Skessuhorn - 16.12.2020, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202022
Kaupmenn á Akranesi láta afar vel
af jólavertíðinni það sem af er. Al-
mennt virðist hún koma mjög vel
út í samanburði við fyrr ár, salan er
jöfn og góð og fólk virðist almennt
hafa farið fyrr af stað við undirbún-
ing og jólagjafakaup.
Ingþór bergmann Þórhallsson,
eigandi verslunarinnar Omnis á
Akranesi lét mjög vel af jólaver-
tíðinni í samtali við skessuhorn á
föstudag. „Verslunin er öðruvísi en
hún hefur verið áður. Fólk kaup-
ir greinilega mikið í heimabyggð í
stað þess að fara til Reykjavíkur eða
að panta vörurnar erlendis frá. Það
hefur líka verið áþreifanlegt að fólk
er mun fyrr á ferðinni í ár og mikið
til búið að þessu. Að því sögðu þá
geri ég samt ráð fyrir mikilli sölu
síðustu dagana fyrir jólin.“
Ingþór segir að kauphegðun fólks
sé talsvert frábrugðin því venjulega.
„Ástandið er þannig að fólk fylg-
ist mikið með á netinu. Til dæmis
fylgist það mjög vel með verslunar-
mönnum á Instagram. Þegar fólk
sér að hlutir eru mikið til að klárast
þá er rokið til og gengið frá kaup-
um.“
Covid hefur haft mikil áhrif
á vöruinnflutning og framboð á
vörum. „Það er fullt af vörum sem
við hreinlega náum ekki í. Varan er
bara búin. sem dæmi má nefna að
Moccha latte kaffivélar í svörtu og
silfurgráu seldust upp í lok október.
Þær eru ekki til í landinu. Þær eru
reyndar til í einhverjum öðrum lit-
um,“ segir Ingþór. „Hjá einum af
birgjum okkar fyrir tölvur í Reykja-
vík eru bara allar hillur tómar. Þeir
eiga í miklum erfiðleikum með að
fá þær vörur sem þeir vilja.“ Að-
spurður um þessa miklu sölu und-
anfarið segir Ingþór: „Það hefur
verið meiri sala á tölvum en venju-
lega. Fólk vinnur mikið heima.
Fyrsta mánuðinn í Covid seldist
mest af búnaði til að hafa heima,
eins og lyklaborð, mýs, tölvuskjáir,
vefmyndavélar og heyrnartól. Þetta
rauk allt saman út. Í næsta mánuði á
eftir, eða í apríl, var ekki sama vöru-
flóra að seljast heldur var bara al-
mennt að seljast meira, yfir alla lín-
una,“ segir Ingþór sem er ánægður
með söluna í búðinni sinni á Akra-
nesi. frg
Ný verslun Líflands var opnuð við-
skiptavinum klukkan 10 síðastlið-
inn föstudag. Nýja verslunin er við
Digranesgötu 6 í borgarnesi, í fyrr-
um Hagkaupshúsnæði, milli bón-
uss og Geirabakarís. Áður var versl-
unin við borgarbraut 55 í húsi sem
nú stendur til að rífa á næstu miss-
erum. Nokkrir dyggir viðskipta-
vinir voru mættir á hurðarhúninn á
slaginu tíu til að kaupa inn á nýja
staðnum og nýta tilboð sem í gangi
voru í tilefni flutninganna, en all-
ir sem komu í verslunina gátu gætt
sér á vínarbrauði frá Geirabakaríi
og brakandi ferskum uppáhellingi.
glh
Ingþór Bergmann Þórhallsson kaupmaður í Omnis.
Jólavertíð kaupmanna á
Akranesi byrjaði fyrr í ár
Nágrannar kíkja í heimsókn. Bakarafélagarnir, Sigurþór
Kristjánsson og Þorsteinn Guðmundur Erlendsson heimsóttu
nýju verslunina en þeir starfa í Geirabakaríi við hliðina.
Lífland hefur opnað á nýjum stað
Ný verslun Líflands Við Digranesgötu 6 í Borgarnesi.
Fyrsti viðskiptavinur á nýjum stað var mættur stundvíslega kl. 10 um morguninn.
Hér afgreiðir Helgi Björn Ólafsson, verslunarstjóri Líflands í
Borgarnesi, Halldór Sigurðsson stuttu eftir opnun.
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
FRÁBÆR ÞRÍLEIKUR
Bjarna Harðarsonar
AL
LA
R Þ
RJ
ÁR
9.9
90,
mánud.–föstud. 11–18
laugard. 11–16
Stóraukið úrval af gömlu!
BÓKAMARKAÐUR
ÁRMÚLA 42
OPIÐ
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
FYRIR DAGA
farsímans
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
SPENNANDI ÞRÍLEIKUR
Guðmundar Brynjólfssonar
ALLAR ÞRJÁR
7.990,
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
KINDA
2. BINDI
Fást í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
MÓTORHAUSA
sögur
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
SAGA GUÐANNA
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42