Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Blaðsíða 46
Guðríður Ólafsdóttir félagsmálafulltrúi:
Lagabreytingar frá Alþingi
r
ður en Alþingi fór í sumarfrí
voru gerðar breytingar á
lögum sem kunna að koma
fötluðum vel. Annars vegar er það
breyting á lögum um bifreiðagjald og
hins vegar á
lögum um vöru-
gjald af öku-
tækjum og vöru-
gjald af ýmsum
vörum.
Breyting á bif-
reiðagjaldi er í 4.
gr. laganna og
fjallar um niður-
fellingu á gjaldinu
af bifreiðum
þeirra sem hafa bætur frá almanna-
tryggingum.
Við lögin bætist ný grein er verður
4. gr. og orðast svo ásamt fyrirsögn:
Undanþága
frá gjaldskyldu
Eftirfarandi bifreiðir skulu undan-
þegnar bifreiðagjaldi:
Bifreiðir í eigu þeirra sem fá
greiddan örorkustyrk, örorkulífeyri,
bensínstyrk eða umönnunargreiðslur
vegna örorku barna frá Trygginga-
stofnun ríkisins. Jafnframt eiga þeir
öryrkjar sem notið hafa niður-
fellingar skv. 1. málsl. rétt á niður-
fellingu ef þeir hafa öðlast rétt til elli-
lífeyrisgreiðslna eða dveljast á stof-
nun, sbr. 43. gr. laga nr. 117/1993, um
almannatryggingar. Sama rétt eiga
foreldrar langveikra og fjölfatlaðra
barna sem vistuð eru utan heimilis ef
réttur til umönnunargreiðslna héldist
óskertur væri barnið heima. Réttur til
niðurfellingar bifreiðagjalds vegna
þeirra sem fá greiddan örorkustyrk,
örorkulífeyri eða bensínstyrk er
bundinn því skilyrði að bóta- eða
styrkhafi sé í ökutækjaskrá annað-
hvort skráður eigandi bifreiðar eða
umráðamaður bifreiðar samkvæmt
eignarleigusamningi. Réttur til niður-
fellingar bifreiðagjalds af bifreiðum í
eigu þeirra sem fá umönnunar-
greiðslur vegna örorku barna nær til
einnar bifreiðar og er bundinn því
skilyrði að skráður eigandi bifreiðar
samkvæmt ökutækjaskrá fari með
forsjá barnsins. Óheimilt er að fella
niður bifreiðagjald af bifreiðum sem
eru yfir 3.500 kg að eigin þyngd og
nýttar eru í atvinnurekstri. Ef sá sem
á rétt á niðurfellingu bifreiðagjalds á
fleiri en eina bifreið skal bifreiða-
gjald fellt niður af þeirri bifreið sem
er þyngst. Fyrir álagningu bifreiða-
gjalds skal Tryggingastofnun ríkisins
senda ríkisskattstjóra upplýsingar um
bifreiðaeign þeirra sem fá slíkar
greiðslur frá stofnuninni sem að
framan greinir -.
Brevting á lögum um vörugiald
af ökutækium:
Úr lögunum:
Eftirtalin ökutæki skulu undanþegin
vörugjaldi:
f) Bifreiðar í eigu ríkis, sveitarfélaga
eða stofnana á þeirra vegum, sérstak-
lega búnar til flutnings á fötluðum,
þ.m.t. búnar hjólastólalyftu og sam-
þykktar af Tryggingastofnun ríkisins.
1) Vörugjald af bifreiðum fatlaðra
sem eru sérstaklega búnar til flutn-
ings á þeim, þ.m.t. búnar hjólastóla-
lyftu, og samþykktar af Trygginga-
stofnun ríkisins.
Þessi ákvæði laganna hafa í för
með sér að vörugjald af van-bílum
lækkar úr 30% eða 45% niður í 0%.
Enn fremur samþykkti Alþingi
breytingu á lögum um vörugjald, sem
felur í sér niðurfellingu vörugjalds af
ýmsum vörum. Þ.m.t. venjulegum
lvftum sem notaðar eru í húsum til
fólks- og vöruflutninga. rúllustigum
o.þ.h. Þessar vörur báru áður 15%
vörugjald.
Guðríður Ólafsdóttir.
Guðríður
Ólafsdóttir
Foreldrafélag kynnir sig
Foreldrafélag geðsjúkra barna og
unglinga kynnir sig nú með
myndarlegum bæklingi. Þar eru rakin
íjölmörg markmið félagsins og hér
gripið niður í verkefni: Bætt grein-
ingar- og meðferðaraðstaða, bætt
skólaúrræði, fræðsla og útgáfa
fræðsluefnis, bætt tryggingamál,
myndun sjálfshjálparhópa, vinna
gegn fordómum o.s.frv. Félagið
kynnir sig sem félag sem berst fyrir
sjálfsögðum lagalegum réttindum
geðsjúkra barna og unglinga og rit-
stjóri veit að á stuttri ævigöngu hefur
félaginu orðið vel ágengt.
Bent er á hve geðsjúkdómar geti
verið margs konar hjá börnunr og
rakin nokkur dæmi um vísbendingar
sem þarf að vera á varðbergi fyrir.
Nefnd sem dæmi: Ef barn er kvíðn-
ara og áhyggjufyllra en jafnaldrar
þess. Ef barni finnst lífið of erfitt og
talar um að það vilji ekki lifa. Ef
barnið meiðir aðra oft, skemmir hluti
eða brýtur lög. Ef barn heyrir raddir
sem ekki er unnt að skýra eða sér fólk
eða hluti sem ekki eru til.
Lögð er áhersla á það að barnið
þurfi ekki að skammast sín fyrir sjúk-
dóminn, barnið bað ekki um sjúk-
dóminn!
Félagið var stofnað 24. mars 1999.
Foreldrafélagið er til heimilis að
Grýtubakka 30 Reykjavík, sími 557
8326. Netfang: olafur at islandia.is.
Félaginu eru sendar árnaðaróskir
héðan af bæ.
H.S.
46