Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1968, Side 6

Íþróttablaðið - 01.12.1968, Side 6
S. Tillaga um aöstöðu fyrir íþróttaiðkanir almennings og íþróttafélaga. „Iþróttaþing ISÍ, haldiS í Reykjavík 7.—8. septem- ber 1968, skorar á menntamálaráðherra að hlutast til um, að í reglugerðum þeim um mat á þátttöku ríkis- sjóðs í byggingu íþróttamannvirkja skóla, sem nú er unnið að í menntamálaráðuneytinu skv. lögum um skólakostnað, verði tekið fullt tillit til aðstöðu fyrir íþróttaiðkanir almennings og íþróttafélaga. Jafnframt bendir þingið á nauðsyn þess, að tekin verði upp stöðlun íþróttahúsa og stefnt verði að því að gera þau einfaldari og ódýrari í byggingu. Iþróttaþingið skorar á væntanlega framkvæmda- stjórn Isl að fylgja máli þessu eftir.“ 9.—10. Tillögur um íþróttamiðstöðina að Laugarvatni. „Iþróttaþing ISl, haldið í Reykjavík 7.—8. september 1968, lýsir ánægju sinni yfir þeim framkvæmdum, sem forseti og sambandsstjórn hafa beitt sér fyrir að Laug- arvatni. Þingið skorar á forystumenn íþróttahreyfingarinnar að beita sér fyrir því, að íþróttafólk noti þá frábæru aðstöðu, sem þarna hefur verið sköpuð". „Iþróttaþing 1968 fagnar því, að íþróttamiðstöð- in á Laugarvatni er nú að verða tilbúin til notkunar. Þingið telur nauðsynlegt, að rekstrarnefnd miðstöðv- arinnar auglýsi með góðum fyrirvara, hvaða tima sérsambönd og héraðssambönd geta fengið til nám- skeiðahalds í miðstöðinni, t. d. fyrir 1. nóvember. Samböndin sendi síðan nefndinni óskir sínar fyrir 1. febrúar, en að þeim tíma loknum geti rekstrarnefnd i'áðstafað miðstöðinni eftir því, sem hún telur réttast". 11. Tilllaga um styrk vegna kostnaðar við íþróttakennslu. „Iþróttaþing ISl 1968 beinir þeirri ákveðnu ósk til íþróttanefndar rikisins, að hún styrki framvegis hús- næðiskostnað vegna íþróttaiðkana, svo og ferða- og dvalarkostnað kennara á sama hátt og kennaralaun". Að loknum umræðum fóru fram kosningar og voru eftirtaldir menn allir kosnir til starfa einum rómi þingfulltrúa: Forseti ISÍ: Gísli Halldórsson. Aðalfulltrúar í framkvæmdastjórn: Guðjón Einarsson, Gunnlaugur J. Briem, Sveinn Björnsson, Þorvarður Árnason. Varastjórn: Gunnar Vagnsson, Hannes Þ. Sigurðsson, Atli Steinarsson, Gunnar Hjalta- son, Böðvar Pétursson. Endurskoðendur: Þórarinn Magnússon, Árni Bjarnason. Varaendurskoðendur: Stefán G. Björnsson, Gunnar Eggertsson. Tilnefning fulltrúa kjördæmanna ásamt vara- mönnum í sambandsráð. (Aðalfulltrúar taldir á undan): Vesturland: Óðinn Geirdal, Jón F. Hjartar. Vestfirðir: Sigurður Jóhannsson, Þór Hagalín. Norðurl. vestra: Guðjón Ingimundarson, Júlíus Júlíusson. Norðurl. eystra: Ármann Dalmannsson, Þór- oddur Jóhannsson. Austfirðir: Björn Magnússon, Jón Ólafsson. Suðurland: Þórir Þorgeirsson, Stefán Run- ólfsson. Reykjavík: Jens Guðbjörnsson, Sæmundur Gíslason. Reykjanes: Yngvi R. Baldvinsson, Jón M. Guðmundsson. I íþróttadómstól voru kjörnir: Aðalmenn: Þórður Guðmundsson, Kristján L. Gestsson, Einar Sæmundsson, Frímann Helgason, Gísli Sigurðsson, Andreas Bergmann, Stefán Krist- jánsson, Jón Ingimarsson, Einar Björnsson. Til vara: Gunnar Már Pétursson, Ragnar Vignir, Guðlaugur Guðjónsson, Haraldur Snorrason, Þorkell Magnússon, Lúðvík Þor- geirsson, Jón Egilsson, Valdimar Örnólfsson, Sigurjón Þórðarson. Elztur og- yngstur fulltrúa á íþróttaþinginu 1968. Frá vinstri: Sigurður Greipsson í Haukadal, fulltrúi Héraðs- sambandsins Skarphéðins, og Steinþór Torfason í Hala, fulltrúi Ungmennasambandsins Ulfljóts. 246

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.