Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1968, Page 8

Íþróttablaðið - 01.12.1968, Page 8
Jafnframt því að fjölga sérsamböndum höfum við unnið markvisst að því að fjölga íþróttagreinum, sem iðkaðar eru hér. I því skyni var ákveðið fyrir tveimur árum, að ISl tæki borðtennis á stefnuskrá sína. En borðtennis má víða iðka í húsrými, sem ekki hæfir fyrir aðrar íþrótta- greinar, eins og t. d. í félagsheimilum og fundarsölum. Leikreglur hafa verið samdar fyrir borðtennis, og eru íþróttafélögin þegar byrjuð æfingar á þessari iþrótt. Fyrsta mótið hefur þegar farið fram á Akur- eyri, og ber vissulega að fagna því. Borðtennis er fjöl- mennasta iþróttagrein, sem iðkuð er í Svíþjóð, og trú legt er, að svo geti einnig orðið hér. Leikreglur fyrir lyftingar hafa einnig verið gefnar út nýlega, og verður bráðlega haldið fyrsta mótið í þeirri grein, sem haldið hefur verið hér. Mikill og vax- andi áhugi er fyrir lyftingum, og hefur einn iðkandi náð svo góðum árangri, að ákveðið er að senda hann sem þátttakanda í Olympíuleikjunum í Mexíko. Þá er glímubókin komin út, og fá þingfulltrúar tækifæri til að sjá hana hér með þingskjölum. Við væntum þess, að hún eigi eftir að verða mikil lyfti- stöng fyrir glímuna í landinu. Veit ég, að GLl mun fagna þessu framtaki ISÍ, en er sambandið var stofn- að, lofuðum við að sjá um og kosta útgáfu á þessari bók. Vil ég nota tækifærið og þakka nefnd þeirri, er sá um útgáfuna, og þá sérstaklega Þorsteini Einars- syni, íþróttafulltrúa, fyrir hans miklu vinnu og fórn- fúsa starf, sem hann hefur lagt af mörkum við samn- ingu hennar. Undirstaðan undir fjölgun íþróttagreina er, að rétt- ar leikreglur séu ávallt fyrir hendi, og hefur fram- kvæmdastjórnin viljað tryggja, að svo væri. Sérstök nefnd starfar að útgáfu leikreglna, og er ástæða til að þakka henni einnig góð störf. Á undanförnum árum hefur það verið markviss stefna ISl að koma upp tveimur íþróttamiðstöðvum í landinu. Mál þetta hefur verið rætt á formannafundi, svo og á íþróttaþingi, er haldið var á Isafirði fyrir tveimur árum. Þar fékk framkvæmdastjórnin heimild til þess að vinna að framgangi þessara mála, og voru jafnframt samþykktar fjárveitingar i þessu skyni. Ákveðið var, að önnur íþróttamiðstöðin skyldi vera á Ákureyri fyrir vetrariþróttir, en hin skyldi staðsett á Suðurlandi og vera fyrst og fremst fyrir sumaríþróttir. Upphaflega var reiknað með, að þessum framkvæmd- um yrði lokið fyrir 1970, en vegna hagstæðra samn- inga er framkvæmdum nú að ljúka við íþróttamið- stöðina á Suðurlandi, sem er staðsett að Laugarvatni eins og þingfulltrúum er kunnugt. Fyrir einstæðan dugnað Ákureyringa er búið að reisa mikla og vand- aða skíðalyftu í Hlíðarfjalli við Ákureyri. Var hún tekin í notkun á s. 1. vetri með hátíðlegri athöfn. Áður var búið að reisa þarna fullkomið skíðahótel og minniháttar lyftur. Með tilkomu hins nýja mann- virkis er komin fullkomin aðstaða til þess að iðka þarna skíðaæfingar, jafnt fyrir beztu skíðamenn sem byrjendur. Enda var svo strax í vetur, að olympiu- farar okkar æfðu í Hlíðarfjalli í stað þess að fara utan til æfinga eins og venjulega hefur verið talið nauðsynlegt. Það er ekki ætlun ISl að sjá á neinn hátt um rekst- ur þessarar íþróttamiðstöðvar, það munu Ákureyring- ar sjálfir gera. En reiknað er með að styrkja starf- semina þarna og tryggja, að nýting verði sem bezt. Til þess að flýta fyrir byggingu skíðalyftunnar lánaði ISl úr lána- og framkvæmdasjóði 1.000.000 kr. til framkvæmdanna. Við skíðaskólann á Isafirði hefur einnig verið byggð skíðalyfta, og er nú þar afbragðs aðstaða fyrir skíða- fólk. Til þeirra framkvæmda lánaði ISl 400.000 kr. Þegar fjallað var um íþróttamiðstöð á Suðurlandi á síðasta íþróttaþingi, var talið eðlilegast og heppileg- ast, að ISl fengi að byggja sérstakan skála á lóð íþróttakennaraskóla Islands. En vegna þess að upp- bygging iKl að Laugarvatni hefur gengið mjög seint og það beinlínis háð skólanum og íþróttastarfinu að geta ekki útskrifað nægilegan fjölda íþróttakennara, þá fór framkvæmdastjórnin þess á leit, að hún fengi að byggja sem svaraði efri hæð nemendahúss, sem hafin var bygging á, gegn því, að ríkisvaldið hækkaði framlag sitt til framkvæmdanna. Með því að sameina átak ríkisins og ISl var sýnt, að hægt var að flýta til muna byggingu heimavistar- hússins. Hér var því um hagstæða samninga að ræða fyrir báða aðila. Menntamálaráðherra féllst á þessa málaleitan, og er iSl eigandi að nemendahúsinu sem nemur um 30%. Samningurinn var tekinn upp í skýrslunni,* og er því ekki ástæða að rekja hann hér, en aðeins geta þess, að reiknað er með þvi, að ISI geti starfrækt þarna íþróttamiðstöð um 3ja mánaða skeið á ári og fái af- not af öllum eignum ÍKÍ, það er að segja völlum, íþróttahúsi og öllu heimavistarhúsinu. En að vetrar- lagi leigi iKl okkar húsnæði fyrir nemendur sína. Ætlunin er, að ISl reki þessa íþróttamiðstöð í sam- vinnu við sérsamböndin. Væntum við að hefja starf- semi þarna svo fljótt sem auðið er næsta sumar, er skólahaldi lýkur. Ákveðið er, að byrjað verði á leiðtoganámskeiði, en það verður að teljast einn veigamesti þátturinn í vexti íþróttahreyfingarinnar, að ávallt séu hæfir leiðtogar fyrir hendi, sem hafa lært nokkuð til síns starfs. Væntum við, að slík námskeið verði vinsæl og geti orðið árlegur liður í starfinu, Þá verða þessar miðstöðvar til þess að kenna þjálf- urum og leiðbeinendum, en á því hefur verið mikil vöntun, að aðstaða væri fyrir hendi til þeirrar starf- semi. Hægt verður að senda landslið hér eftir í æfinga- búðir til hvers konar æfinga við hin beztu skilyrði. Við væntum þvf, að þessar íþróttamiðstöðvar verði mikil lyftistöng fyrir allt íþróttalíf í framtíðinni. Þegar litið er á hina öru fjölgun þeirra, er leggja stund á íþróttir, þá verður að viðurkenna, að enn er víða skortur á aðstöðu, til þess að æskan geti æft og iðkað íþróttir, Víða er svo komið, að íþróttafélögin eiga þess ekki kost að fjölga félögum í vissum grein- * Samningurinn var birtur í heild í Iþróttablaðinu. 248

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.