Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Blaðsíða 38

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Blaðsíða 38
FORELDRAHÚ SIÐ Formálsorð ritstjóra: 28. apríl sl. bauð Þorsteinn Jó- hannsson mér í heimsókn með sér niður í For- eldrahús Vímu- lausrar æsku í Vonarstræti. Raunar hafði vinkona ritstjóra er þar starfar, Þórdís Sigurðardóttir, verið búin að bjóða honum í morgunkaffi svo ailt kom þetta vel heim og saman. Þorsteinn er einmitt ásamt fleira góðu fólki í stjórn Vímulausrar æsku og þess vegna bað ritstjóri hann í framhaidi af hinu veglega boði góðra veislufanga að skrifa grein um málefnið og húsið. Og hvað skyldi svo valda því að rit- stjóra þykir við hæfi að birta slíka grein í Fréttabréfi Öryrkjabanda- lagsins? Augljós eru tengslin þegar betur er að gáð. Áfengisneysla kemur hörmulega inn í örorku- dæmi svo alltof margra, stundum raunar sem aðalorsök, stundum áhrifamikill, samverkandi þáttur. Og ekki munu afleiðingar annarrar vímuefnaneyslu verða síður af- drifaríkar. Öllum aðgerðum, allri hjálpar- starfsemi í þessum efnum ætti því sannarlega að taka fagnandi hér á bæ, svo dýrmætt sem það starf allt er, ómetanlegt í raun. Og skal nú Þorsteini gefið orðið: Þorsteinn Jóhannsson Foreldrahúsið, Vímulaus æska og Foreldrahópurinn Foreldrasamtökin Vímulaus æska voru stofnuð árið 1986 og var mark- mið samtakanna að hjálpa foreldrum að vinna forvarnarstarf með börnum sínum, ásamt því að aðstoða foreldra sem eiga börn í vímuefnaneyslu. Frá byrjun hafa samtökin gefið út blöð, bækur og fræðslurit, haldið fræðslu- fundi og ráðstefnur, þar sem tekið er á þeim málum sem efst eru á baugi í vímuvarnarmálum hverju sinni. For- eldrasíminn hefur einnig verið starf- ræktur frá upphafi. Árið 1996 sameinaðist Foreldra- hópurinn Vímulausri æsku. Með til- komu Foreldrahópsins urðu mikil kaflaskipti í starfsemi Vímulausrar æsku. Til liðs við samtök áhugamanna um vímuvarnir komu foreldrar barna sem áttu eða höfðu átt börn í neyslu. Foreldrahúsið í Vonarstræti 4b var stofnað 1999. Þar starfar saman sam- hentur hópur starfsmanna Vímu- lausrar æsku, Foreldrahópurinn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum sem varða samskipti við börn og unglinga. Foreldrahúsið hefur aðgang að sálfræðingi, félagsráðgjafa, geð- hjúkrunarfræðingi, afbrota- og upp- eldisfræðingi, svo eitthvað sé nefnt. Auk daglegrar þjónustu við foreldra á skrifstofutíma, er Foreldrasíminn opinn allan sólarhringinn. Markmiðið er að foreldrar og aðstandendur barna geti hvenær sem er náð til starfs- manna, hvort sem er að degi til eða í Frá Foreldrahúsinu. neyðartilfellum á nóttinni. Gildir þá einu hvort komið er í óefni vegna neyslu, þörf sé á upplýsingum í vafa- tilfellum eða til þess að fá aðrar upp- lýsingar. I Foreldrahúsinu fá að- standendur ráðgjöf og geta þeir valið Hlerað í hornum Eiginmanninum þótti sem eiginkonan væri farin að heyra illa og einn góðan veðurdag hugðist hann mæla heyrn hennar. Þegar hann kom heim sagði hann í heldur lágri rómhæð: “Hvað er í matinn, elskan?” Ekkert svar. hvort þeir fái forelda vímuefnabarna til ráðgjafar og aðstoðar eða einhvern af þeim fjölmörgu sérfræðingum sem Foreldrahúsið hefur aðgang að. Mark- miðið er að allir geti fengið skjóta að- stoð á neyðarstundu og tilvísun á færustu aðila hverju sinni. Mikil áhersla er lögð á sem nánast samband við alla þá íjölmörgu aðila sem vinna að meðferð barna og unglinga, svo sem Barnaverndarstofu, félags- þjónustuna, lögregluna, ÍTR og aðra sem starfa að slíkum málurn. Ef þú ert aðstandandi barns eða unglings og þig vantar aðstoð eða upplýsingar um vímuefnamál, vertu velkominn í Foreldrahúsið eða hringdu. Foreldrahúsið, Vonarstræti 4b, s. 511-6161 Foreldrasíminn, opinn allan sólarhringinn, s. 581-1799. Þorsteinn Jóhannsson í stjórn Vímu- lausrar æsku og Foreldrahússins.- Hann endurtekur spurninguna nokkru hærra en allt á sömu leið, ekkert svar. Þá spyr hann stundarhátt: “Hvað er í matinn elskan?”. Þá svarar konan í sömurómhæð: “Hvað er eiginlega að þér maður? Ég er búin að segja þér það tvisvar”. 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.