Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Qupperneq 27
og bak. Loks eftir hádegi var hann
settur í myndatöku og þá fyrst var
hann m.a.s. þrifinn eftir volkið, fékk í
framhaldinu kraga og var reistur upp.
Myndatakan staðfesti þetta með sjö-
unda hálsliðinn en þar sást ekki að
höfuðið hafði farið að nokkru úr
banakringlunni. Eftir u.þ.b. einn og
hálfan mánuð heima kom loks endur-
hæfing og þá var það sjúkraþjálfinn
sem uppgötvaði þetta með höfuðið og
banakringluna og kippti því loksins
þá í liðinn. En algjör öryrki varð
Guðmundur hér af og beiskju blandin
er saga hans af því hversu til tókst og
greinilega að vonum.
Mikil voru umskiptin, félagslega
sem tekjulega og undrar engan. Kona
Guðmundar, Sigríður Halla Hans-
dóttir frá Grímsstöðum á Mýrum fór
þá að vinna s.s. hún gat en þau eiga 4
uppkomin börn, 3 drengi og eina
stúlku. Hún fór í erfiðisvinnu sem
hún illa þoldi enda með liðagigt og
t.d. kreppta fingur. Gafst þó ekki upp
og vann hálfan daginn til að þau gætu
komist af en að lokum var lotið í
lægra haldi og örorkan ein eftir.
Guðmundur segir afkomuna skelfi-
lega, þau hjón hafi í þessum hremm-
ingum misst íbúðina og leigi í dag.
Afkoman er slík að síðustu daga
hvers mánaðar eru þau í raunverulegu
svelti.
Guðmundur heitir á okkur að
duga vel í brýnni baráttu fyrir
betri kjörum og furðar sig á hinum
harkalegu viðbrögðum æðstu ráða-
manna þjóðarinnar við sanngjörnum
kröfum öryrkja um betri kjör svo ekki
sé á sultarmörkum verið sí og æ.
Guðmundi er þakkað ágætt innlit
og einkar fróðlegt samtal. Svo mættu
fleiri gjöra sem sögu hafa að segja.
H.S.
Hlerað í hornum
Konan var að inna eiginmann sinn
eftir því hvort hann myndi fá sér aðra
konu ef hún dæi nú á undan og hann
taldi það afar líklegt. “Og myndirðu
láta hana hafa kjólana mína til að
ganga í?” “Nei, það gengur ekki,”
sagði eiginmaðurinn. “Jæja, og af
hverju ekki?”, spurði eiginkonan þá.
“Hún passar bara hreinlega ekki í
kjólana þína”, var svarið.
Styrkveitingar til aðildarfélaga
Öryrkjabandalagsins árið 2000
Almæmissamtökin 500.000
Blindrafélagið 900.000
Daufblindrafélagið 550.000
FAAS 650.000
Félag heyrnarlausra 850.000
Foreldrafélag misþroska barna 650.000
Foreldra og styrktarfélag heyrnardaufra 350.000
Geðhjálp 950.000
Geðvernd 400.000
Gigtarfélag íslands 950.000
Heyrnarhjálp 400.000
LAUF 550.000
Málbjörg 350.000
MND-félagið 250.000
Parkinson samtökin 650.000
SPOEX 600.000
SÍBS 950.000
Sjálfsbjörg 1.000.000
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 650.000
Styrktarfélag vangefinna 900.000
Tourette- samtökin 250.000
Umsjónarfélag einhverfra 600.000 13.900.000
Til annarra var úthlutað samtals 1.1 millj. kx.
Hæstu styrkirnir voru til íþróttasambands fatlaðra 400 þús.
kr., til Halaleikhópsins 200 þús. kr., til Ferðafélagsins
Víðsýnar hjá Vin 150 þús kr. og til BUSLARA
Sjálfsbjargar 150 þús kr. Aðrir styrkir námu hver 50 þús. kr.
eða minna.
Ein iítil limra
Hann Gísli Helgason laumaði þessari litlu limru, löngu
ortri, að ritstjóra á dögunum.
Mörgum finnst lífið mjög leitt
sem lífsgæði fá sér ei veitt.
Ég samþykki það
því mér sárleiðist að
verða að sveitast og eiga aldrei neitt.
Gísli Helgason.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
27