Íþróttablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 40
um á sumrinu í heldur leiðinlegu keppnisveðri.
íslandsmeistari varð Ragnheiður Pálsdóttir,
HSK, þaulvanur kastari, sem við höfðum þó
ekki séð á keppnisvelli næstliðin 2 ár, og hún
bar einnig sigur úr býtum í bikarkeppninni.
Ragnheiður hefur komizt næst því að slá met
Maríu heitinnar Guðmundsdóttur, 36,12 m frá
1951, en Ragnheiður kastaði kringlunni 35,80
m árið 1961. Meistaramótsárangur Ragnheiðar
nú skipar henni í 5. sæti á afrekaskráinni sl.
stunar. Önnur á meistaramótinu varð Ingibjörg
Sigurðardóttir, HSK, en hún er í fjórða sæti á
skránni með 31,58 m. I öðru og þriðja sæti á
skránni eru tveir nýliðar, Kristjana Guðmunds-
dóttir, ÍR sem áður er minnzt á, með 34,24 m,
og Jenný Guðjónsdóttir, HSH, með 33,60 m.
Kristjana varð 2. í bikarkeppninni, næst á eftir
Ragnheiði Pálsdóttur, en Jenný varð í 3. sæti á
Eiðum, einnig næst á eftir Ragnheiði Pálsdótt-
ur. Sú sjötta, sem kastaði yfir 30 m sl. sumar,
var svo eyfirzka kraftakonan Sigurlína Hreið-
arsdóttir með 30,90 m, en með þann árangur
varð hún önnur í unglingakeppni FRl.
Kringlukast
Islandsmeistari:
Ragnheiður Pálsdóttir, HSK 31,44 m
2. Ingibjörg Sigurðardóttir, HSK 31,17 m
3. Dröfn Guðmundsdóttir, UMSK 29,81 m
4. Emelía Baldursdóttir, UMSE 28,82 m
5. Ólöf Halldórsdóttir, HSK 28,34 m
6. Sigurlína Hreiðarsdóttir, UMSE 27,95 m
Árið 1967 köstuðu 4 stúlkur spjóti yfir 30
m hér á landi, og var það meira en nokkru
sinni fyrr. Sumarið 1968 köstuðu hvorki meira
né minna en 12 stúlkur yfir 30 m hér á landi,
og sýnir það ljósast framfarirnar hjá stúlkun-
um.
Methafinn, Valgerður Guðmundsdóttir, IR,
skipar fyrsta sæti á afrekaskránni með 34,67
m, og Islandsmeistari varð hún með 34,13 m
kasti. I öðru og þriðja sæti eru tvær kornung-
ar, en efnilegar stúlkur í Vestmannaeyjum,
Ásta Finnbogadóttir með 34,50 m og Erla
Adolfsdóttir með 33,40 m. Það er sagt, að eplið
falli sjaldan langt frá eikinni, og við skulum
vænta þess, að gamli landsliðsmaðurinn haldi
áfram að glæða áhuga dóttur sinnar og stöllu
hennar fyrir þessari fögru íþrótt. Þá þurfum
við heldur ekki lengi að bíða þess, að spjót-
kastsmetið færist yfir á fimmta tuginn, því að
stúlkurnar eru bráðefnilegar báðar tvær. Þær
kepptu hér í unglingakeppni FRÍ og sigraði
Erla, kastaði ein keppenda yfir 30 m, enda voru
aðstæður til keppni þá vægast sagt hinar lé-
legustu.
I f jórða sæti á skránni er gamalreyndur kast-
ari, Arndís Björnsdóttir, UMSK, með sigurár-
angur sinn frá landsmótinu á Eiðum, 33,32 m,
en í fimmta sæti kemur nýliði úr Kópavogi,
Alda Helgadóttir, sem ekki sýndi þó neinn ný-
liðabrag síðastliðið sumar, önnur á Eiðum,
önnur á Meistaramóti Islands og sigur-
vegari í bikarkeppni FRl, en þá náði hún bezta
árangri sínum á sumrinu, 31,39 m.
Þær aðrar, sem köstuðu spjóti yfir 30 m sl.
sumar, voru: Ingveldur Róbertsdóttir, IR
(30,95), Elma Guðmundsdóttir, UÍA (30,89),
Sólveig Þráinsdóttir, HSÞ (30,88), Guðlaug
Kristinsdóttir, KR (30,45), Bergþóra Ásmunds-
dóttir, HSÞ (30,40), Fríða Proppé, IR (30,31)
og Eygló Hauksdóttir, Á (30,25), en Eygló
varð þriðja á meistaramótinu með þann árang-
ur.
Meðaltal 10 beztu í spjótkasti kvenna sum-
arið 1968 var 32,085 m, en hafði bezt orðið
29,782 m. Var það árið áður.
Spjótkast
Islandsmeistari:
Valgerður Guðmundsdóttir, ÍR 34,13 m
2. Alda Helgadóttir, UMSK 31,26 m
3. Eygló Hauksdóttir, Á 30,25 m
4. Hrefna Sigurjónsdóttir, IR 27,21 m
5. Ragnheiður Davíðsdóttir, IR 24,45 m
6. Ingveldur Róbertsdóttir, lR 23,63 m
Fimmtarþraut.
Aðeins 6 stúlkur kepptu í fimmtarþraut hér-
lendis sl. sumar, og þeirra langbezt var Þuríður
Jónsdóttir, HSK, með nýtt Islandsmet, 3568
stig, sett á Meistaramóti Islands. Hún hljóp 80
m grindahlaup á 12,7 sek. í meðvindi 7 m/sek.,
varpaði kúlu 7,95 m, stökk 1,39 m í hástökki,
stökk 5,26 m langstökk í meðvindi 2,8 m/sek.,
og loks hljóp hún 200 m á 27,9 sek.
Eftir þeim reglum, sem í gildi voru 1967—
1968, voru afrek í fjölþrautum ekki takandi
gild, ef ekki voru löglegar aðstæður við hverja
eina grein þrautarinnar, en á þingi alþjóðasam-
bandsins í Mexico City í haust var þessum regl-
um breytt til samræmis við það, sem áður var.
Það er því engin ástæða til þess að láta þá af-
280