Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Side 37

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Side 37
Gátur Hér koma svo nokkrar gátur, sumar felldar í vísu- form, aðrar ekki. Allerfiðar eru þær óneitanlega og sumar þeirra höfða meir til fyrri tíma, en gaman fyrir get- spaka að spreyta sig. Það er hún Elín Þorbjarnardóttir sem sendir okkur þessar góðu gátur og hafi hún þökk fyrir. 1. Þegar ég hleyp sem hraðast, hreyfi ég ekki fæturna úr stað? 2. Þegjandi mælir þerna hér, þrætum yfir ljótum, sigurnagla sú þó ber sér í tungurótum. 3. Karl gekk út um nótt og gerði það sem guð gat ekki. 4. Hver er það sem ekki er bróðir minn, ekki systir mín, en þó barn móður minnar? 5. Hver er sá er hleypur dauður heim á láði, oftast hraður, aldrei glaður eins og sérhver lifandi maður? 6. Hvað er það ekki neitt, sem öllu getur breytt og aukið til ómælanda? Það eilífðinni er einni líkt en ekki má ég segja slíkt því allt er þá auðráðanda? 7. Hvað er það sem þú hefur á hægri hendi hvort sem þú ferð frá austri til vesturs eða vestri til austurs? 8. Hvað er fljótara á ferðinni en ljósið? 9. Einn er sá er allir líta og eins konungar, en gylfi sólar séð ei hefur, svoddan gáta skilnings krefur? Ath. Gylfi sólar = Guð 10. Hver er sá faðir sem etur öll börnin sín? Svör við gátum á bls.49 frá Geysi. Þar kynntu þau sér vel starfsemina og tóku þátt í hinu dag- lega amstri þarlendra. Hilmar Harðarson skrifar: Litla sögu um geðsjúkdóm en hann hefur verið haldinn sjúkdómi er kall- ast geðrof. Hreinskilið og eftirtektar- vert uppgjör og öll spil lögð á borðið, saga hörmulegra atburða og ástands, en um leið litið til bjartari tíðar m.a. segir Hilmar að það gefi sér mikið að starfa innan Geysis. Geysir er gosinn eftir Ólaf Jakobsson og Stefaníu segir nokkuð frá sögu klúbbsins, opnun- inni í Hátúni 10 og um leið frá eigin vinnu - fullri vinnu skv. ráðningu til reynslu. Einn i skáp lýsir baráttunni við for- dómana og því hvað sé nú í raun af- brigðilegt og þá hvað eðlilegt. Sömu- leiðis lýsir Einn í skáp afleiðingum sparnaðar í heilbrigðiskerfinu og endar á að segja: Aukum fjárveitingar í heil- brigðiskerfið og spörum. Nonni spyr svo vinnuveitendur: Viltu ráða starfsmann sem mætir 100% en á því kerfi byggir Klúbb- urinn Geysir einmitt. Umljöllun um hressilegt gos hæfir að ljúka á órímuðu ljóði Þórnýjar: H.S. L-jóð Ég fæddist eins og þú. Sleit barnsskónum. ...Ég þótti sérstakur krakki. Og uppreisnargjarn unglingur. Árin liðu. Smátt og smátt heltist ég úr lestinni. Umhverfið kallaði: STATTU SITTU GERÐU VERTU Ég dró mig inn í skel. Þar er svo gott að vera. Tíminn leið í deyfð og myrkri. Sjálfsmatið ekkert. Svo kallaði sólin: KOMDU ÚT!!! Fólk, með sömu reynslu. ...Ég er þá ekki alveg ein. Það er svo gott að vita að maður er ekki einn....í fjöldanum. Þórný. Hlerað í horniim í miklu hófi í tilefni af merkisafmæli góðborgara eins vildi svo til að frænka afmælisbarnsins var í einstak- lega stórrósóttum kjól og var rétt við ræðupúltið þegar veislustjóri gaf orðið laust. Sá sem fyrst kom í ræðu- stólinn hóf mál sitt svo: “Ég sé að ég verð hér að ganga fram fyrir skjöldu.” Þá gall við í þeim sem stóð við hlið þeirrar í stórrósótta kjólnum. “Kallarðu aumingja konuna Skjöldu?”. Jón Pálmason, sem lengi var forseti Sameinaðs Alþingis, bjó uppi á lofti yfir drengjafataversluninni Nonna, þegar hann dvaldi í Reykjavík. Nú bauð hann sýslumanni einum utan af landi heim til sín, en af því hann var ekki nógu viss um ratvísi sýslumanns stóð hann fyrir dyrum úti. Þegar sýslumaður kom svo sagði Jón: “Ja, þú hefur ekki verið í vand- ræðum með að rata.” “Þetta var nú enginn vandi. Það stendur nafnið þitt á húsinu stórum stöfum: Nonni.” FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 37

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.