Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Qupperneq 30

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Qupperneq 30
ÁF STJÓRNARVETTVANGI Fundur var haldinn í stjórn Öryrkjabandalags íslands hinn 6. mars sl. og hófst kl. 16.40 í fundarsal Hátúns 10. Mættir voru fulltrúar 19 félaga, 4 félög höfðu boðað forfoll stjórnarmanna. 1. Yfirlit formanns í upphafi máls síns fjallaði for- maður um dóm Héraðsdóms sem áfrýjað hefði verið af heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti til Hæstaréttar. Dómsniðurstöðu þar vart að vænta fyrr en á haustdögum. Málið ræki- lega kynnt í síðasta Fréttabréfi enda þjóðþekkt. Minnti þessu næst á hina fjölsóttu hjálpartækjasýningu í Perlunni - Lið- sinni, sem i alla staði hefði vel til tek- ist. Formaður kynnti þessu næst bréf Barnaheilla til dómsmálaráðherra til varnar þarfri starfsemi Barnahúss í kynferðisafbrotamálum gagnvart börnum. Öryrkjabandalagið einn áskorunaraðila. Þá greindi formaður frá hinum velheppnaða og velsótta fundi um húsnæðismál sem búsetunefnd bandalagsins hefði haft allan veg og vanda af og hefði verið stjórnað styrkri hendi af Guðríði Ólafsdóttur. Hann minnti á hlut leigjenda sem rétta þyrfti m.a. með skattleysi húsa- leigubóta. Garðar formaður sagði þessu næst frá samráðsfundum með verkalýðs- hreyfingunni ásamt Landssambandi eldri borgara. Treyst væri á atfylgi hreyfingarinnar í tengslum við kom- andi kjarasamninga. Formaður greindi þessu næst frá fundum með þingflokki Samfylk- ingar að þeirra frumkvæði, fundir með öðrum þingflokkum fyrir- hugaðir. Þá kvað formaður fyrirhugaða á sumri komanda fundi úti á landi og byrjað yrði á Austurlandi. Þar yrði reynt að ná góðum tengslum við öryrkja á svæðinu. Formaður vék því næst að nauðsyn þess að koma fræðslu um fötlun inn í námsefnið: Lífsleikni og viðræðum tengdum því m.a. við Náms- gagnastofnun. Þá sagði Garðar formaður frá starfi í samráðsnefnd samtaka fatl- aðra og Tryggingastofnunar ríkisins. Nýtt örorkuskírteini væri væntanlegt með mynd af korthafa og til alhliða notkunar. Þá væri fyrirhugað af hálfu TR að efna til námskeiða fyrir ný- metna öryrkja og myndi Öryrkja- bandalagið koma að því verki. Formaður gat að lokum um nýtt vinnulag varðandi styrkumsóknir félaga til bandalagsins þar sem félög yrðu að gefa frekari upplýsingar varðandi umsóknir en verið hefði. í umræðum á eftir lagði Arnór Pétursson áherslu á að fræðsla um fötlun kæmist inn í almenna sam- félagsfræðslu skólanna. Gísli Helga- son lýsti yfir miklum efasemdum varðandi yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga. Helgi Seljan hnykkti á fyrirvörum sínum í laga- nefnd þeirri er samdi frumvarpið um félagsþjónustu sveitarfélaga, þar sem ÖBÍ hefði m.a. alveg óbundnar hend- ur um álit sem athugasemdir. Kvað einnig rétt að skoða fylgifrumvörp vel og vandlega. 2. Fjárhagsáætlun Öryrkjabandalagsins 2000 Gjaldkeri bandalagsins Emil Thór- oddsen fylgdi tillögum framkvæmda- stjórnar ítarlega úr hlaði. Gat um rauntölur síðasta árs sem lagðar voru fram jafnhliða áætluninni svo og um lottótekjur. Sömuleiðis skýrði hann breytta tilhögun varðandi skiptingu lottótekna milli bandalagsins og Hússjóðs, föst tala til bandalagsins og Hússjóður fengi svo einungis það sem umfram væri. Hann vék að framlagi í varasjóð og gjörði svo grein fyrir helstu áætlunartölum. Erlend samskipti og styrkir til félaga og annarra hækka mest milli ára. Annars óveruleg heildarhækkun út- gjalda. í umræðum á eftir benti Arnór Pétursson á það hve víða þyrfti að kanna málefni öryrkja m.t.t. þess að e.t.v. væri þrautalendingin að sækja þau fyrir dómstólum. Umræður urðu talsverðar um þjónustusamning við lögmann svo og almenn mannrétt- indamál. Fjárhagsáætlun síðan sam- þykkt með öllum atkvæðum fundar- manna. 3. Önnur mál Björn Tryggvason spurðist fyrir um úrslit úrsagnarmáls stjórnar MS félagsins. Helgi svaraði því að ítrekuð hefði verið á nýju ári úrsögn MS félagsins. María Jónsdóttir greindi frá opnu húsi hjá FAAS 15. mars að Austur- brún 31, en frá því sagt hér í blaðinu nú, FAAS 15 ára. Arnór lýsti þungum áhyggjum sínum af hús- næðismálum einkum vegna hinnar miklu þenslu á markaði og ofurverðs á leiguhúsnæði. Á því þyrfti rösklega að taka s.s. unnt væri. Sveinn Rúnar Hauksson vakti athygli á því hve sífellt væri velt yfir á sjúklinga kostn- aði af lyfjum. Lyfjavali væri breytt, Frá ráðstefnu um atvinnumál á liðnu hausti. 30

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.