Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Blaðsíða 22

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Blaðsíða 22
Fullorðinsfræðsla fatlaðra - Kynning Það var margt um manninn á bpnun kynningardaga hjá Full- orðinsfræðslu fatlaðra sunnu- daginn 2. apríl sl. í Ráðhúsi Reykja- víkur. Athöfnin sjálf hnitmiðuð og hátíðleg. Kynnir var Kristín Guðmunds- dóttir og gaf hún fyrst Birni Bjarna- syni menntamálaráð- herra orðið. Ráðherra lýsti mik- illi ánægju með það starf er unnið væri á vegum Fullorðinsfræðslu fatlaðra og færði Maríu Kjeld skólastjóra inni- legar þakkir fyrir allt hennar dýrmæta starf. i lann kvað unnið að því nú að skapa starfseminni öruggan starfsramma og fá henni um leið varanlegan samastað. Kröfur um fram- haldsnám aukast og nú er stefnt að því að auka framhaldsnámið að loknum grunn- skóla upp í 3 ár í haust. María Kjeld skóla- stjóri minnti á sögu þessara 25 ára, full- orðinsfræðsluna hér í Reykjavík og svo síðar í Fívammshlíð- askóla á Akureyri. Kennslan væri í nám- skeiðsformi og nefndi að á vorönn nú væru alls 320 nemendur. Mottó alls þessa er kennsla við hæfi, löguð að áhuga, getu og færni þeirra er við eiga að taka og njóta. Meginatriðið það að allir megi sí- menntunar njóta. Þá lék Aslaug Guðlaugsdóttir eitt lag á píanó með kennara sínum Elísa- betu Flarðardóttur og Eyrún Fjóla Friðgeirsdóttir lék eitt lag á alt- blokkflautu en Ragnheiður Fiaralds- dóttir kennari hennar lék undir á píanó. Þá flutti María Hreiðarsdóttir form. Ataks ávarp fyrir hönd nem- enda. Hún kvað símenntun fólks með þroskahömlun ekki síður mikilvæga en fyrir aðra. Minnti á þann tíma þegar ekkert slíkt var í boði. Full- orðinsfræðslan eykur sjálfstraust fólks og eflir trú þess á sjálfu sér, gefur einnig möguleika til frekara náms. María kvað blöndun besta í þessum efnum, skoraði á mennta- málaráðherra að gleyma ekki þeim sem eiga erfitt með nám. Þá söng og lék Magnús Sigurðsson lagið: Stál og hnífur eftir Bubba Morthens. Leikhópurinn Perlan sýndi svo leik- ritið Ef þú bara giftist undir stjórn Sigríðar Eyþórsdóttur og síðar einnig dansverkið Romantica eftir Láru Stefánsdóttur og undir hennar stjórn. Að lokum lék svo og söng hljóm- sveitin Plútó tvö lög (og bætti um betur síðar) og jók heldur betur fiðring í fótum fólks. Einkar smekkleg og vel flutt voru öll atriðin og vöktu ánægju okkar gesta. Fólk skoðaði svo sýninguna en þar kenndi margra grasa m.a. mynd- list og handavinna og svo voru m.a. sýningar frá bæði leiklist og íþrótta- starfi. Fjölbreytni mikil og góð og mjög víða brá fyrir listrænum hæfileikum og hugsun margra tjáð listavel í litum. Um sýninguna sá Magnús Valur Páls- son. Ritstjóri ákvað að taka þá ágætu konu, Maríu Kjeld skólastjóra tali og fer viðtalið við hana hér á eftir. Á sýningunni var öllum gestum af- hentur bæklingur sem gjörir á glögg- an hátt grein fyrir Fullorðinsfræðslu fatlaðra m.a. með sögulegu yfirliti sem fróðlegt er að glugga í. Þar er m.a. greint frá því að skv. reglugerð um sérkennslu 1977 sem byggð var á grunnskólalögum voru formlega sett- ir á fót 7 þjálfunarskólar á grunn- skólastigi þ.e. á Sólheimum, Tjalda- nesi, Skálatúni, Sólborg, Kópavogs- hæli, Bjarkarási og Lyngási. Sam- kvæmt heimildum í grunnskóla- lögum var í þjálfunarskólunum fotluðum börnum kennt allt til 18 ára aldurs. Árið 1991 sameinast skólarnir í eina stjórn sem Fullorðinsfræðsla fatlaðra. Síðan er farið yfir markmið kennslunnar, námsefnið, námskrár- gerð og námsmat, en kerfisbundið símat er samþætt skólastarfinu og stöðugt eru í gangi þróunarverkefni. Skipting efnis er þannig: Grunnþjálf- un, sund, leikfimi, bóknám, boðskipti, eigin persóna, heimili, mynd-og handlist, tón- list, leiklist og tóm- stundir. Mottóið er: Lífsgleði, lífs- gæði. En látum Maríu Kjeld svo um að fræða okkur frekar. Mætt hjá Maríu Kjeld Það var svo einn mildan apríldag að ritstjóri fór á fund Maríu Kjeld skólastjóra Fullorðinsfræðslu fatlaðra og naut fylgdar þeirrar ljúfu sam- starfskonu hér, Kristínar Jónsdóttur, sem í senn var ekill og leiðsögumað- ur. Fullorðinsfræðslan er með sínar aðalstöðvar að Blesugróf 27 og þegar María Kjeld 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.