Skessuhorn - 16.12.2020, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202018
Velkomin í sund!
Opnunartími Íþróttamannvirkja Borgarbyggðar um jól og áramót 2019
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi
23. des. Þorláksmessa opið 06:00-18:00
24. des. Aðfangadagur jóla opið 8:00-12:00
25. des. Jóladagur LOKAÐ
26. des. Annar í jólum LOKAÐ
31. des. Gamlársdagur opið 8:00-12:00
1. janúar nýársdagur 2021 LOKAÐ
Íþróttamiðstöðin á Kleppjárnsreykjum
23. desember þorláksmessa lokað
24. des aðfangadagur lokað
25. des jóladagur lokað
26. des annar í jólum lokað
27. des sunnudagur opið frá 13-18
31.des gamlársdagur lokað
1. janúar 2021 nýársdagur lokað
Íþróttamiðstöðin á Varmalandi
LOKAÐ
FLUGELDASALA
Björgunarsveitin OK í Borgarfirði
Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði verður með sölu
á flugeldum fyrir áramótin.
Salan fer fram í Bútæknihúsinu á Hvanneyri og
Þorsteinsbúð í Reykholti frá kl. 13-22 miðvikudaginn 30. desember
og á gamlársdag frá klukkan 11-15
Verðum einnig með til sölu Rótarskot sem er óhefðbundið umhverfisskot
til að fagna nýju ári og um leið að styrkja starf björgunarsveitanna.
Vegna sóttvarna verður hægt að fá vöruna afhenta utan húss.
Þökkum íbúum og öðrum velunnurum stuðninginn á liðnum árum.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Jólasveinarnir tínast nú til byggða
einn af öðrum. Kunnastir eru þeir
þrettán sem koma einn af öðrum
til byggða eftir því sem líður á jóla-
mánuðinn og færa börnum góðgæti
og fleira í skóinn. Færri vita að jóla-
sveinarnir eru mun fleiri, svo marg-
ir að enginn veit raunverulegan
fjölda þeirra. Raunar voru á árum
áður alls kyns furðuverur á ferli í
jólamánuðinum en í seinni tíð hef-
ur þeim fækkað og í dag eru jóla-
sveinarnir nær einráðir jólavætta.
Íslensku jólasveinarnir eru jóla-
vættir af tröllakyni og voru upphaf-
lega hafðir til að hræða börn dag-
ana fyrir jól til þess að vera prúð og
stillt og hegða sér vel. Áður voru
þeir taldir tröllum líkir, klofnir
upp í háls, með klær fyrir fingrum,
kringlótta fætur og engar tær. Þeir
voru sagðir illir að eðlisfari og lík-
astir púkum og lifa mest á blótsyrð-
um manna og óvönduðum munn-
söfnuði. Þeir voru sagðir rógsamir
og rángjarnir, einkum á börn.
Með tímanum milduðust svein-
arnir, þeir verða vinir barnanna,
færa þeim gjafir, syngja fyrir þau og
segja sögur sem þeir hefðu aldrei
gert hér áður fyrr. Þá hafa jólasvein-
ar látið sig varða ýmis þjóðþrifamál
í seinni tíð, svo sem umhverfismál
og endurvinnslu. Á Akranesi hafa
tveir jólasveinar, Lunguslettir og
Næpuskræfa, verið bæjarbúum til
ráðgjafar og aðstoðar við sorphirðu
á Akranesi. Hefur verið almenn
ánægja með framlag þeirra til mála-
flokksins og er fyrirhugað að gera
við þá langtímasamning til fimm-
hundruð ára um sorphirðu og end-
urvinnslu í bænum í desember.
frg/ Ljósm. Brimrún Vilbergsdóttir
Jólasveinarnir
alveg í rusli