Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Page 47

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Page 47
r Asgrímur^ngi Arngrímsson: Ljóðs manns æði Formálsorð: annarlega vakti það gleði ritstjóra þegar til hans kom ungur kennaranemi frá Borgarfirði eystra, Ásgrímur Ingi Arngrímsson og kvaðst ætla að freista þess að skrifa B.Ed ritgerð sína í Kenn- araháskólanum um frænda sinn Þorbjörn Magnússon og ljóðagerð hans. Þorbjörn var hinn trúi og trausti Sjálfsbjargarfélagi og ljóð hans hrífandi fogur og hafa birst hér í Fréttabréfi ÖBÍ bæði er Þorbjörn var lífs sem Iiðinn. Án þess að orðlengja það frekar kom svo Ásgrímur Ingi síðar á fund ritstjóra með ritgerð sína, einkar athyglisverða og vel skrifaða, þar sem hinni fjölbreyttu ljóðasmíð Þorbjarnar eru gjörð afar verðug skil. En Ásgrímur Ingi kom um leið með nýútgefna ljóðabók sína sem hann nefnir Ljóðs manns æði og rit- stjóri getur ekki stillt sig að birta hér þrjú þeirra, tvö órímuð eða óhefðbundin og eitt rímað. Megi lesendur vel njóta sem hann gjörði: Tár Það vissi ég fyrir löngu síðan að rigningar- droparnir væru tár Guðs. Hins vegar hafði ég ekki hugmynd um það fyrr en ég flutti til Reykjavíkur að hann væri svona mikil bölvuð grenju- skjóða. honum. Hans og Gréta reyna að stinga norninni inn í örbylgjuofninn en örbylgjuofnar eru ekki hannaðir fyrir nornir. Hans klaufi er hafður í sérkennslu fyrir börn sem eiga við alvarlegan greindarskort og hegðunarvanda- mál að stríða. Mjallhvít? Nei það var fyrir tíma ljósabekkjanna. Rauðsokka neitar að sauma fyrir magann á úlfinum af því að það er ekkert frekar kvenmannsverk. Þyrnirós er svo morgunfúl að prinsinn leggur ekki í að vekja hana og keisarinn þarna með strípihneigðina, hann var lokaður inni svo hann hætti að bera sig á almannafæri. Þeir froskar sem ég þekki eru með krónískan varaþurrk af kossaleysi og þeir vilja meina að heimur ævintýranna sé á vonarvöl. Hræsni Ég les um marga heimsins syni og heyri sem hafa drepist slyppir bæði og snauðir. Víst gerir ijarlægð mennina oft meiri en margfalt stærri verða þeir samt dauðir. Á hörundi þeirra skullu vítavendir og veröldin hún reyndi á dug og þor. Þeir voru ýmist bannfærðir eða brenndir í besta falli drápust þeir úr hor. Það virtist aldrei vefjast fyrir neinum að velta þeirra mannorði uppúr drullu. Það köstuðu víst fleiri stórum steinum en staðist gátu syndina að fullu. Ævintýri líkast Þegar Öskubuska týnir skónum sínum nú til dags þá hirðir enginn um að beygja sig eftir Merkilegt er hvað mörgum týndum sauðum mönnunum tekst að bjarga, að þeim dauðum. Ásgrímur Ingi Arngrímsson Hlerað í hornum Einu sinni deildi sýslumaður einn hart á slysavarnarþingi norðanlands við hefðarkonu eina um björgunar- skútu fyrir Norðlendinga. Eftir þingið var slegið upp balli og sýslu- maður bauð hefðarfrúnni óðara upp, sveif með hana út á gólfið og sagði stundarhátt: “Hér sigli ég nú fullum seglum með björgunarskútu Norður- lands.” Maður einn kom úr ferðalagi frá Af- ríku og var spurður um ferðina. Hann svaraði svo: í Afríku eru tvær sortir af negrum og þær eru báðar svartar. En maður þekkir þær að á lyktinni. Tveir Molbúar voru saman um haga- göngu fyrir hesta sína. Svo öruggt væri að þeir þekktu þá nú í sundur var bundin þessi fína rauða slaufa í taglið á öðrum hestinum. Nú týndist slauf- an og þá voru góð ráð dýr. Allt í einu segir annar þeirra: “Ég veit ráð. Þú tekur þann gráa, en ég tek þann skjótta.” Prestur einn kom inn í verslun og bað um að fá lánaða símaskrá. Hann rýndi í hana um stund en svo segir hann stundarhátt: “Þetta get ég ekki lesið. Þetta er sama bölvaða lúsa- letrið og á biblíunni.” Úr afmælisræðu: “Ég dreg engar dulur á þetta.” FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 47

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.