Skessuhorn - 16.12.2020, Side 50
MIÐVIKUDAGUR 16. DeseMbeR 202050
Kveðjur úr héraði
Ég sit við stofugluggann á Vatns-
hömrum og horfi yfir Hvanneyri.
Það er kalt úti og gott að hafa eld
í kamínunni sem hitar upp stof-
una. Hvanneyri rataði í fréttirnar í
gær vegna kulda en kalda daga og
frosthörkur hef ég upplifað nokkuð
oft hér í sveit. Það fylgja því góð-
ar minningar að stússast úti í hest-
um eða snjó í miklu frosti og stillu.
Koma svo inn og fá heitt kakó og
nýbakaðar smákökur.
Ég starfa sem skólastjóri Grunn-
skóla borgarfjarðar en hann hefur
þrjár starfsstöðvar; á Hvanneyri,
Kleppjárnsreykjum og Varmalandi.
Grunnskóli borgarfjarðar er tíu ára
gamall en saga starfsstöðvanna sem
sjálfstæðir skólar er mun lengri og
því hafa skapast gamlar jólahefðir á
hverjum stað fyrir sig sem við höf-
um haldið. Aðventan í skólunum
er alveg sérstakur tími. Ég er svo
heppin að fá að rúnta um borgar-
fjörðinn á aðventunni sem og aðra
daga og taka þátt í jólahefðum sem
hafa skapast. Mig langar að segja
ykkur frá einni hefð frá hverjum
stað sem koma mér í sérstakt há-
tíðarskap.
Ljósahátíð á
Kleppjárnsreykjum
Ljósið er dýrmætt í svartasta
skammdeginu og á Kleppjárns-
reykjum hefur skapast sú hefð að
búa til ljósluktir og að allir nem-
endur komi saman í matsal skól-
ans á ljósahátíð. Markmiðið er
að upplifa friðinn frá lifandi ljós-
um og upplifa góða jólastemn-
ingu. stundum eru tónlistaratriði
frá nemendum, við syngjum sam-
an og að lokum fara allir út á skóla-
lóð þar sem kveikt er á jólaljósum.
elsti og yngsti nemandi skólans fá
það hlutverk að kveikja á ljósunum.
Í ár var hátíðin haldin alveg utan-
dyra og myndaðist mjög hátíðleg
stemning. Nemendur á miðstigi
unnu verkefni í útinámi þar sem
þeir bjuggu til ljósker úr vatni sem
var látið frjósa. Nokkrir nemendur
8. bekkjar lásu ljóð og allir sungu
síðan snjókorn falla og bjart er yfir
betlehem. elstu nemendur á leik-
skólanum Hnoðrabóli komu einn-
ig út en þau eru nýflutt í nýjan og
glæsilegan leikskóla við skólann.
Hátíðleg og góð stund.
Kveikt á stjörnunni
á Laugahnjúki
á Varmalandi
Fyrir ofan skólann á Varmalandi er
fallegur hamar sem kallast Lauga-
hnjúkur. Í upphafi aðventu kveikja
nemendur á stjörnu sem er komið
fyrir efst á hamrinum og skín hún
bjart yfir skólanum yfir jól og að-
ventu. Vináttan er þemað en hug-
myndin er að mynda keðju frá skól-
anum upp að stjörnunni. stundum
hefur jafnvel tekist að láta kynd-
il ganga eftir keðjunni táknrænt til
að kveikja á stjörnunni. elstu nem-
endurnir fá logandi kyndla í göng-
unni. Í ár var veðrið stillt, nýfall-
inn snjór og kalt. Það var sérstak-
lega skemmtilegt að vaða snjóinn
upp að hnjám og brjóta sér leið
upp á toppinn. Kyndlarnir vildu
þó ekki loga en það kom ekki að
sök, einhvern veginn kviknaði nú
á stjörnunni samt. Þegar upp var
komið tókum við lagið og horfð-
um á stjörnuna byrja að skína. Að-
alfjörið var svo að renna sér á rass-
inum niður brekkuna og leist okk-
ur fullorðna fólkinu stundum ekki
á blikuna þegar krakkarnir rúlluðu
sér niður í snjónum. Notaleg stund
inni með kakó og piparkökum
toppaði daginn og í framhaldinu
var farið í alls konar jólaföndur.
Helgileikurinn á
Hvanneyri
Rétt fyrir jólin halda nemendur
Hvanneyrardeildar upp í kirkju.
Í hópnum má sjá Jósef og Maríu,
vitringana þrjá, fjárhirða, sögu-
menn og engla. Helgileikurinn
skipar sérstakan sess á Hvanneyri
enda er hann leikinn í fallegri um-
gjörð í Hvanneyrarkirkju. Nem-
endur leggja mikið upp úr góðum
leik og að skila sögunni sem best,
englakórinn syngur af innlifun
og allir taka undir. stundum hafa
elstu nemendur leikskólans ver-
ið hluti af kórnum. Það eru fastar
hefðir sem ráða för um hvaða ár-
gangur er með hlutverk persóna
og hverjir eru í kórnum og margir
bíða spenntir eftir að röðin komi að
þeim. Æfingar hefjast snemma og
gera jólalega stemningu í skólan-
um á aðventunni. Heyrst hefur að
hjá sumum Hvanneyringum komi
jólin þegar þeir hafa horft á helgi-
leikinn í kirkjunni. Kirkjubekkirnir
eru þétt setnir af foreldrum, ömm-
um og öfum. Að þessu sinni verða
þó kirkjubekkirnir tómir en leikur-
inn þess í stað tekinn upp og send-
ur heim til nemenda. Kannski berst
þá hátíðleikinn enn víðar og verður
ekki síðra.
Með þakklæti í huga fyrir að fá
að taka þátt í þessum skemmtileg-
um jólahefðum barna í borgarfirði
sendi ég ykkur mínar bestu óskir
um gleðileg jól og farsæld á nýju
ári.
Helga Jensína Svavarsdóttir
Vatnshömrum
Um áramótin síðustu hlakkaði
ég mikið til ársins sem senn er að
líða. Nokkrar utanlandsferðir voru
komnar á dagskrá, leikhússferðir og
starfsmannahittingar svo eitthvað
sé nefnt. ein dásamleg utanlands-
ferð fjölskyldunnar skömmu eftir
áramót slapp fyrir horn en annað
frestaðist. Þrátt fyrir að flestöll plön
hafi breyst á árinu var það ekkert
alslæmt, að minnsta kosti fer margt
í reynslubankann. Ég vinn í skóla
og þar fengum við hraðnámskeið í
því hvernig ætti að útbúa sóttvarn-
arhólf vopnuð límbandsrúllum,
lærðum að sjónmæla tveggja metra
fjarlægð og þvo og spritta hendur
rækilega. Ég minnist þess að á þeim
tíma þótti mér þetta breytta fyrir-
komulag í vinnunni frekar íþyngj-
andi og leið svolítið eins og ég væri
stödd í lélegri bíómynd sem ég gat
ekki beðið eftir að lyki. Á haust-
mánuðum þegar ég hitti nemend-
ur mína aftur í skólanum og fór að
ræða við þau um þennan tíma, hvað
stóð upp úr hjá þeim og hvort þau
kysu frekar hefðbundið skólastarf
eða það óhefðbundna. börnin voru
fljót að minnast á það sem við gerð-
um sem var öðruvísi en við höfðum
áður gert og þeim fannst skemmti-
legt svo sem óvenjulegar samveru-
stundir sem við áttum með Æv-
ari vísindamanni sem las úr bókum
sínum á Facebook á hverjum degi,
belgísku vöfflurnar sem sigga og
Kata útbjuggu handa okkur og þau
fengu að borða í skólastofunni og
spurningakeppnirnar við kennar-
ann (sem þau auðvitað gjörsigruðu).
enginn minntist einu orði á erfið-
leika við að aðlagast breyttum að-
stæðum eða að hafa ekki mátt gera
það sem þau fengu að gera áður.
sumarplön fjölskyldunnar tóku
nýja stefnu þegar fyrirhugaðri ut-
anlandsferð varð að fresta. Lagt
var af stað í ferðalag, með sjóðheita
Vegahandbókina (sem í ár skart-
aði einmitt fallegri mynd af fjöl-
skyldunni), út á land. Það hafði að
vísu staðið lengi til en heit sumar-
sól í fjarlægum löndum hafði heill-
að meira undanfarin ár. svo varð
úr að þjóðvegi 1 var fylgt hringinn
í kringum landið okkar dásamlega,
með nokkrum útúrdúrum hér og
þar. Öðruvísi sumarfrí var niður-
staða barna og fullorðinna, en ekki
síður eftirminnilegt og skemmti-
legt en önnur.
Í aðdraganda jólanna þykir mér
vel við hæfi að hvetja til þess að við
reynum að hugsa hlutina eins og
börnin gera. ekki velta okkur upp
úr því hvernig við þurfum að breyta
venjum og hefðum nú þegar líklegt
er að við þurfum að haga jólahaldi
okkar með öðrum hætti en venju-
lega, heldur einmitt að fagna því
að fá tækifæri til að gera eitthvað
annað en það sem venjubundið er
því líklega verða það hlutirnir sem
standa upp úr í minningunni um
þessi óvenjulegu jól. Að því sögðu
verður jólasósan, kartöflumúsin,
fyllingin og jólabingóið að sjálf-
sögðu á sínum stað á mínu heimili,
því sumum hefðum verður bara ekki
breytt. Jólaboðið verður svo tekið á
TeAMs. Munið að þvo og spritta
og eigið dásamlega jólahátíð. bestu
kveðjur úr firðinum fagra.
Þórdís Þórisdóttir
Bjarteyjarsandi
Jólakveðja úr Hvalfjarðarsveit
Óvenjulegt en skemmtilegt
Þórdís og fjölskylda prýddi forsíðu
Vegahandbókarinnar í ár.
Þórdís ásamt börnunum sínum tveimur, Örnu Rún og Elvari Þór við Svartafoss í
sumar.
Jólakveðja úr Borgarfirði
Jólahefðir í Grunn-
skóla Borgarfjarðar