Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Blaðsíða 40

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Blaðsíða 40
TYLLT NIÐUR FÆTI f TJALDANESI Asólríkum en svölum apríldegi lögðum við Guðríður Ólafs- dóttir land undir hjól og höfðum til farsællar fylgdar okkur Þór Garðar Þórarinsson, fram- kvæmdastjóra Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra á Reykjanesi. Ferðinni var heit- ið upp í Tjaldanes í Mosfellsdal en þar ætluðum við að skyggnast um og fá numið ein- hvern fróðleik um Andrea starfsemina. Axelsdóttir Glöggt er gests .... augað segir fornt orðtak og þó vart sé við því að búast að stutt heimsókn skili miklu í því efni, skal þó reynt hér á eftir að koma einhverju til skila. Sjón er sögu ríkari og það kom okkur Guðríði óþægi- lega á óvart hvert ástand húsakynna er á þessu annars fjölmenna heim- ili. Tjaldanes á sér annars 35 ára sögu og var fyrst til heimilisins stofnað sem barnaheimilis og þá var það sjálfs- eignarstofnun. Frá upphafi hafa þarna dvalist þroskaheftir einstakl- ingar. 1983 var heimilið alfarið sett undir Stjórnarnefnd ríkisspítalanna en nú heyrir starfsemin undir svæðisskrif- stofuna á Reykjanesi. Sá sem lengst veitti heimilinu forstöðu var Birgir Finnsson. En svo beint að nútímanum og heimsókninni. Þær tóku á móti okkur Sólveig lngibergsdóttir og Andrea Axelsdóttir forstöðumenn og fylgdu þær okkur um öll húsin á bænum. Við byrjuðum á að spyrja hve marg- ir væru í Tjaldanesi nú og þar eru nú 18 heimilismenn og að auki er í einu húsinu sérrekið heimili fyrir unglinga þar sem þrír dveljast nú. Þær Sólveig og Andrea sögðu okkur frá miklum músagangi í húsunum og eins því hve rafmagnskerfið þarf- naðist mikilla lagfæringa, en ekki óalgengt að rafmagninu slægi út og sem dæmi nefndu þær að bruna- varnarkerfið virkaði ekki nægilega. Húsið sem við heimsóttum fyrst heitir Miðbær (öll nöfnin valin af heimilismönnum), þar er ágætis íþróttasalur, mest notaður fyrir boccia, en þaðan er gengið út þar sem útisundlaug er, en er því miður al- gjörlega ónothæf og heldur ókræsi- legt umhverfis. Þær sögðu blása með öllum veggjum og við fengum smjör- þefinn af því, enda næddi úti. Við litum inn í herbergi heimilis- manna, skelfilega lítið rými, rétt um 6 ferm. og þær upplýstu okkur um að á öllum staðnum mætti kalla 3 her- bergi “þokkalega” stór. Við hittum einn heimilismanna, en þeir voru margir hverjir önnum kafnir við heimilisverkin og hann sagðist vonast til að komast sem fyrst á sam- býli. Þegar við komum í Glæsibæ þar sem 8 íbúar eru þá voru greinileg merki um alls ónógt viðhald, s.s. mátti sjá á gólfefni þar sem víðar. Heimilismenn eru allir með í heimilisstörfum, misduglegir og mishæfir að sjálfsögðu en kappsmál að taka þátt. Þeir versla allt sjálfir, þrífa og þvo undir eftirliti, raða og flokka. Eitt er rétt að fram komi, heimilismenn eru allt karlar og svo hefur alltaf verið. í herbergjum sínum eru þeir með eigin húsgögn, en sjónvarpsskilyrði raunar afleit og enn verra er það að ólag er á símkerfinu, sem vægast sagt er skelfilegt ef eitt- hvað kæmi nú upp á. Reyndin sú að heimilismenn halda mikið til í eigin herbergjum. Sem innskot er rétt að koma því að, að flestir urðu heimilismenn í Tjaldanesi 25 en voru 23 við yfirtöku svæðis- skrifstofunnar. Þá var næst haldið til Árbæjar, þar sem skrifstofa heimilisins er og fund- araðstaða fyrir starfsfólk. Þær stöllur segja að þrátt íyrir nokkra hæfingu heimilismanna þá mætti hún meiri vera, en ekki fengist íjárveiting til ráðningar starfsfólks. Það sem við Guðríður tókum einkanlega eftir þarna var sterk lykt af músunum og þeirra “afurðum”, en einnig að loft- hæð var með öllu ótæk. Þær sögðu þarna hafa verið reynda sumardagvist fyrir einhverfa og reynst vel. r ISmiðjubæ er ýmislegt að en það hús var endurbyggt 1984 og greini- lega ekki nógu vel. Þama er vinnu- staður heimilismanna þar sem 8-10 Það er margt góðra hluta gjört í Tjaldanesi. Sólveig Ingibergsdóttir 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.