Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Blaðsíða 50
Litíumbókin
Geðverndarfélag íslands hefur
gefið út bók sem ber nafnið
Litíumbókin. Bókin er í þýðingu
Magnúsar Skúlasonar geðlæknis en
höfundur bókar er Mogens Sohou.
Undirtitill bókarinnar er: Um
litiummeðferð við geðhvarfasjúk-
dómi.
I inngangi er sagt að bókin sé ætluð
manió depressífum einstaklingum í
litíummeðferð, fjölskyldum þeirra og
öðrum sem hafa áhuga á að fræðast
um efnið.
Fyrsti kaflinn er svo um sjúk-
dóminn og þar lýst andhverfunum
maníu og þunglyndi m.a. Gefið er
gott yfirlit um eðli sjúkdómsins
(erfðaþættir, breytingar í efnaskiptum
heilans t.d.), farið ofan í greiningu og
síðan snúið sér að meðferðarþætt-
inum: raflækningu, geðlyfjum og
þunglyndislyfjum.
Þá er litíum skilgreint, en það mun
vera málmfrumefni sem finnst víða í
náttúrunni. Saga meðferðar með
litíum er svo rakin, hófst árið 1850 og
þá gefið við gigt. Síðan er fjallað um
meðferðina við maníu og þunglyndi
og svo það sem kallað er fyrir-
byggjandi meðferð og það rakið
fræðilega en allt á afar alþýðlegu,
auðlesnu máli í raun miðað við efnið.
Fjallað er þessu næst um kostina
sem og gallana við að vera í litíum-
meðferð m.a. áhrif á sköpunargetuna.
Lögð er áhersla á gott samstarf sjúkl-
ings og læknis og eigið framtak sjúkl-
ings.
Litíum er hægt að fá í töfluformi, í
hylkjum eða sem mixtúru. Lýst
er svo framkvæmd litíummeðferðar
svo og rannsóknareftirliti.
Þá er komið að aukaverkunum sem
oftast eru þó óverulegar. Nefnd eru
til sögu afbrigði og líkamshlutar s.s.
handskjálfti, viðbragðshraði, hjarta,
skjaldkirtill, nýru, húð, meltingar-
Forsíða bókarinnar
vegur, bjúgur, þyngdaraukning, sál-
ræn starfsemi og akstur bifreiða, en af
lestri virðist ljóst að ekki er áhættan
mikil sem betur fer.
í lok þessa kafla, þar sem spurt er
um hvort menn verði háðir lyfinu, þá
er því svarað að litíum sé algjörlega
öruggt.
Áhættuþættir eru svo raktir ræki-
lega og það skýrt fram tekið að litíum
sé “sterkt” læknislyf. Talað er um
litíumeitrun og rakin merki um þá
eitrun á byrjunarstigi og síðan
ákveðnar áhættuaðstæður s.s. vatns-
skortur og saltskortur eru dæmi um.
Áhrif á meðgöngu, fæðingu og
brjóstagjöf eru svo tíunduð og endað
á beinskeyttum upplýsandi minnis-
atriðum fyrir sjúklinga í litíum-
meðferð.
Flér hefur aðeins verið á ófull-
kominn hátt vakin athygli á ágætri og
afar fræðandi bók sem örugglega á
eftir að koma þeim að notum sem
helst þurfa á að halda. Þetta er hin
þarfasta útgáfa.
H.S.
Hlerað í hornum
Þegar Jónas frá ITriflu var allnokkru
hættur í pólitík var hann spurður
hvort það væri staðreynd að það væri
miklu minna Ijör í pólitíkinni nú en
þegar hann hefði verið þar á fullu.
“Nei, það er ekkert minna urn að
vera, en mönnum dettur bara svo
ótrúlega fátt í hug”, var svarið.
Frá lýsingu á knattspyrnuleik: “Báðir
tvíburarnir eru í byrjunarliðinu en
báðir verða 19 ára á morgun, því svo
skemmtilega vill til að þeir eiga báðir
afmæli sama daginn.”
Frá Park-
inson-
samtök-
unum
Imyndarlegu fréttabréfi Park-
insonsamtakanna má margt
fróðleiksefni finna.
Á starfsárinu 1999-2000 voru
haldnir alls 6 félagsfundir þar
sem mætir flytjendur fluttu
félagsmönnum góðan fróðleik
auk þess að margt var gjört til
góðrar skemmtunar.
Aðalverkefnið má þó segja
að verið hafi aðalfundur nor-
rænu Parkinsonsamtakanna sem
haldinn var hér á landi á sl. ári
og tókst afar vel og var
eftirminnilegur þeim sem sóttu.
Farið var í hið skemmtilegasta
sumarferðalag og aðalfundur
Evrópusamtakanna sóttur heim.
I fréttabréfinu er greint frá
símaráðgjöf fyrir Parkinson-
sjúklinga og aðstandendur
þeirra í Danmörku og þeirri
hugmynd velt upp að koma slíku
á hér á landi.
I athugun er að semja við
félagsráðgjafa sem félagsmenn
gætu leitað til um upplýsingar
og ráðgjöf.
Þau miklu sómahjón, Áslaug
Sigurbjörnsdóttir og Magnús
Guðmundsson voru á aðalfundi
gjörð að fyrstu heiðursfélögum
samtakanna og er því sannarlega
fagnað.
Ný stjórn Parkinsonsamtak-
anna er þannig skipuð: Formað-
ur er Oskar Konráðsson og aðrir
í stjórn eru: Signý Pálsdóttir
varaformaður, Jón Jóhannsson
gjaldkeri, Nína Hjaltadóttir
ritari, Jón Bjarman meðstjórn-
andi og til vara eru Árni Arn-
arson og Hervör Hallbjörns-
dóttir. í stjórn þjónustusetursins
að Tryggvagötu 26 er af hálfu
samtakanna gjaldkeri þeirra Jón
Jóhannsson.
H.S.
50