Skessuhorn - 16.12.2020, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 20208
Fjarlægðu
sprengiefni
BORGARFJ: síðdegis á föstu-
daginn óskað Lögreglan á Vest-
urlandi eftir aðstoð sérsveit-
ar ríkislögreglustjóra. Tildrög
málsins voru þau að ökumað-
ur hafði fyrr um daginn ver-
ið stöðvaður í borgarfirði og
reyndist undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Í kjölfarið fór
fram húsleit í sumarhúsi í hér-
aðinu og fannst þar töluvert
magn af hvellhettum og röra-
sprengju. Því var kallað eftir að-
stoð sprengjudeildar sérsveitar
ríkislögreglustjóra. starfsmenn
embættisins komu á staðinn
með sprengjuleitarhund; leit-
uðu og tryggðu vettvang. „Það
þarf ekki að fjölyrða um hætt-
una sem getur stafað af hvell-
hettum og rörasprengjum. Hér
á landi hafa orðið alvarleg slys
vegna þessa. Í hvellhettum er
alla jafnan hásprengiefni og
í rörasprengjum er oft púður
sem hvort tveggja veldur mikl-
um skaða ef springur í höndun-
um á fólki,“ segir í tilkynningu
frá Lögreglunni á Vesturlandi.
-mm
Tilkynning frá
kjörstjórn Fram-
sóknar
NV-KJÖRD: Í Norðvestur-
kjördæmi fer fram póstkosning
um val á framboðslista Fram-
sóknarflokksins, samkvæmt
reglum flokksins þar um.
„Framboðsfrestur til þátttöku
í póstkostningunni rennur út
þriðjudaginn 17. janúar 2021,
kl. 12:00 á hádegi. Kjörskrá
verður gerð samkvæmt félaga-
tali 2. janúar 2021. Framboð-
um skal skila til formanns kjör-
stjórnar, Valgarðs Hilmarsson-
ar, á netfangið vallih@centrum.
is. Formaðu veitir einnig frek-
ari upplýsingar. Atkvæðisseðlar
verða sendir út 1. febrúar og er
frestur til að skila þeim inn til
og með 26. febrúar. Kosið verð-
ur um 5 efstu sæti listans. sjá
nánar inn á framsokn.is,“ segir
í tilkynningu. -mm
Dósum stolið
frá Brák
BORGARNES: Á þriðjudag-
inn í síðustu viku barst lögreglu
tilkynning um að dósum hefði
verið stolið úr dósagámi björg-
unarsveitarinnar brákar við
Tungulæk, skammt frá borg-
arnesi. Þó að fjárhagslegt tjón
sveitarinnar vegna þessa sé ekki
verulegt þá er þetta engu að síð-
ur þjófnaður og verður að telj-
ast undarlegt að fólk sjái ástæðu
til þess að hnupla frá björgunar-
sveit. -frg
Bílvelta á
Vatnaleið
SNÆFELLSNES: Á miðviku-
dag fór snjómoksturstæki út af
veginum á Vatnaleið. Óhapp-
ið varð með þeim hætti að ver-
ið var að skafa veginn og þegar
komið var að rúlluhliði gleymd-
ist að lyfta tönninn með þeim
afleiðingum að tækið fór út af
veginum. Vegagerðin sá um að
koma tækinu upp á veg en lög-
regla þurfti að stýra umferð á
meðan á aðgerðum stóð. ekki
urðu slys á fólki. -frg
Gangbrautarrétt-
ur ekki virtur
AKRANES: Nokkuð hefur borið
á því að gangbrautarréttur sé ekki
virtur á Akranesi. Lögregla hefur
á undanförnum dögum í tvígang
sektað ökumenn sem ekki hafa
virt gangbrautarréttinn. sektin
fyrir slíkt athæfi er 20.000 kr. en
í öðru tilfellinu hafði ökumaður
jafnframt vanrækt að endurnýja
ökuréttindi sín og hækkaði sektin
við það í 60.000 krónur. -frg
Grímulaus
farandsali
AKRANES: Á fimmtudagskvöld
barst lögreglu tilkynning um far-
andsölumann sem gengi hús úr
húsi án þess að vera með grímu.
Tilkynnanda fannst þetta mjög
óþægilegt. Þegar náðist í farand-
salann sagðist hann ætíð virða
2ja metra regluna og spritta sig
á milli húsa en féllst á að nota
grímu framvegis. -frg
Grjót kastaðist
á bíl
VESTURLAND: Ökumað-
ur á leið um hringtorgið norðan
megin við Hvalfjarðargöng fékk
sand og grjót í bíl sinn á föstu-
dag. Ökumaður sagðist hafa ekið
afar gætilega og gætt þess vel að
hafa gott bil á milli bíla en grjót-
hnullungur sem féll af vörubif-
reið skaust í framrúðu bílsins
og braut framrúðu og skemmdi
toppinn á bílnum. Haft var sam-
band við fyrirtækið sem á vöru-
bílinn og þar gengust menn við
því að hafa verið á ferðinni á um-
ræddum stað og tíma. -frg
Týndur og
tjónaður
BORGARBYGGÐ: Aðfarar-
nótt laugardags barst lögreglu til-
kynning um ölvaðan og blóðug-
an mann í sumarhúsabyggðinni
í svignaskarði sem gengi á milli
sumarbústaða með sæng og virt-
ist ekki vita um næturstað. Þeg-
ar lögreglu bar að garði reyndist
viðkomandi hvorki tala íslensku
né ensku og þurfti því að kalla til
túlk. Hann gat enga skýringu gef-
ið á veru sinni í svignaskarði. Við
nánari skoðun kom í ljós að mað-
urinn var eftirlýstur vegna tilkynn-
ingar um brottvísun. Var hann að-
stoðaður við að komast áleiðis til
Reykjavíkur þar sem lögreglan í
Reykjavík tók við honum. -frg
Á 132 km/klst
hraða
VESTURLAND: Aðfararnótt
laugardags mældist bifreið á 132
kílómetra hraða á Vesturlands-
vegi við Hafnarfjall. Má ljóst vera
að slíkur hraði í myrkri getur ekki
talist í samræmi við aðstæður.
Ökumaðurinn var sektaður um
120.000 kr. -frg
Ölvaður ökumað-
ur undir aldri
BORGARNES: Aðfararnótt
sunnudags stöðvaði lögreglan í
borgarnesi bíl nærri brúartorgi.
Fjórir aðilar spruttu út úr bílnum
og hlupu í allar áttir. Þeir náðust
allir og þegar sá sem ekið hafði
bílnum var látinn blása vaknaði
grunur um ölvunarakstur. Þar
sem ökumaður var undir lögaldri
var aðilum ekið til móts við for-
eldra og í framhaldinu var haft
samband við barnaverndaryfir-
völd. -frg
Í byrjun næsta árs mun Akranes-
kaupstaður efna til hugmynda-
samkeppni um skipulag og hönn-
un Langasandssvæðisins á Akra-
nesi í samstarfi við FÍLA, félag ís-
lenskra landslagsarkitekta. Mark-
miðið með samkeppninni er að fá
hugmyndir um framtíðarskipulag
svæðisins í heild sem tengir m.a.
strandsvæði, skólasvæði, framtíð-
ar uppbyggingarreit og hafnar-
svæðið. svæðið sem um ræðir nær
frá sementsreitnum, þeim kjarna
þar sem framtíðar íbúðarbyggð
mun rísa við Langasand og al-
veg suðaustur að svæðinu við sól-
mundarhöfða, þar sem Hjúkrun-
arheimilið Höfði er og sú íbúða-
byggð sem er þar. Þar á milli er
svo íþróttasvæðið, Guðlaug og
sandurinn sjálfur.
„Við erum að fara af stað með
hugmyndasamkeppni sem Félag
íslenskra landslagsarkítekta er
að halda utan um með okkur og
við ætlum að fá færustu sérfræð-
inga á þessu sviði til að huga að
því hvernig við viljum byggja upp
svæðið. Þetta er stórt verkefni
um dýrmætt svæði og því mik-
ilvægt að kalla eftir skoðunum
flestra,“ segir sævar Freyr Þrá-
insson bæjarstjóri. Hann held-
ur áfram: „Við viljum hefja þessa
vegferð og skapa svæði sem mót-
ast af vellíðan og heilsu fyrir alla
notendur og skiptir okkur máli að
fá íbúana með í lið en þetta svæði
er okkar svæði. Góð útivistar-
svæði og tengsl við náttúruna er
eitt af því sem telst vera lykilat-
riði þegar kemur að vellíðan og
bara hamingju íbúa. Hér í kring-
um Akranes erum við með ólíkar
fjörugerðir og ein sú fallegasta er
einmitt þetta svæði; Langisandur.
Þessu svæði viljum við hlúa að og
huga að hvernig við getum tryggt
það að það þróist í takt við vænt-
ingar íbúa,“ segir bæjarstjórinn
jafnframt.
Í ljósi heimsfaraldurs er ekki
hægt að halda hefðbundna íbúa-
fundi og hefur þess í stað ver-
ið útbúin rafræn viðhorfskönn-
un um þarfir, upplifun og fram-
tíðarsýn íbúa um svæðið. Þar fá
íbúar tækifæri að láta í ljósi skoð-
anir, þarfir og áherslur um fram-
tíð Langasandssvæðisins. Munu
niðurstöður könnunarinnar verða
fylgigagn við auglýsingu um sam-
keppnina.
„Það skiptir máli hvernig við
stöndum að því að þetta allt sam-
an verði gert í samræmi við vænt-
ingar íbúa. Við erum því að óska
eftir því að þú takir þátt í því, með
rafrænum hætti, að koma frá þér
öllum þínum dýpstu óskum um
það hvernig þetta svæði getur
þróast til framtíðar.“ segir sævar
Freyr í ávarpi þegar hann fylgir
hinni rafrænu könnun úr hlaði.
Könnunin samanstendur af
sextíu spurningum sem flestar eru
krossaspurningar og tekur um 15
mínútur að svara. Þátttakendur
hafa kost á að komast í pott sem
dregið verður úr um og fá ein-
hverjir heppnir gjöf að launum.
Allir, ungir sem aldnir, eru hvattir
til að taka þátt. Könnunin verður
opin út desembermánuð. frg
bæði samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi og bæjarstjórn stykkishólms-
bæjar hafa bent á nauðsyn þess að
gera þurfi breytingar á fyrirkomu-
lagi hrognkelsaveiða. Hafa athuga-
semdir þess efnis verið sendar sjáv-
arútvegs- og landsbúnaðarráðherra
og þingmönnum Norðvesturkjör-
dæmis. bent er á nauðsyn þess að
nýtt fyrirkomulag grásleppuveiða
taki gildi fyrir upphaf næsta veiði-
árs og lögð áhersla á að brýnt sé
að Alþingi taki hið fyrsta til um-
fjöllunar breytingar á fyrirkomu-
lagi um hrognkelsaveiðar með það
að markmiði að bæta rekstrarum-
hverfi sjómanna og vinnsla með
langtíma hagsmuni greinarinnar að
leiðarljósi.
Grásleppusjómenn við breiða-
fjörð hafa ekki setið við sama borð
og aðrir. Við breiðafjörð hafa veið-
arnar ætíð hafist mun seinna en
annars staðar en það er í þeim til-
gangi að vernda æðarvarp við fjörð-
inn. Í vor var heimilt að veiða grá-
sleppu frá 10. mars, að undanskild-
um breiðafirði, þar sem upphafs-
dagsetning veiða er 20. maí. Það
kom því breiðfirskum grásleppu-
sjómönnum í opna skjöldu síðasta
vor þegar Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra ákvað að stöðva veiðarn-
ar fyrirvaralítið 3. maí vegna þess
að ráðlögðum heildarafla, 4.646
tonnum fyrir allt landið hafði ver-
ið náð. stór hluti þess afla veidd-
ist við norðanvert landið. Hafnir
með flesta báta, landanir og afla
voru bakkafjörður, Ólafsfjörður og
siglufjörður. Grásleppusjómenn á
sunnanverðu landinu höfðu margir
vart hafið veiðar þegar bannið skall
á. Þótti mönnum skjóta skökku við
að ekki hefði verið brugðist fyrr við
með því að takmarka sókn norðan-
manna þegar ljóst mátti vera að lít-
ið yrði afgangs fyrir sunnanmenn.
skert leyfi var þó gefið út til veiða á
breiðafirði í nokkra daga í vor.
244 handhafar grásleppuveiði-
leyfa, um 54% allra leyfishafa á
landinu, afhentu fyrr í mánuðinum
Kristjáni Þór Júlíussyni, land-
búnaðar- og sjávarútvegsráðherra
stuðningsyfirlýsingu við frumvarp
ráðherrans um kvótasetningu grá-
sleppuveiða. Í yfirlýsingunni sagði:
„Við undirritaðir fulltrúar grá-
sleppuútgerða og handhafar grá-
sleppuleyfa lýsum yfir fullum stuðn-
ingi við frumvarp ráðherra um að
grásleppa lúti veiðistjórnun með
aflamarki,“ segir í yfirlýsingunni.
„Öruggt má telja að aflamarksstýr-
ing leiði af sér minna sóknarálag
þeirra er sækja verðmætin í greip-
ar Ægis í viðsjárverðum aðstæðum
þegar allra veðra er von . Öfugt við
keppni í takmörkuðum fjölda veiði-
daga.“
frg
Sveitarfélög vilja útrýma
ólympískum grásleppuveiðum
Falleg sólarupprás við Langasand. Ljósm. frg.
Hugmyndasamkeppni um skipu-
lag og hönnun Langasandssvæðis