Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1968, Síða 79

Íþróttablaðið - 01.12.1968, Síða 79
íslandsmeistarar í knattspymu 5. aldursflokks 1968: KR. um og síðan fyrir Víkingi, en sótti sig síðan mjög og vann alla aðra leiki sína. Víkingur sigraði Val svo 18. ágúst örugglega á Mela- velli með tveimur mörkum gegn engu. 5. flokkur. Eins og svo oft áður var keppni þeirra yngstu skemmtilegust. 1 engum öðrum flokki var keppnin eins spennandi. 1 A-riðli voru tvö lið, KR og Fram, í talsverðum sérflokki, eins og sjá má á töflunni. Lið þessi voru mjög áþekk að styrkleika, enda gerðu þau jafntefli í leik sínum í riðlinum 1:1. KR-ingar urðu sigurvegarar með hagstæðari markatölu. En það var ekki aðeins á toppnum, sem um spennandi keppni var að ræða. 1 3. sæti varð efnilegt lið Akraness með sex stig, en síðan komu Víkingur og Valur með fimm stig hvort félag, en Víkingur með hagstæðara markahlutfall. 1 B-riðli var keppnin ekki síður spennandi. Lið IBV og Hauka urðu jöfn með 10 stig, en Vestmannaeying- ar sigruðu vegna hagstæðara markahlutfalls. Breiða- bliksliðið, sem varð 3. í röðinni, tók þó drjúgan þátt í keppninni um efsta sætið, sigraði t.d. Vestmannaey- inga, sigurvegarana, með fjórum mörkum gegn þrem- ur. UBK byrjaði illa, gerði jafntefli við Vestra í fyrsta leiknum og tapaði þar dýrmætu stigi. Síðan tapaði UBK fyrir Haukum, en vann síðan alla sína leiki og þar á meðal IBV, eins og áður segir. Haukar töpuðu hins vegar fyrir Eyjamönnum, en unnu annars alla sína keppinauta. Þessi lið voru öll mjög jöfn, hvað getu snertir, og vart er hægt að gera upp á milli liðanna fimm, sem efst urðu í riðlunum, þ.e. KR, Fram, IBV, Hauka og UBK, og er óvíst, hver hefði orðið sigur- vegari, ef lið þessi hefðu öll keppt innbyrðis. En hvað um það, KR og IBV voru komin í úrslit. Urslitaleikurinn fór fram 21. ágúst á Melavellinum í dumbungsveðri. Leikur þessi var allur hinn skemmti- legasti. Vestmannaeyingar áttu öllu fleiri tækifæri í leiknum og voru afar óheppnir að skora ekki, en leikn- um lauk án þess, að mark væri skorað. Það þurfti því annan leik til að útkljá úrslitin. Sá leikur fór fram daginn eftir, og snerist taflið þá alveg við, því að nú höfðu KR-ingar tögl og hagldir í þeim leik og sigruðu með fjórum mörkum gegn einu. KR-ingar urðu því Is- landsmeistarar 5. flokks árið 1968. Þess má geta, að þjálfari KR-liðsins var hinn gamal- kunni leikmaður KR, Atli Helgason, en hann þjálfaði einnig sigurlið Víkings í 4. flokki. RUBBUTS Kveðjuorð ritstjóra Með þessu þrefalda blaði lýkur árganginum 1968, og jafnframt lýkur starfsferli mlnum við blaðið, en nýr ritstjóri, Alfreð Þorsteinsson, mun taka við. Um leið og ég óska þeim nýja ritstjóra gengis í starfi, vil ég færa þakkir þeim lesendum blaðsins, sem hvöttu mig með uppörvandi ummælum um blaðið og blaðamennsku mína, en hins vegar er það engum bet- ur ljóst en mér sjálfum, að mikið skorti á, að blaðið væri þessi sl. 2 ár eins gott og ég hefði sjálfur óskað og vert hefði verið. - En það kvað vera of seint að iðrast eftir dauðann, og því skal ekki um það fást nú. ÞÓRÐUR SIGURÐSSON 319
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.