Bændablaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. febrúar 20192 FRÉTTIR Rósa Birna Þorvaldsdóttir sýndi stóðhestinn Ellert frá Baldurshaga en hann er eini hesturinn í heiminum sem er ýruskjóttur. Átta folöld komu undan Ellerti síðasta sumar, fjögur þeirra eru ýruskjótt. Myndir / MHH Hrossaræktarsamtök Suðurlands með fræðslusýningu fagaðila í hestamennsku: „Púlsinn“ tókst frábærlega í Ölfushöllinni „Púlsinn“, viðburður sem Hrossa­ ræktar samtök Suðurlands stóðu fyrir í Ölfushöllinni laugardaginn 23. febrúar, tókst frábærlega. „Já, við erum mjög sátt við daginn sem tókst vel og er vonandi kominn til að vera,“ segir Sigríkur Jónsson, formaður samtakanna. Á deginum komu hestamenn saman á fræðslusýningu fagaðila í hestamennsku þar sem almenningi og öðrum gafst kostur á að fá innsýn í heim þeirra sem hafa lifibrauð sitt af hestamennsku. /MHH Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, setti „Púlsinn“ með því að fara nokkra hringi í reiðhöllinni á hestvagni og hvetja hestamenn til dáða. Ólafur Andri Guðmundsson og Máfur frá Kjarri voru með flotta stóðhestasýningu þar sem Ólafur Andri fór vel yfir kosti hestsins og svaraði fyrirspurnum áhorfenda. Niðurstaða er fengin í atkvæða­ greiðslu mjólkurframleið­ enda um framtíð kvótakerfis í mjólkurframleiðslu. Mikill meirihluti, eða 89,41%, vill ekki afnema kvótakerfi í mjólkurfr­ amleiðslu. „Þessi skýra niðurstaða er gott og mikilvægt veganesti fyrir okkur inn í framtíðina,“ sagði Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, þegar niðurstöður lágu fyrir. 88,35% innleggjenda greiddu atkvæði Atkvæðagreiðslan var rafræn og stóð yfir í eina viku, en lauk í dag kl. 12.00. Hún fór fram í samræmi við ákvæði gildandi samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar. Hver mjólkurframleiðandi hafði eitt atkvæði án tillits til fjölda aðstandenda að búinu, aðildar að Bændasamtökum Íslands eða Landssambandi kúabænda. Á kjörskrá voru 558 inn­ leggjendur og alls greiddu 493 atkvæði, eða 88,35%. Atkvæði féllu þannig: • 50 eða 10,14% sögðu: Já, ég vil afnema kvótakerfi í mjólkurframleiðslu • 441 eða 89,41% sögðu: Nei, ég vil ekki afnema kvótakerfi í mjólkurframleiðslu • 2 eða 0,41% völdu að taka ekki afstöðu. Niðurstaðan er stefnumarkandi fyrir fulltrúa bænda við endurskoðun samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar sem fram fer síðar á þessu ári. Nú verða áherslur mótaðar í ljósi þessarar niðurstöðu og stefnumörkunar um aðra þætti samningsins sem koma þurfa til endurskoðunar. Niðurstaðan kom formanni þægilega á óvart „Það kom mér þægilega á óvart hversu góð þátttakan var, hún er okkur mjög mikilvæg, ekki síður en sá eindregni vilji sem fram kemur meðal bænda. Það er gott fyrir okkur sem stöndum í brúnni að sjá þessa miklu samstöðu í greininni og kemur sérlega vel að hafa þetta sterka bakland þegar samningaviðræður hefjast við ríkisvaldið,“ sagði Arnar Árnason. Stefnumarkandi niðurstaða Niðurstaðan er stefnumarkandi við endurskoðun samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar sem fram fer síðar á þessu ári. /MÞÞ/HKr. Afgerandi meirihluti, eða 89,41%, mjólkurframleiðenda vill ekki afnema kvótakerfið: Mikilvægt veganesti fyrir okkur inn í framtíðina – segir Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda Arnar Árnason. Mynd / HKr. Ársfundur Bændasamtaka Íslands verður haldinn á Hótel Örk í Hveragerði föstudaginn 15. mars nk. Hætt var við áður auglýstan fundartíma og viðburðinum frestað um viku vegna yfirvofandi verkfalls Eflingarfólks sem starfar í hótelgeiranum. Hefðbundin aðalfundarstörf hefjast klukkan 9.00 og standa til hádegis. Eftir hádegi, klukkan 13.00, hefst opin ráðstefna þar sem umfjöllunarefnið er sérstaða íslensks landbúnaðar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun ávarpa gesti og í kjölfarið verða haldin erindi, meðal annars um smitsjúkdóma og sýklalyfjaónæmi, viðhorf til matvælaframleiðslu og lýðheilsu, lífræna ræktun og nýsköpun til sveita. Um kvöldið kl. 20.00 verður blásið í veislulúðra og haldin bændahátíð á Hótel Örk þar sem íslenskar búvörur verða í öndvegi. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins og heimamaður í Hveragerði, sér um veislustjórn. Sólmundur Hólm og fleiri skemmtikraftar stíga á svið og ballhljómsveitin Allt í einu leikur fyrir dansi. Miðapantanir á bændahátíðina eru á vefnum bondi.is en viðburðurinn er nánar auglýstur á bls. 5 hér í blaðinu. /TB Ársfundur BÍ 15. mars Bændasamtök Íslands Merki Pósitíft Innflutningsmálin: Fundaröð ráðherra Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs­ og landbúnaðar­ ráð herra stendur nú fyrir fundaröð á landsbyggðinni þar sem frumvarp atvinnuvega­ og nýsköpunarráðuneytisins varðandi innflutning á búvörum – þar á meðal ófrystu kjöti, hráum eggjum og ógerilsneyddri mjólk – er til umræðu. Frumvarpið liggur í Samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar til 6. mars. Talið er að um 250 manns hafi sótt fyrsta fundinn, sem haldinn var í Þingborg í Flóa á mánudaginn en síðasti fundurinn verður haldinn í Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum þriðjudaginn 5. mars. /smh Fundadagskráin er eftirfarandi: • Fimmtudagur 28. feb. kl. 12.00: Þjóðminjasafnið, Reykjavík. • Fimmtudagur 28. feb. kl. 20.00: Félagsheimilið Hlíðarbær, Hörgársveit. • Mánudagur 4. mars kl. 20.30: Hótel Hamar, Borgarnesi. • Þriðjudagur 5. mars kl. 20.00: Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum. Fundargestir í Þingborg. Mynd / MHH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.