Íþróttablaðið - 01.12.1968, Side 42
Dagana 5. og 6. júlí 1968 fór fram á Laugartlalsvell-
inum í Reykjavík Norðurlandameistaramót í fimmtar-
þraut kvenna og tugþraut karla, og þar hófst og lauk
keppni sama móts í maraþonhlaupi. I ljósopinu sjáum
við nokkrar svipmyndir frá mótinu, myndir af þeim
persónum, sem mestan settu svip á mótið.
Á 1. mynd sjáum við Danann
Steen Schmidt-Jensen, sem varð
annar í tugþrautarkeppninni, i
stangarstökki, en í þeirri keppni
bar hann sigur úr býtum með yf-
irburðum. Ef stangarstökkvaram-
ir okkar gætu nú bara lært að
beygja trefjastöngina svona.
Gamall, finnskur rútur, frétta-
maður frá finnska útvarpinu, var
sá af útlenzku gestunum, sem
flestum varð starsýnast á, enda er
Pekka Tiilikainen skemmtilega
grófskorinn. A mynd 2 sjáum við
hann fylgjast með keppninni „með
auga kunnáttumannsins“.
Enda þótt þrír Islendingar, sinn
á hverjum tima, hafi rölt mara-
þonvegalengd hérna austan af
Hellisheiðinni, hafði aldrei farið
282