu orðin þjóðþekkt í Banda- ríkjunum. Nafn hennar varð að hug- taki sem vísaði til allra leyndra smit- bera. Myndir af henni og teikningar voru notaðar í auglýsingar þar sem hvatt var til hreinlætis og varkárni í meðhöndlun matvæla. Fjölmiðlar héldu áfram að gera sér mat úr sögu hennar og reyndu að grafa upp fleiri fórnarlömb úr fortíðinni og draga upp mynd af kaldrifjuðum morðingja. Aldrei tókst þó að tengja nema þrjú dauðsföll við eldamennsku Tauga- veikis-Mæju, sem er í litlu samræmi við þá ógn sem nafni hennar er tengd. Þannig eru ekki nema fáein ár síðan gerð var um hana sjónvarpsmynd sem bar þann æsilega titil: „Háskalegasta konan í Bandaríkjunum“ (The Most Dangerous Woman in America). Ýmsir aðrir smitberar taugaveiki kostuðu fleiri mannslíf, en eru þó öllum gleymdir í sögunni. En svona er nú lífið ósanngjarnt. Spyrjið bara þá Gísla Bjarnason og Einar Herjólfsson. Taugaveikis-Mæja Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um alræmdan smit- bera. Opið alla virka daga 10 -18. Lau.11-16 VERIÐ VELKOMIN Í HEIMSÓKN Á SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK Í NÝJU VERSLUNINA FJÖLDI OPNUNAR - TILBOÐA VIÐ OPNUM Á NÝJUM STAÐ FRÁBÆRT ÚRVAL AF RÚMUM, SÓFUM OG HVÍLDARSTÓLUM Þá bætti ekki úr Skák að hún hafði enga trú á Þeirri kenningu að handÞvottur Skipti máli til að verjaSt bakteríum. 1 9 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r50 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.