Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Blaðsíða 25
Frá átaksfundinum ágæta.
EFLUM ENDURHÆFINGU
Hinn 3. maí sl. héldu Lands-
samtök hjartasjúklinga átaks-
fund svokallaðan í Ráð-
húsinu í Reykjavík. Tilefnið var
landssöfnun samtakanna 4.-6. maí
undir kjörorðunum: Eflum endurhæf-
ingu. Tökum á - tækin vantar.
Gísli J. Eyland formaður samtak-
anna setti fundinn og kynnti merkja-
söluna og minnti í leiðinni á dýrmæti
HL - stöðvanna. Skoraði á félaga að
halda vöku sinni og sjá til þess að
salan skilaði sem allra mestu því brýn
væri þörfin víða. Jón Þór Jóhannsson
var svo fundarstjóri.
Heiðursgestur fundarins var Sig-
urður Guðmundsson landlæknir og
flutti hann ávarp. Hann minnti fyrst á
það að hjarta- og æðasjúkdómar væru
helsta dánarmeinið. Tveir aðalþættir
væru þarna fremst, hvernig við verð-
umst þessum sjúkdómum og hvernig
sjúklingum er sinnt. Hann minnti á
áhættuþætti og það að forvarnir
virkuðu og hver maður yrði að taka
ábyrgð á sínum lífsstíl. A síðustu
árum hefur dánartíðni karla lækkað
um 50% og kvenna 30-40%. Heil-
brigðisþjónusta okkar væri mjög góð,
þræðingar og skurðaðgerðir hvað
flestar hér. Sigurður kvað endur-
hæfingu sem allra besta lífsnauðsyn,
eftir aðgerðir yrðu menn að öðlast trú
á lífið á nýjan leik. Valgeir Vilhjálms-
son eða Valgeir fyrsti eins og hann er
Átaksfundur LHS
stundum nefndur, sá fyrsti sem gekkst
undir skurðaðgerð hér á landi, afhenti
svo læknunum Þórarni Arnórssyni og
Herði Alfreðssyni merki samtakanna,
hjartað rauða og greindi á gaman-
saman hátt frá sinni sögu, forsögu
skurðaðgerðar en síðan þá munu nú
14 ár. Þakklátur væri hann svo sann-
arlega fyrir þau góðu æviár.
Þórarinn Arnórsson þakkaði heiður-
inn fyrir hönd þeirra félaga, en gat
þess til gamans að þegar þeir Hörður
hefðu spurt Valgeir hvort hann vildi
verða sá fyrsti þá hefði hann svarað
hiklaust játandi, því þeir mundu vanda
sig svo vel. Þórarinn færði samstarfs-
fólki þeirra Harðar alúðarþakkir.
Þá var komið að eldri félögum
Karlakórs Reykjavíkur að taka lagið
sem þeir gjörðu svo sannarlega af list
ljúfri, sungu 5 lög undir stjórn Kjart-
ans Sigurjónssonar við eðilega af-
bragðsundirtektir.
íris Marelsdóttir yfirsjúkraþjálfari
HL stöðvar í Reykjavík kynnti helstu
Hlerað í hornum
Það var fyrir allmörgum árum að karl
einn kom á pósthús úti á landi og bað
póstmeistarann að senda peninga
fyrir sig til Reykjavíkur. Póstmeistari
sagði honum að hann skyldi senda þá
með póstávísun en þá gæti það tekið
drætti í hjarta- og lungnaendurhæf-
ingu, sem öllum stæði til boða, 3 stig
hennar: á sjúkrahúsinu, á HL stöðv-
unum og svo viðhaldsþjálfun fyrir
lífið.
Markmiðið að auka þrek, bæta vel-
líðan og sjálfsöryggi og hindra fram-
gang sjúkdómanna. HL stöðvar eru
nú í Reykjavík, í Neskaupstað og á
Akureyri og svo áhugahópar víða um
land. Lýsti svo þjálfuninni á Reykja-
víkurstöðinni þar sem áhersla væri
líka á það að hafa það skemmtilegt.
Athugað vel með alla þætti: þyngd,
blóðþrýsting, lyf o.fl. Nauðsyn væri á
því að vera í formi, æfa reglulega og
þá verður allt auðveldara.
Rúnar Júlíusson söng og lék í lokin
af list góðri og gladdi hug okkar en
Rúnar félagi í LHS og söng m.a. um
reynslu sína.
Salan mun hafa gengið vel og sann-
arlega vitað að vel muni varið s.s. ætíð
áður.
viku að viðtakandi fengi peningana.
Karl kvað það alltof seint og þá bauð
póstmeistarinn honum að senda
peningana í símaávísun, en þá sagði
karlinn: “Svo vitlaus er ég nú ekki að
trúa því að þú getir troðið ávísunar-
blaðinu í gegnum símann og vertu
blessaður.”
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
25